Fleiri fréttir Leiðrétting Fréttablaðsins: Sigurður á ekki bátinn Í fréttum sem skrifaðar hafa verið á Vísi í dag og fjalla um Sigurð Ólason og meint fíkniefnamisferli og peningaþvætti hefur verið sagt að hann eigi gúmmíbátinn sem notaður var til þess að sækja mikið magn fíkniefna í Papey. Fréttablaðið greindi frá þessu í morgun en sú frétt mun ekki eiga við rök að styðjast. Hér fyrir neðan má sjá yfirlýsingu frá Jóni Kaldal, ritstjóra Fréttablaðsins. 12.6.2009 12:24 Sjálfstæðismenn funda um meirihlutasamstarfið Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi funda í dag og helgina um framtíð meirihlutasamstarfsins við Framsóknarflokkinn. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, sem myndar meirihluta með sjálfstæðismönnum, vilji að Gunnar Birgisson víki úr embætti bæjarstjóra. 12.6.2009 12:04 Arnarnesmálið: Ekki tókst að ferja einn sakborninga í héraðsdóm Arnarnesmálið svokallaða var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Fjórir aðilar eru ákærðir í málinu en einungis þrír mættu fyrir dóm. Einn sakborninga situr í gæsluvarðhaldi vegna málsins en hann hefur verið í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Ekki var mannskapur til þess að ferja hann niður í héraðsdóm við Lækjartorg í morgun. 12.6.2009 11:56 Ekki borist kvörtun vegna kynvillubókar „Ég hef ekki heyrt af neinni kvörtun,“ segir Þórir Ólafsson, sérfræðingur á skólaskrifstofu menntamálaráðuneytisins, um kennslubókina Efni og orka. Í bókinni er Leonardo da Vinci kallaður kynvilltur, en það þykir afar móðgandi orðalag um samkynyhneigða. 12.6.2009 11:51 Gríðarlegur verðmunur á milli verslana Gríðarlegur verðmunur reyndist á milli verslana þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á 54 vörutegundum í 8 verslunum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri 9. júní. Fjarðarkaup var í flestum tilfellum ódýrari en aðrar þjónustuverslanir. 12.6.2009 11:31 Einar Karl á tvöföldum launum hjá ríkinu Einar Karl Haraldsson, nýráðinn almannatengslaráðgjafi Landsspítalans, þiggur biðlaun sem fyrrverandi aðstoðarmaður iðnaðarráðherra auk þess að þiggja verktakagreiðslur frá Landsspítalanum. Þetta staðfestir Einar í samtali við Vísi. 12.6.2009 11:06 Fyrsta inflúensutilfellið sem smitast á Íslandi greint Fjórða tilfelli inflúensu A(H1N1) hefur greinst á Íslandi. Þar á í hlut kona á miðjum aldri og allt bendir til þess að hún hafi smitast af hjónum sem komu hingað frá Bandaríkjunum 3. júní síðastliðinn og greindust bæði með veikina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. 12.6.2009 10:54 Flæktur í stærstu fíkniefnamál sögunnar Sigurður Hilmar Ólason sem nú situr í gæsluvarðhaldi í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl sem er í rannsókn hefur tengsl við Papeyjarsmyglið svokallaða líkt og Fréttablaðið sagði frá í morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hann einnig tengsl við Pólstjörnumálið sem kom upp árið 2007. Sigurður hefur verið umfangsmikill í fasteignaviðskiptum hér á landi en hann hlaut þriggja ára dóm fyrir aðild að smygli á þrjátíu kílúm af hassi til landsins árið 2001. 12.6.2009 10:43 „Kynvilla" í íslenskri kennslubók Í kafla um Leonardo da Vinci í íslensku kennslubókinni Efni og orka frá 2007 er orðið kynvilla notað um snillinginn. Bókin er kennd í áfanganum Náttúrufræði 123 við Verzlunarskóla Íslands. 