Fleiri fréttir

Sykurskattur tilraunarinnar virði

„Ég held að það sé tilraunarinnar virði að gera eitthvað í þessa veru,“ segir Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs og fyrrverandi landlæknir, um umdeildar hugmyndir um sérstakan sykurskatt.

Heilbrigðisnefnd fundar vegna inflúensunnar

Rannsókn hefur leitt í ljós að sexmenningarnar, sem talið var að kynnu að vera smitaðir af H1N1 inflúensunni, reyndust ósýktir. Áfram verður þó fylgst með heilsu þeirra, en um er að ræða skyldmenni mannsins, sem staðfest er að hafi smitast af inflúensunni í Bandaríkjunum.

Hægt verður að ættleiða börn frá Póllandi og Togo

Allt bendir til þess að Íslendingar í ættleiðingarhugleiðingum geti fljótlega leitað til Póllands. Félagið Alþjóðleg ættleiðing mun væntanlega byrja að taka á móti umsóknum vegna þessa strax í sumar.

Hætti við að hætta

Sænskur efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar hótaði að hætta störfum vegna seinagangs hennar í endurskipulagningu bankanna. Hann setur það sem skilyrði fyrir áframhaldandi störfum að vinnslu mála verði hraðað og að efnahagsmálin verði vistuð í einu ráðuneyti. Frumvarp um nýtt efnahagsráðuneyti verður lagt fram næstu daga.

Troðningur í höfninni á Arnarstapa

Mesti troðningur fiskibáta á Íslandi er sennilega á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Þótt þar sé ein minnsta höfn landsins er þorskaflinn sem þangað hefur borist litlu minni en landað hefur verið á Akureyri frá áramótum.

Samdráttur ríkissjóðs 67 milljarðar

Tekjur ríkissjóðs munu skreppa saman um nærri 67 milljarða króna á þessu ári, sem samsvarar nánast kostnaðinum við að reka alla framhaldsskóla, háskóla og löggæslu landsins.

Frjálslyndir gagnrýna ríkisstjórnina

Framkvæmdastjórn Frjálslynda flokksins gagnrýnir og lýsir furðu sinni á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Í hana vanti allar útfærslur um það hvernig bregðast ætti við þeim efnahagsvanda sem við blasir. Ekki hafi verið útlistað um það hvernig efla eigi atvinnulífið og afla nýrra tekna fyrir þjóðfélagið í heild.

Vonast eftir átakalausum ársfundi

Kristinn Örn Jóhannesson, formaður VR, vonar að ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna sem fer fram á eftir verði átakalaus. Stjórn VR samþykkti tillögu þess efnis að gerð verði breyting á stjórn lífeyrissjóðsins.

Borgarahreyfing: Framkvæmdarstjóri vill ekki ofurlaun

Framkvæmdarstjóri Borgarahreyfingarinnar, Jóhann Kristjánsson, segist ekki hafa gert launakröfu upp á 7.7 milljónir. Hann hafi eingöngu notað það sem viðmið hefði hreyfingin viljað umbuna honum fyrir starf kosningastjóra.

AGS: Áhyggjur af samstöðuskorti Íslendinga

Fulltrúar Samstöðu, bandalags grasrósarhreyfinga, hittu í dag í annað sinn fulltrúa Alþjóðgjaldeyrissjóðsins en fyrri fundurinn átti sér stað þann 10. mars síðastliðinn. Í tilkynningu frá bandalaginu segir að í máli þeirra Franeks Roswadovski og Marks Flanagan, fulltrúum AGS, hafi komið fram að þeir hafi áhyggjur af því að samstöðu skorti í þjóðfélaginu um aðgerðir og markmið í efnahagsmálum þjóðarinnar.

Dæmdur fyrir að misnota dóttur æskuvinar

Tryggvi Óli Þorfinnsson, 42 ára gamall Hveragerðingur, var dæmdur í átján mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að misnota unglingsstúlku kynferðislega. Hann var meðal annars dæmdur fyrir að setja gervilim í leggöng stúlkunnar þegar hún var fimmtán ára auk þess sem hann lét hana hafa við sig munnmök.

