Fleiri fréttir

Treystir á stjórnarþingmenn

Icesave samkomulagið var til umræðu í fyrirspurnartíma á Alþingi í morgun. Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, spurði Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, hvort hún hefði gengið úr skugga um það áður en samningamenn settu stafi sína á samkomulagið, að nægjanlegur þingmeirihluti væri fyrir málinu og þá sérstaklega í þingflokki Vinstri grænna. En þar hafa fjórir þingmenn lýst efasemdum sínum um málið og þrír greiddu atkvæði gegn samkomulaginu í þingflokknum.

Krefjast úrbóta á Vesturlandsvegi

Íbúasamtökin á Kjalarnesi ætla að grípa til aðgerða við Vesturlandsveg seinni partinn á morgun. Um táknræn mótmæli verður að ræða en íbúar eru orðnir langrþeyttir á aðgerðarleysi á Vesturlandsvegi. Tveir litlir drengir urðu næstum undir flutningabíl þar í síðustu viku og var það dropinn sem fyllti mælinn. Marta Guðjónsdóttir formaður hverfaráðs Kjalarness hefur boðað til íbúafundar annað kvöld og vill að samgöngunefnd Alþingis láti sjá sig.

Blikur á lofti í ferðaþjónustu - óþolandi seinagangur

Samtök ferðaþjónustunnar hafa miklar áhyggjur af markaðsmálum og skipulagi þeirra í ferðaþjónustu en „óþolandi seinagangur“ er á stofnun Íslandsstofu sem taka á við markaðsstarfi greinarinnar, að fram kemur í ályktun Samtaka ferðaþjónustunnar.

DV dæmt til þess að greiða skaðabætur

Fyrrverandi blaðamaður DV, Trausti Hafsteinsson, var dæmdur til þess að greiða Áslaugu Herdísi Brynjarsdóttur sjö hundruð þúsund krónur fyrir frétt sem hann skrifaði í DV í ágúst árið 2007. Dómur í málinu féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Ómar Stefánsson: Ég er búinn að taka ákvörðun

„Ég er búinn að taka ákvörðun um það sem mér finnst," segir Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins en hann mun hitta fulltrúaráð flokksins í kvöld og ræða við þá um þá stöðu sem er kominn vegna skýrslu Deloiette vegna viðskipta Kópavogsbæjar við fyrirtæki dóttur Gunnars Birgissonar.

ÖBÍ mótmælir lágtekjusköttum

Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands lýsir þungum áhyggjum yfir bágri stöðu öryrkja og ellilífeyrisþega sem þurfa að treysta á hið opinbera til að geta framfleytt sér og sínum. Fatlað fólk og eldri borgarar nutu ekki hins svokallaða góðæris þar sem uppbygging velferðarkerfisins var ekki í samræmi við velmegun í samfélaginu. Staða fyrrgreindra hópa er mjög þung vegna aukins kostnaðar á nauðsynjum, eins og mat, lyfjum, lækniskostnaði og húsnæði. Mjög margir geta ekki látið enda ná saman.

Tekur undir með Evu Joly og segir Valtý vanhæfan

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, tekur undir gagnrýni Evu Joly, fyrrverandi rannsóknardómara í Frakklandi, varðandi rannsókn yfirvalda á bankahruninu og að Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, sé vanhæfur í starfi.

„Ríkisstjórnin er stórhættuleg“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, tókst á í upphafi þingfundar í dag.

Einkaflugeldasýning Evu Joly

Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari segir það af og frá að hann ætli að biðjast lausnar en Eva Joly sagði í gær að hann ætti að víkja úr embætti. Eva sagði Valtý vanhæfan í starfi þar sem sonur hans sé einn af lykilstjórnendum í einu af þeim félögum sem verið sé að rannsaka.

Samherjar Gunnars vilja að hann hætti

Framtíð meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Kópavogi veltur á því hvort Gunnar Birgisson fæst til að hætta sem bæjarstjóri. Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, tjáði Gunnari þetta á fundi þeirra í gærmorgun, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Mál og menning undirbýr brottför

Starfsfólk bókabúðar Máls og menningar á Laugavegi 18 býr sig nú undir að yfirgefa húsnæðið sem verslunin hefur verið í síðan 1961. Að óbreyttu hættir verslunin þar í ágúst.

Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn

Það er með ólíkindum að fólk skuli leggjast svo lágt að stela aflanum frá öðrum, segir Stefán Árnason sem um síðustu helgi var ásamt fimm ára syni sinum við silungsveiðar í Hítarvatni.

Þjófagengi dregið fyrir dóm

Fimm manns á þrítugsaldri, fjórir karlmenn og ein kona, hafa verið ákærð fyrir að svíkja út eða reyna að svíkja út varning fyrir rúmlega þrettán milljónir úr sex verslunum á árunum 2007 og 2008.

Nemendur leggja á ráðin

„Við munum ekki skrifa upp á svona plagg,“ segir Ingólfur Birgir Sigurgeirsson, fulltrúi stúdenta í stjórn LÍN, um lánasjóðssamninginn sem stjórn LÍN mun að öllum líkindum undirrita í dag. Þar er gert ráð fyrir að lánakjör stúdenta verði óbreytt.