12.6.2009 10:01 Þyrla gæslunnar sótti tvo sjómenn Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í gærkvöldi til aðstoðar tveimur skipverjum á línuveiðiskipinu Valdimari GK-195 vegna óhapps sem varð þegar skipverjar hugðust sjósetja léttabát skipsins um 90 sjómílur norðvestur af Öndverðarnesi. 12.6.2009 07:27 Eldur við Þingholtsstræti Eldur kom upp í húsi við Þingholtsstræti rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi og voru lögregla og slökkvilið kölluð á vettvang. 12.6.2009 07:24 Hraðakstur og innbrot í nótt Lögregla stöðvaði í nótt ökumann sem hafði ekið á 163 kílómetra hraða við Höfðabakkabrúnna. Þegar nánar var að gáð kom í ljós að maðurinn, sem er fæddur 1980, hefur aldrei tekið bílprófið og verður einhver bið á því að það verði í boði fyrir hann í nánustu framtíð. 12.6.2009 07:07 Gunnar Birgisson býðst til að hætta Gunnar Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi hefur boðist til að hætta og greiða þannig fyrir áframhaldandi meirihlutasamstarfi Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna í bænum. 12.6.2009 07:04 Þorsteinn Kragh í fangelsi í níu ár Hæstiréttur staðfestir dóma fyrir smygl á tæplega 200 kílóum af hassi. 12.6.2009 06:00 Hart var lagt að mér að hætta „Ég staðfesti orð Jóns [Daníelssonar hagfræðings] um að það hafi verið lagt hart að mér að segja af mér," segir Sigríður Benediktsdóttir, nefndarmaður í rannsóknarnefnd Alþingis. 12.6.2009 05:30 Vera kann að auglýsa þurfi stöðuna Setja á Björn Bergsson hæstaréttarlögmann sem sérstakan ríkissaksóknara í málum er varða bankahrunið. Ekkert setningarbréf hefur hins vegar verið gefið út en enginn tímarammi verður á skipun hans. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra gerir ekki ráð fyrir að staðan verði auglýst. 12.6.2009 05:30 Ók fullur og stal blómum 12.6.2009 05:15
Sjá næstu 50 fréttir
Leiðrétting Fréttablaðsins: Sigurður á ekki bátinn Í fréttum sem skrifaðar hafa verið á Vísi í dag og fjalla um Sigurð Ólason og meint fíkniefnamisferli og peningaþvætti hefur verið sagt að hann eigi gúmmíbátinn sem notaður var til þess að sækja mikið magn fíkniefna í Papey. Fréttablaðið greindi frá þessu í morgun en sú frétt mun ekki eiga við rök að styðjast. Hér fyrir neðan má sjá yfirlýsingu frá Jóni Kaldal, ritstjóra Fréttablaðsins. 12.6.2009 12:24
Sjálfstæðismenn funda um meirihlutasamstarfið Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi funda í dag og helgina um framtíð meirihlutasamstarfsins við Framsóknarflokkinn. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins, sem myndar meirihluta með sjálfstæðismönnum, vilji að Gunnar Birgisson víki úr embætti bæjarstjóra. 12.6.2009 12:04
Arnarnesmálið: Ekki tókst að ferja einn sakborninga í héraðsdóm Arnarnesmálið svokallaða var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Fjórir aðilar eru ákærðir í málinu en einungis þrír mættu fyrir dóm. Einn sakborninga situr í gæsluvarðhaldi vegna málsins en hann hefur verið í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Ekki var mannskapur til þess að ferja hann niður í héraðsdóm við Lækjartorg í morgun. 12.6.2009 11:56
