Innlent

Erlend veðmálafyrirtæki mega auglýsa á Íslandi

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í september 2008 sem sýknaði Þórmund Bergsson, framkvæmdastjóra birtingahússins MediaCom, af brotum á lögum um happdrætti í tengslum við auglýsingar sænska veðmálafyrirtækisins Betsson. Miðað við dóminn geta erlend fyrirtæki auglýst fjárhættuspil hér á landi.

Betsson hefur auglýst fjárhættuspil á vefsíðu sinni, betsson.com, í íslenskum fjölmiðlum, en samkvæmt íslenskum lögum má aðeins reka happdrætti hér á landi til þess að afla fjár til almannaheilla.

Þar sem Betsson er erlent fyrirtæki var látið á það reyna hvort heimilt væri að auglýsa hér á landi happdrætti sem ekki væri leyfi fyrir. Var framkvæmdastjóri birtingahússins MediaCom, sem ráðlagaði um birtingu auglýsinga, því ákærður.

Héraðsdómur komst hins vegar að því að málið væri utan íslenskrar lögsögu þar sem síðan væri vistuð í útlöndum. Ríkissaksóknari áfrýjaði málinu til Hæstaréttar sem líkt og áður sagði staðfesti dóm héraðsdóms.

Áfrýjunarkostnaður málsins greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málsvarnarlaun verjanda Þórmunds.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×