Keypti vörubíla fyrir gróða af fíkniefnum

Athafnamaðurinn Sigurður Ólason er talinn hafa þvættað peninga í gegnum félagið Hollís, sem hann stofnaði með hollenskum og ísraelskum fíkniefnasölum. Sigurður tengist miklum fjölda annarra fyrirtækja hérlendis og á tugi fasteigna.

Undirbúa stóra úttekt á störfum Fjármálaeftirlits

Rannsóknarnefnd Alþingis um aðdraganda og orsök bankahrunsins hefur verið erlendis síðustu daga að semja við sérfræðinga til að vinna að úttekt á störfum Fjármálaeftirlitsins (FME). Eins og kom fram í blaðinu í gær er einnig verið að skoða störf Seðlabanka Íslands.

Laugin verður heitari í haust

"Þegar vetur gengur í garð mun fjölskyldufólk geta boðið börnunum sínum upp á hlýrri barnalaug,“ segir Kjartan Magnússon, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur. Þil úr ryðfríu stáli verður sett upp í Vesturbæjarlauginni í sumar til að skilja að fullorðinslaug og barnalaug.

Vill þrjá saksóknara - Einn um hvern banka

Eva Joly sagði í Kastljósi fyrr í kvöld að hún vilji að í stað eins sérstaks saksóknara verði þeir þrír. Hver og einn kæmi þá til með að rannsaka mál sem koma að hverjum stóru viðskiptabankanna fyrir sig.

Björn verður ríkissaksóknari í málum bankahrunsins

Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra ætlar að skipa Björn Bergsson hæstaréttarlögmann sem ríkissaksóknara í öllum málum sem varða bankahrunið, þetta kemur fram á Mbl.is. Þar segir jafnframt að Valtýr Sigurðsson hafi lýst sig vanhæfan en vegna lagalegra annmarka dregist að skipa annan í hans stað.

Íslenskt fyrirtæki tengt hundruð kílóa kókaínsmygli

Ísraeli og Hollendingur eiga íslenskt fyrirtæki ásamt Sigurði Ólassyni sem talið er tengjast alþjóðlegum glæpahring, peningaþvætti og mörg hundruð kílóa kókaínsmygli. Þremenningarnir eru allir í haldi lögreglu.

Fjölskylduhjálp Íslands lokar í sumar

Fjölskylduhjálp Íslands lokar frá og með 24. júní til 12. ágúst. Ástæðan er sú að sjálfboðaliðar sem starfa við fjölskylduhjálpina þurfa frí eins og annað fólk. Fjölskylduhjálpin hefur farið fram á að ríki eða borg styrki sig um hálft stöðugildi sem hefði getað haldið starfseminni gangandi í allt sumar. Ekki hefur verið orðið við þeirri bón.

Lagt á ráðin um áframhaldandi störf Evu Joly

Starfsmenn embættis sérstaks saksóknara áttu fyrr í dag áformaðan og reglubundinn fund með Evu Joly sem gegnir hlutverki ráðgjafa við embættið. Fundurinn var árangursríkur og var meðal annars lagt á ráðin um áframhaldandi störf hennar fyrir embættið og ráðgjafa á hennar vegum.

Dóttir Gunnars fékk nær mánaðarlega greitt í níu ár

Frjáls miðlun, fyrirtæki í eigu dóttur Gunnars Birgissonar bæjarstjóra Kópavogs, hefur fengið greitt nær mánaðalega misháar upphæðir frá Kópavogsbæ frá árinu 2000 til 2009. Þó eru sjö mánuðir sem fyrirtækið fær ekki greitt. Þetta kemur fram á tölfræðivefnum Tíðarandinn.is.

Ungir framsóknarmenn í Kópavogi vilja slíta samstarfi

Í ljósi greinagerðar Deloitte um viðskipti Kópavogsbæjar við Frjálsa miðlun ehf. á árunum 2003 til 2008 teljum við ungir Framsóknarmenn í Kópavogi að ekki sé lengur grundvöllur né traust til að starfa með siðlausri forystu Sjálfstæðismanna í Kópavogi.

Eva Joly vill Valtý úr embætti ríkissaksóknara

Eva Joly er ekki að hætta sem ráðgjafi hjá embætti sérstaks saksóknara. Hún stillir stjórnvöldum upp við vegg; vill að meiri peningum sé dælt í rannsókn á bankahruninu og að Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari víki.

Olís og ÓB endurgreiða viðskiptavinum

Þeir viðskiptavinir Olís og ÓB sem keyptu bensín frá kl. 10:00 föstudaginn 29. maí til kl. 13:30 mánudaginn 8. júní fá 12,50 kr. á hvern lítra endurgreiddar. Í ljós hefur komið að ekki á að skila ríkissjóði hækkuðu bensíngjaldi af þeim birgðum sem félagið átti við lagabreytingu þann 28. maí síðastliðinn

Hundur réðist að hænum og drap

Stór hundur, sem var með eigendum sínum í orlofshúsabyggðinni í Akurgerði í Ölfusi, réðst að hænsnum á bænum Borgargerði um miðjan dag í gær. Náði hann að drepa eina hænu og skaða hanann á bænum áður en tókst að stöðva hann.