Ekki borist kvörtun vegna kynvillubókar „Ég hef ekki heyrt af neinni kvörtun,“ segir Þórir Ólafsson, sérfræðingur á skólaskrifstofu menntamálaráðuneytisins, um kennslubókina Efni og orka. Í bókinni er Leonardo da Vinci kallaður kynvilltur, en það þykir afar móðgandi orðalag um samkynyhneigða. 12.6.2009 11:51
Gríðarlegur verðmunur á milli verslana Gríðarlegur verðmunur reyndist á milli verslana þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á 54 vörutegundum í 8 verslunum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri 9. júní. Fjarðarkaup var í flestum tilfellum ódýrari en aðrar þjónustuverslanir. 12.6.2009 11:31
Einar Karl á tvöföldum launum hjá ríkinu Einar Karl Haraldsson, nýráðinn almannatengslaráðgjafi Landsspítalans, þiggur biðlaun sem fyrrverandi aðstoðarmaður iðnaðarráðherra auk þess að þiggja verktakagreiðslur frá Landsspítalanum. Þetta staðfestir Einar í samtali við Vísi. 12.6.2009 11:06
Fyrsta inflúensutilfellið sem smitast á Íslandi greint Fjórða tilfelli inflúensu A(H1N1) hefur greinst á Íslandi. Þar á í hlut kona á miðjum aldri og allt bendir til þess að hún hafi smitast af hjónum sem komu hingað frá Bandaríkjunum 3. júní síðastliðinn og greindust bæði með veikina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. 12.6.2009 10:54
Flæktur í stærstu fíkniefnamál sögunnar Sigurður Hilmar Ólason sem nú situr í gæsluvarðhaldi í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl sem er í rannsókn hefur tengsl við Papeyjarsmyglið svokallaða líkt og Fréttablaðið sagði frá í morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hann einnig tengsl við Pólstjörnumálið sem kom upp árið 2007. Sigurður hefur verið umfangsmikill í fasteignaviðskiptum hér á landi en hann hlaut þriggja ára dóm fyrir aðild að smygli á þrjátíu kílúm af hassi til landsins árið 2001. 12.6.2009 10:43
„Kynvilla" í íslenskri kennslubók Í kafla um Leonardo da Vinci í íslensku kennslubókinni Efni og orka frá 2007 er orðið kynvilla notað um snillinginn. Bókin er kennd í áfanganum Náttúrufræði 123 við Verzlunarskóla Íslands. 12.6.2009 10:01
Þyrla gæslunnar sótti tvo sjómenn Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í gærkvöldi til aðstoðar tveimur skipverjum á línuveiðiskipinu Valdimari GK-195 vegna óhapps sem varð þegar skipverjar hugðust sjósetja léttabát skipsins um 90 sjómílur norðvestur af Öndverðarnesi. 12.6.2009 07:27
Eldur við Þingholtsstræti Eldur kom upp í húsi við Þingholtsstræti rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi og voru lögregla og slökkvilið kölluð á vettvang. 12.6.2009 07:24
Hraðakstur og innbrot í nótt Lögregla stöðvaði í nótt ökumann sem hafði ekið á 163 kílómetra hraða við Höfðabakkabrúnna. Þegar nánar var að gáð kom í ljós að maðurinn, sem er fæddur 1980, hefur aldrei tekið bílprófið og verður einhver bið á því að það verði í boði fyrir hann í nánustu framtíð. 12.6.2009 07:07
Gunnar Birgisson býðst til að hætta Gunnar Birgisson bæjarstjóri í Kópavogi hefur boðist til að hætta og greiða þannig fyrir áframhaldandi meirihlutasamstarfi Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna í bænum. 12.6.2009 07:04
Þorsteinn Kragh í fangelsi í níu ár Hæstiréttur staðfestir dóma fyrir smygl á tæplega 200 kílóum af hassi. 12.6.2009 06:00
Hart var lagt að mér að hætta „Ég staðfesti orð Jóns [Daníelssonar hagfræðings] um að það hafi verið lagt hart að mér að segja af mér," segir Sigríður Benediktsdóttir, nefndarmaður í rannsóknarnefnd Alþingis. 12.6.2009 05:30