Jóhanna: AGS ræður ekki för

„Við erum ekki að takast á við halla ríkissjóðs til að þóknast Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eða erlendum lánadrottnum," sagði Jóhanna Sigurðardóttir í munnlegri skýrslu sinni um efnahagshorfur á Alþingi.

Borgarahreyfing: Átök hluti af gagnsæi

Stjórn Borgarahreyfingarinnar hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna átakafundar sem var haldin í gærkvöldi en þar var framkvæmdarstjóri hreyfingarinnar harðlega gagnrýndur. Hann lagði fram reikning á félagsfundinum þar sem hann óskaði eftir að fá 7.7 milljónir króna fyrir störf sín.

ESB tillögu dreift á þingi

Tillögu til þingsályktunar um að ríkisstjórnin leggi fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu var dreift á Alþingi í dag. Í athugasemdum við tillöguna segir að hún sé lögð fram til þess að íslenska þjóðin fái tækifæri til að hafna eða samþykkja samning um aðild að sambandinu þegar hann liggur fyrir. Þá segir að víðtækt samráð verði haft við hagsmunaaðila um samningsmarkmið á ýmsum sviðum auk þess sem skoðað verði hvort unnt verði að ná fram samstarfi í gjaldmiðilsmálum samhliða viðræðum um hugsanlega aðild til þess að styðja við gengi krónunnar. Búast má við því að málið verði rætt á Alþingi síðar í vikunni.

Handboltalöggur Norðurlandameistarar

Handboltalið lögreglunnar á Íslandi varð norðurlandameistari í handbolta um helgina eftir að þeir sigruðu Noreg í æsispennandi leik. Mótið var haldið hér á Íslandi og meðal áhorfenda var Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að handboltalið lögreglunnar hafi staðið sig ótrúlega vel.

Borgarahreyfing: Framkvæmdarstjóri vill 7.7 milljónir

Framkvæmdarstjóri Borgarahreyfingarinnar vill 7.7 milljónir fyrir störf sín en launakröfuna lagði hann fram á félagafundi hreyfingarinnar í gærkvöldi. Það er Jóhann Kristjánsson sem gegnir starfi framkvæmdarstjóra.

Forsætisráðherra: Munnleg skýrsla um efnahagshorfur

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun síðar í dag flytja munnlega skýrslu um efnahagshorfur á Alþingi. Skýrslan er flutt að beiðni þingflokks sjálfstæðismanna. Fyrirkomulagið á umræðunni er á þann veg að forsætisráðherra flytur fimmtán mínútna langa framsögu og í framhaldinu munu aðrir flokkar fá 10 mínútur hvort fyrir talsmenn sína í fyrstu umferð og fimm mínútur í annari og þriðju umferð. Við lok umræðunnar hefur forsætisráðherra síðan fimm mínútur til þess að veita andsvar.

Inflúensufundur hafinn

Sameiginlegur fundur er hafin hjá sóttvarnalækni og lögreglustjóra en hann hófst í hádeginu. Þar er yfir viðbragðsáætlanir vegna Svínaflensunnar. Fundurinn var boðaður áður en maður sem kom nýlega frá New York smitaður af flensunni, greindist.

Fréttastofa braut ekki siðareglur

Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur úrskurðað að fréttastofa Stöðvar 2 hafi ekki gerst brotleg við siðareglur félagsins í umfjöllun um Minna mál Ágústu Johnsen og Mylluna í frétt og fréttaskýringu sem birtust þann 11. febrúar síðastliðinn.

Niu ára í öndunarvél eftir bílslys

Níu ára gamall drengur sem varð fyrir bíl á fimmtudag liggur enn þungt haldinn í öndunarvél. Slysið varð rétt fyrir klukkan tvö í Steinási í Garðabæ. Í fyrstu var talið að meiðsl hans væru minniháttar. Við ítarlegri rannsóknir á Landspítalanum komu í ljós alvarlegir höfuðáverkar. Hann gekkst þá undir aðgerð og hefur verið í öndunarvél síðan.

Nálastungulæknir í mál við Landlæknaembættið

Nálastungulæknirinn Ríkharður Mar Jósafatsson hefur stefnt Landlæknaembættinu fyrir að veita tæplega hundrað sjúkraliðum, ljóðsmæðrum og hjúkrunarfræðingum starfsleyfi í nálarstungum. Sjálfur lærði Ríkharður nálastungufræðin í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum en honum hefur ítrekað verið synjað um starfsleyfi þar sem hann er ekki hluti af viðurkenndri heilbrigðisstétt.

Sérsveitarmenn og lögreglan á Akureyri tóku töluvert magn fíkniefna

Lögreglan á Akureyri lagði hald á rúmlega 60 e-töflur, tæp 10 grömm af kókaíni og svipað magn af amfetamíni auk smáræðis af hassi í fjórum aðskildu málum um síðustu helgi. Þá lagði lögregla hald á peninga sem taldir eru vera ágóði af fíkniefnasölu. Þrír ökumenn voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Össur fordæmir kjarnorkutilraunir harðlega

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir jákvætt hversu mjög alþjóðasamfélagið hafi sameinast í sterkri fordæmingu á kjarnorkutilraun Norður-Kóreumanna. Íslensk stjórnvöld fordæmi hana harðlega.

MND félagið gefur út hljóðbók

MND félagið hefur gefið út hljóðbókina, Björt framtíð í því augnamiði að auka mótvægi við slæmum fréttum sem hafa dunið á íslensku þjóðinni undanfarna mánuði. Bókin er safn greina eftir fimmtíu höfunda og er von félagsins að hún auki ánægju og vellíðan þjóðarinnar.

Áfrýjunarnefnd staðfestir brot Bændasamtakanna

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins frá 6. mars síðastliðnum að Bændasamtök Íslands hafi brotið gegn samkeppnislögum með aðgerðum sem miðuðu að því að hækka verð á búvörum. Áfrýjunarnefndin taldi þó við hæfi að lækka sekt sem lögð var á samtökin, í sjö og hálfa milljón króna, en Samkeppniseftirlitið hafði áður sektað samtökin um tíu milljónir.

Háloftaslys: Einstakt tilfelli

„Menn komast alveg upp í þriggja kílómetra hæð á svifvængnum," segir formaður Fisfélags Reykjavíkur, Ágúst Guðmundsson, en liðsmaður félagsins varð næstum fyrir farþegaþotu þar síðustu helgi.

Skyldmenni mannsins ekki smituð

Niðurstöður úr alls sex sýnum, sem tekin voru til rannsóknar síðastliðinn föstudag og laugardag frá einstaklingum sem grunur lék á að hefði smitast af inflúensu A (H1N1), sýna að þeir eru ekki sýktir af hinni nýju inflúensu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sóttvarnarlækni og Almannavarnanefnd.

Ólafur vill lækka hámarkshraða

„Ég tel að taka þurfi kröftuglega til hendinni til að fækka slysum og eyða svartblettum í allri borginni í samræmi við tillögur mínar í borgarráði á meðan ég gegndi starfi borgarstjóra...," segir Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans og óháðra, en hann hyggst leggja fram tillögu á fundi borgarráðs næsta fimmtudag að hluta Hringbrautar og Háaleytisbraut verði breytt í þrjátíu kílómetra kafla.

Sjálfstæðisflokkurinn 80 ára í dag

Sjálfstæðisflokkurinn fagnar í dag 80 ára afmæli sínu en flokkurinn var formlega stofnaður 25. maí árið 1929 þegar Frjálslyndi flokkurinn og Íhaldsflokkurinn sameinuðust undir merkjum Sjálfstæðisflokksins. Fyrsti formaður flokksins var Jón Þorláksson verkfræðingur. Sjálfstæðisflokkurinn er næstelsti starfandi stjórnmálaflokkur á Íslandi, en Framsóknarflokkurinn var stofnaður 1916.

Reglusemi skilyrði skotvopnaleyfis

Sett verða skilyrði um reglusemi til að fá skotvopnaleyfi, samkvæmt drögum nefndar að frumvarpi til nýrra vopnalaga. Þetta kemur fram í athugasemum við frumvarpið sem birtar eru á heimasíðu Skotíþróttasambands Íslands.

Karfavertíð hafin af krafti

Árleg karfavertíð er nú hafin af fullum krafti á Reykjaneshrygg og afla íslensku togararnir vel. Þar eru nú 16 íslenskir togarar að veiðum, um 30 sjómílur innan við 200 mílna fiskveiðilögsögumörkin, en 24 erlendir togarar eru að veiðum rétt utan við lögsögumörkin.

Kalla eftir frekari aðgerðum

„Okkur finnst þetta hrikalegt,“ segir Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Háskóla Íslands, aðspurður um viðbrögð við frétt blaðsins í gær um að um 2.300 manns fái ekki vinnu hjá Reykjavíkurborg næsta sumar. Stærsti hlutinn er framhalds- og háskólanemar.

Ekki farið gegn vilja kennara

„Það verður ekki farið fram gegn vilja kennara í þessum efnum. Það er mikilvægt að allar svona aðgerðir séu ákveðnar í góðri sátt og við munum ræða málin á þeim nótum,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Katrín fundar í dag með fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) um hugmyndir þeirra um tímabundna fækkun lögbundinna skóladaga grunnskólanemenda.

150 plöntur í 101 Reykjavík

Kannabisræktun var stöðvuð í íbúð í miðbæ Reykjavíkur um miðjan dag á föstudag. Við húsleit fundust um 150 kannabisplöntur. Helmingur þeirra var á lokastigi ræktunar.

Ekkert hótelfyrirtæki boðið samstarf

„Allar athuganir okkar af þessu tagi eru reistar á grun um brot á samkeppnislögum,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sem á miðvikudag í síðustu viku aflaði gagna með húsleitarheimild á skrifstofum þriggja hótelrekanda.

Flatskjá stolið í Gerðubergi

Innbrotstilfelli voru 22 um helgina hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Brotist var inn í bíla, fyrirtæki og heimahús. Ekki var um nein stórinnbrot að ræða. Mikið hefur verið um innbrot á höfuðborgarsvæðinu undanfarið.

Arðsemismat stendur þótt aðstæður breytist

Arðsemismat eigin fjár vegna Kárahnjúkavirkjunar verður ekki endurskoðað þrátt fyrir að forsendur hafi breyst gríðarlega undanfarið með lækkandi álverði. Matinu var breytt í janúar í fyrra þar sem álverð hafði hækkað umtalsvert. Í desember sagði Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, í samtali við Fréttablaðið ekki ólíklegt að matið yrði endurskoðað. Það verður ekki.

Nýtt nafn samþykkt

Almannaheill, samtök þriðja geirans, er nýtt nafn á regnhlífarsamtökum almannaheillasamtaka, sem samþykkt var á aðalfundi samtakanna 19. maí síðastliðinn. Þau hétu áður Samtökin almannaheill.

Húsið verði fjölnota listahús

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur hreyft þeirri hugmynd að Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verði nýtt betur með því að fá sem flestar listgreinar þangað inn. Hluti af þessu endurmati sé að flytja Íslenska dansflokkinn og Íslensku óperuna þangað. Með því sparist annað húsnæði. Þá sé einboðið að fá þurfi samstarfsaðila í reksturinn.

Gaf Færeyingum ævistarfið

„Það var bara mjög góð tilfinning að sjá á eftir þessu til þeirra,“ segir Magnús Magnússon kvikmyndagerðarmaður, sem gaf færeysku þjóðinni nær allt ævistarf sitt; það eru sextíu heimildarmyndir og þættir.

Fyrningarleið ógnar búsetu

„Áform stjórnvalda um fyrningarleið valda óvissu um starfsgrundvöll sjávarútvegsins til framtíðar og leggst bæjarráð Fjarðabyggðar því eindregið gegn þeim,“ segir í ályktun bæjarráðs Fjarðabyggðar sem segir það vera hlutverk stjórnvalda að hlúa að starfsumhverfi sjávarútvegs og sníða annmarka af fiskveiðistjórnunarkerfinu.

Sjá næstu 50 fréttir