Flóttaleið í Icesavesamningum

Í Icesavesamningunum umdeildu sem undirritaðir voru um helgina er ákvæði sem segir að ef staða okkar sé svo slæm þegar við eigum að byrja að borga að við stöndum ekki undir skuldum, sé hægt að taka samningana til endurskoðunar.Þetta herma heimildir frétastofu.

Koma Sigríði Benediktsdóttur til varnar

Alþingi hefur nú til umfjöllunar beiðni um að Sigríður Benediktsdóttir hætti í rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið vegna ummæla hennar í skólablaði Yale háskóla. Fjórir íslenskir hagfræðingar telja að brottvikning hennar myndi skaða starf nefndarinnar.

Þriðja flensutilfellið: Eiginkonan smitaðist líka

Þriðja tilfelli inflúensu A (H1N1) greindist á Íslandi í gærkvöld. Þar er um að ræða eiginkonu karlmannsins sem greindist með veikina í fyrradag og sagt var frá í tilkynningu sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar í gærmorgun. Fullvíst er talið að hjónin hafi smitast í Bandaríkjunum. Þaðan komu þau til Íslands fyrir réttri viku, miðvikudaginn 3. júní. Þau veiktust bæði en ekki alvarlega.

Formaður afmælisnefndar: Gunnar Birgisson ber siðferðislega ábyrgð

„Við tókum áreiðanlega ekki ákvörðun um að stoppa þetta rit. Ég myndi sennilega muna það ef svo væri," segir Hansína Ásta Björgvinsdóttir sem gegndi formennsku afmælisnefndar Kópavogsbæjar þegar Frjáls miðlun, fyrirtæki dóttur Gunnars Birgissonar núverandi bæjarstjóra, fékk greiddar um þrjár milljónir fyrir afmælisrit sem aldrei kom út.

Þriðji maðurinn hefur hlotið dóm fyrir fíkniefnainnflutning

Gunnar Viðar Árnason, tuttugu og sjö ára gamall Vesturbæingur, hefur setið í gæsluvarðhaldi í tvær vikur í tengslum við stórfellt fíkniefnamál. Gunnar eru grunaðir, ásamt tveimur öðrum íslendingum, að vera flæktur í málið sem snýr að mörg hundruð kílóa kókaínsmygli og teygir anga sína til þrettán landa. Grunur leikur á að Íslendingarnir tengist alþjóðlegum glæpasamtökum sem bendluð eru við fíkniefnamisferli og peningaþvætti. Gunnar Viðar hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm árið 2005 fyrir innflutning á fjórum kílóum af amfetamíni.

Forsendur opnast fyrir frystingu eigna

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir í samtali við Morgunblaðið í dag að forsendur hafi opnast fyrir frystingu eigna þeirra auðmanna sem nú hafi fengið réttarstöðu grunaðra við rannsókn sérstaks saksóknara á orsökum bankahrunsins.

Varðskip vaktaði svæðið í nótt

Töluverður viðbúnaður var í gærkvöldi vagna reyks á hafi úti austu af Garðskaga sem þrír aðilar hið minnsta tilkynntu um í gærkvöldi. Varðskip Landhelgisgæslunnar kom á leitarsvæðið um klukkan tíu en áður höfðu björgunarsveitir á Suðurnesjum verið ræstar út auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar flaug um svæðið.

Á felgunni í Fellsmúlanum

Ökumaður bíls var færður á lögreglustöðina við Hverfisgötu í nótt, grunaður um ölvunarakstur. Maðurinn affelgaði bíl sinn á Miklubrautinni en stöðvaði hann ekki fyrr en hann hafði ekið inn í Fellsmúla og niður á Grensásveg með tilheyrandi eldglæringum þar sem dekkið varð eftir á Miklubraut. Ökuferðin tók loks enda á bílastæði við Grensásveginn en maðurinn bíður yfirheyrslu.

Dóp í hraðsendingu hratt málinu af stað

Þrír karlmenn sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna gríðarlega umfangsmikils fíkniefnamáls sem talið er teygja anga sína víða um lönd. Lögreglan verst fregna af því hvaða lönd rannsóknin varðar á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Fyrsti maðurinn var handtekinn eftir að hraðsending sem reyndist innihalda nokkur kíló af hörðum fíkniefnum hafði borist hingað til lands.

Krefjast þess að meirihlutinn axli ábyrgð

Vinstri Græn í Kópavogi sendu frá sér yfirlýsingu fyrir stundu varðandi skýrslu Deloitte um viðskipti Frjálsrar miðlunar ehf við Kópavogsbæ. Þar segir að skýrslan sýni að reglur hafi verið brotnar og er allri ábyrgð vísað á bæjarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.

Bæjarstjóraskipti á Akureyri

Akureyringar fengu í kvöld nýjan bæjarstjóra þegar Hermann Jón Tómasson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, tók við starfinu á fundi bæjarstjórnar rétt í þessu.

Sjá næstu 50 fréttir