Vera kann að auglýsa þurfi stöðuna Setja á Björn Bergsson hæstaréttarlögmann sem sérstakan ríkissaksóknara í málum er varða bankahrunið. Ekkert setningarbréf hefur hins vegar verið gefið út en enginn tímarammi verður á skipun hans. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra gerir ekki ráð fyrir að staðan verði auglýst. 12.6.2009 05:30
Vinna að tillögum Evu Joly „Hann ákveður sjálfur sitt hæfi og ég hef ekkert um það að segja," segir Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra um vanhæfi Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara. 12.6.2009 05:15
Gáfu 400.000 krónur til góðs málefnis „Þetta er mjög góð leið til að enda grunnskólagönguna,“ segir Kolfinna Tómasdóttir, varaformaður nemendaráðs Háteigsskóla, sem útskrifaðist úr tíunda bekk skólans á miðvikudag. Við það tilefni færðu útskriftarnemarnir styrktarfélaginu Göngum saman, sem hefur það að markmiði að styrkja grunnrannsóknir á krabbameini í brjóstum, 400.000 krónur sem þeir söfnuðu í vor. 12.6.2009 05:00
Ráðherra vill skýr fyrirheit frá hinum Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra telur „óhjákvæmilegt að gefin verði skýr fyrirheit um lækkun hæstu launa, stórhert aðhald í yfirstjórn ríkisins, umtalsverðan sparnað í utanríkisþjónustu og verulega aukinn aga í öllum rekstrarútgjöldum ríkisins, til þess að unnt sé að taka ákvörðun um hver hlutur öryrkja og aldraðra eigi að vera í þeirri þjóðarsátt sem fram undan er“. 12.6.2009 04:30
Þrefalt met í fjölda fanga hér á landi Vista hefur þurft allt að sjö gæsluvarðhaldsfanga í lögreglustöðinni við Hverfisgötu á undanförnum dögum, þar sem öll fangelsi landsins eru stappfull 12.6.2009 04:30
Nýting þorsks ríkisleyndarmál „Vinnubrögðin varðandi þetta mál eru algjörlega forkastanleg. Með þetta bréf er farið eins og mannsmorð og látið eins og það sé ekki til,“ segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, sem gagnrýnir málsmeðferð Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra hart vegna nýrrar nýtingarstefnu stjórnvalda í þorskveiðum sem Fréttablaðið greindi frá á miðvikudag. 12.6.2009 04:15
Verðið betra nú en fyrir ári Hugsanlegt er að Actavis sé annað þeirra tveggja fyrirtækja sem þýska samheitalyfjafyrirtækið Stada er að skoða kaup á að öllu leyti eða að hluta standi slíkt til boða. 12.6.2009 03:45
Enginn Brúðubíll í Kópavogi „Margar smáar upphæðir gera eina stóra og einhvers staðar verður að spara,“ segir Aðalsteinn Sigfússon, félagsmálastjóri Kópavogsbæjar. Sýningar Brúðubílsins á gæsluvöllum bæjarins, sem hafa verið fastur liður á sumrin í fjölda ára, hafa verið felldar niður í sumar. 12.6.2009 03:00
Andvígir vísi að skólagjöldum „Í samkomulagi fræðslusviðs og foreldrafélags Barnaskóla Hjallastefnunnar er gert ráð fyrir fjárframlagi foreldra til þess að brúa það kostnaðarbil sem þarf til þess að skólastarf í fjórða bekk Hjallastefnunnar við Hjallabraut geti farið fram," segir í bókun Jóns Páls Hallgrímssonar, bæjarfulltrúa Vinstri grænna í Hafnarfirði. 12.6.2009 02:00
