Deilan um þingflokksherbergi framsóknarmanna sett í salt 25. maí 2009 19:45 Frá þingflokksfundi framsóknarmanna í þingflokksherberginu umdeilda. Mynd/Stefán Karlsson
Störf aðstoðarmanna þingmanna verða lögð niður samkvæmt ákvörðun forsætisnefndar Alþingis í morgun. Þá hefur deilan um þingflokksherbergi Framsóknarmanna verið sett í salt fram að haustþingi. Forseti Alþingis hefur ákveðið að ekki verði ýtt við Framsóknarmönnum í þingflokksherbergi þeirra á sumarþingi, svo þeir fá að vera í fundarherbergi sínu að minnsta kosti fram á haust. En fyrri forseti Alþingis ákvað að þeir skyldu víkja fyrir stærri þingflokki Vinstri grænna sem sprengt hefur utan af sér sína fundaraðstöðu.Alþingi sparar 50 milljónir Réttur þingmanna í landsbyggðarkjördæmunum til að ráða sér aðstoðarmenn hefur verið umdeildur frá upphafi. En það er ekki ástæðan fyrir því að þessi réttur er afnuminn nú. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir forseti Alþingis segir ástand efnahagsmála meginástæðu þess að aðstoðarmannakerfið sé nú aflagt. En einnig hefur gætt óánægju með kerfið þar sem það mismunaði þingmönnum eftir kjördæmum, því þingmenn í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi áttu ekki rétt á að ráða sér aðstoðarmenn. Ásta Ragnheiður segir að Alþingi muni spara um 50 milljónir króna með þessari ákvörðun. Ekki þurfi að segja neinum upp störfum vegna þessa þar sem samningar við aðstoðarmenn hafi verið lausir. En samningar aðstoðarmanna urðu sjálfkrafa lausir við þingrof og kosningar, en aðstoðarmenn fá biðlaun í þrjá mánuði.
Tengdar fréttir Vill leggja niður aðstoðarmannakerfi þingmanna Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, telur að leggja eigi niður aðstoðarmannakerfi landsbyggðarþingmanna. Hún hefur beint því til þingmanna að þeir ráði sér ekki aðstoðarmenn. Forsætisnefnd tekur ákvörðun um málið eftir helgi. 20. maí 2009 10:54 Einar Skúlason: Vinstri grænir vilja ekki í gömlu Moggahöllina Skrifstofustjóri Framsóknarflokksins, Einar Skúlason, segir Vinstri græna einnig eiga í herbergjakrísu líkt og þeir sjálfir í grein sem hann ritar á Pressuna. 22. maí 2009 13:03 Sigmundur vildi frekar ræða herbergjaskipan en ESB Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, vildi heldur ræða herbergjaskipan þingflokka í húsakynnum Alþingis en þingsályktunartillögu um aðildarviðræður á fundi formanna stjórnarflokkanna og forystumanna stjórnarandstöðuflokkanna í gær. Þetta segir Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar. Hún segir að þetta hafi komið sér verulaga á óvart. 14. maí 2009 13:49 Mörg mál brýnni en herbergjaskipan á Alþingi Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, undrast þá athygli sem herbergjaskipan á Alþingi hefur fengið að undanförnu. Hann telur mun brýnna að stjórnarflokkarnir ræði mál sem varði heimilin og fyrirtækin í landinu. Gunnar viðurkennir að herbergið er tilfinningalega tengt Framsóknarflokknum. 22. maí 2009 11:00 Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira
Vill leggja niður aðstoðarmannakerfi þingmanna Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, telur að leggja eigi niður aðstoðarmannakerfi landsbyggðarþingmanna. Hún hefur beint því til þingmanna að þeir ráði sér ekki aðstoðarmenn. Forsætisnefnd tekur ákvörðun um málið eftir helgi. 20. maí 2009 10:54
Einar Skúlason: Vinstri grænir vilja ekki í gömlu Moggahöllina Skrifstofustjóri Framsóknarflokksins, Einar Skúlason, segir Vinstri græna einnig eiga í herbergjakrísu líkt og þeir sjálfir í grein sem hann ritar á Pressuna. 22. maí 2009 13:03
Sigmundur vildi frekar ræða herbergjaskipan en ESB Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, vildi heldur ræða herbergjaskipan þingflokka í húsakynnum Alþingis en þingsályktunartillögu um aðildarviðræður á fundi formanna stjórnarflokkanna og forystumanna stjórnarandstöðuflokkanna í gær. Þetta segir Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar. Hún segir að þetta hafi komið sér verulaga á óvart. 14. maí 2009 13:49
Mörg mál brýnni en herbergjaskipan á Alþingi Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, undrast þá athygli sem herbergjaskipan á Alþingi hefur fengið að undanförnu. Hann telur mun brýnna að stjórnarflokkarnir ræði mál sem varði heimilin og fyrirtækin í landinu. Gunnar viðurkennir að herbergið er tilfinningalega tengt Framsóknarflokknum. 22. maí 2009 11:00