Íbúar trufla umferð á Kjalarnesi á morgun „Það var bara frábær mæting og mikill hugur í fólki,“ segir Hólmar Þór Stefánsson, íbúi á Kjalarnesi og fulltrúi íbúasamtökum og hverfaráði Kjalarness. Í kvöld hittust íbúar Kjalarness til þess að ræða aðgerðaleysi stjórnvalda í málum hverfisins en börnum á svæðinu stafar mikil hætta af umferð um vesturlandsveg. Íbúar krefjast aðgerða. 11.6.2009 23:14
Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir slasaða skipverja Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst í kvöld beiðni um aðstoð frá línuveiðiskipinu Valdimar GK-195 vegna óphapps sem varð þegar skipverjar hugðust sjósetja léttabát skipsins um 90 sjómílur norð-vestur af Öndverðanesi. 11.6.2009 22:36
Ómar Stefánsson: Ég verð ekki bæjarstjóri „Ég gerði bara flokknum grein fyrir því hvað hefði farið milli okkar Gunnars og fékk fullan stuðning til þess að halda áfram að vinna að lausn á þessu máli,“ segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknar í Kópavogi. 11.6.2009 21:46
Brjáluð belja réðist á unglingsstúlku - sakfellt í Hæstarétti Hæstiréttur Íslands dæmdi bónda skaðabótaskyldan gagnvart stúlku, þá fjórtán ára, sem lenti í því að kýr réðist á hana, stangaði í maga og trampaði á andliti hennar. Hlaut hún 5 prósent örorku af kúaárásinni. 11.6.2009 17:06
Tólf þúsund heimili með mjög þunga greiðslubyrði Yfir fimm þúsund íslensk heimili skulda svo mikið að níu af hverjum tíu krónum sem heimilisfólk hefur til ráðstöfunar ættu að fara í afborganir lána. Tólf þúsund heimili eru með mjög þunga greiðslubyrði. 11.6.2009 18:41
Ríkisendurskoðun gerði athugasemd við viðskiptin 1997 Lánasjóður íslenskra námsmanna hefur sent frá sér skýrslu sem Ríkisendurskoðun vann fyrir stofnunina en skýrslan fjallar um viðskipti Frjálsrar miðlunar, fyrirtækis í eigu Brynhildar Gunnarsdóttur Birgissonar, við Lánasjóðinn meðan að Gunnar var stjórnarformaður sjóðsins. Stjórn LÍN hyggst ekki aðhafast frekar í málinu en skýrslan var kynnt fyrir stjórn sjóðsins í dag. 11.6.2009 20:28
Líklegt að Ómar verði bæjarstjóri Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í Kópavogi vinna nú að því að bjarga meirihlutasamstarfinu, samkvæmt heimildum fréttastofu. Fullyrt er að margt sé uppi á borðinu, að í raun sé verið ð semja nýjan samstarfssamning og að báðir aðilar muni gera kröfur á hinn. 11.6.2009 18:25
Fyrsta skóflustungan að skóla í Úlfarsárdal Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstóri í Reykjavík, tók í dag fyrstu skóflustunguna að nýjum skóla sem staðsettur er við Úlfarsbraut 118 – 120 í Úlfarsárdal. 11.6.2009 18:00
Hæstiréttur staðfestir sekt í DC++ máli Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms yfir níu mönnum í hinu svokallaða DC++ máli. Mennirnir voru upphaflega sakfelldir í héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að birta og gera eintök af forritum, kvikmyndum og tónlist á netinu þannig að aðrir gætu nálgast það efni án leyfis rétthafa. Ennfremur var einn ákærða dæmdur fyrir að setja upp og hýsa miðlægan nettengipunkt og hafa með því liðsinnt í verki og hvatt til þess að aðrir ákærðu birtu á netinu í heimildarleysi ólögmæt eintök varin höfundarétti. 11.6.2009 17:43
Ólafur F. vill aðgerðir strax á Kjalarnesi Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra, segir að þörf sé á aðgerðum á Kjalarnesi strax og ekki eigi að „svæfa málið í nefnd“. 11.6.2009 17:35
Erlend veðmálafyrirtæki mega auglýsa á Íslandi Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í september 2008 sem sýknaði Þórmund Bergsson, framkvæmdastjóra birtingahússins MediaCom, af brotum á lögum um happdrætti í tengslum við auglýsingar sænska veðmálafyrirtækisins Betsson. Miðað við dóminn geta erlend fyrirtæki auglýst fjárhættuspil hér á landi. 11.6.2009 17:01
Hæstiréttur staðfestir níu ára dóm yfir Þorsteini Kragh Hæstiréttur Íslands staðfesti níu ára fangelsisdóm yfir fíkniefnasmyglaranum Þorsteini Kragh. Þá fékk Hollendingurinn Jacob Van Hinte sjö og hálft ár. Fimm ára dómur sem hann fékk fyrir fíkniefnainnflutning á Spáni var látinn hafa ítrekunaráhrif hér á landi. 11.6.2009 16:45
Skert réttindi öryrkja og ellilífeyrisþega ekki forgangsatriði Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, segir að skera verði niður í öllum ráðuneytum og þar sé félagsmálaráðuneytið og stofnanir þess engin undantekning en ríkisstjórnin reynir hvað hún getur til að draga úr kostnaði í því erfiða árferði sem nú ríkir í landinu. 11.6.2009 16:42
Enn ein kannabisræktunin stöðvuð Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu upprætti enn eina kannabisræktunina í gær þegar 130 kannabisplöntur fundust við húsleit í íbúð í austurbæ Reykjavíkur. 11.6.2009 16:30
Fjölbreytt mótmæli á Austurvelli Mótmæli stúdenta er hafin niður á Austurvelli. Innan við fimmtíu mótmælendur voru mættir á svæðið nú fyrir stundu. 11.6.2009 16:22
Ráðherra á milljónahlut í Byr Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, er hluthafi í Byr en hlutur hans samkvæmt stofnfjáreign er 5,6 milljónir króna. Þetta kemur fram þegar rýnt er í upplýsingar um hagsmunatengsl þingmanna. Hefð virðist hafa myndast fyrir því að ráðherrar sem heita Árni eigi hlut í Byr því nafni hans Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, á einnig hlut í sparisjóðnum. 11.6.2009 16:14
Gunnar Birgisson vék af bæjarráðsfundi Gunnar Birgisson vék af bæjarráðsfundi sem stendur yfir núna. Ekki er ljóst nákvæmlega hversvegna en þó er ljóst að verið er að ræða málefni honum tengdum, þá sennilega málefni Frjálsra miðlunar sem er í eigu dóttur hans og eiginmanns hennar. 11.6.2009 15:45
Vinna við úrbætur á Vesturlandsvegi í fullum gangi Kristján L. Möller samgönguráðherra segir að úrbætur á Vesturlandsvegi séu í fullum gangi hjá Vegagerðinni. Vísir sagði frá áhyggjum íbúa á Kjalarnesi yfir umferðaröryggi á svæðinu í morgun. Í síðustu viku munaði litlu að tveir ungir piltar yrðu undir flutningabíl. Kristján segist hafa farið á íbúafund á svæðinu þann 1.apríl og daginn eftir hafi hann gengið í málið með Vegamálastjóra. Stefnt er á að setja undirgöng undir veginn og Kristján hefur óskað eftir því að það verði gert sem allra fyrst. 11.6.2009 15:12
Stefán skipaður rektor Háskólans á Akureyri Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, hefur að fenginni tilnefningu háskólaráðs Háskólans á Akureyri skipað Stefán B. Sigurðsson, prófessor og forseti læknadeildar Háskóla Íslands, í embætti rektors Háskólans á Akureyri. 11.6.2009 14:56
Óstarfhæf bæjarstjórn í Grindavík Meirihlutinn í bæjarstjórn Grindavíkur er orðinn að minnihlutastjórn eftir að Samfylkingarmaðurinn Garðar Páll Vignisson sagði sig úr Samfylkingunni og gekk yfir í Vinstri græna. 11.6.2009 14:54
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent