Húsið verði fjölnota listahús 25. maí 2009 04:00 Verið er að kanna möguleika á því að koma sem flestum listgreinum inn í húsið. Þannig megi spara með samlegðaráhrifum og einnig losni húsnæði annars staðar.fréttablaðið/vilhelm
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur hreyft þeirri hugmynd að Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verði nýtt betur með því að fá sem flestar listgreinar þangað inn. Hluti af þessu endurmati sé að flytja Íslenska dansflokkinn og Íslensku óperuna þangað. Með því sparist annað húsnæði. Þá sé einboðið að fá þurfi samstarfsaðila í reksturinn. „Við viljum nýta húsið eins vel og mögulegt er, ekki bara tónlistarhlutann, heldur einnig ráðstefnuhlutann. Þar eru möguleikar á tekjuöflun,“ segir Katrín. Stefán Baldursson óperustjóri segist hafa skoðað aðstöðuna í Tónlistarhúsinu og lítist nokkuð vel á. „Ráðuneytið og Austurhöfn leituðu til okkar og með tilliti til kringumstæðna ákvað stjórnin að taka mjög jákvætt í erindið. Okkur sýnist að óperuhús í Kópavoginum ýtist inn í framtíðina og þó að húsið við höfnina sé ekki hannað fyrir óperu- og sviðslistir er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi.“ Stefán segir óperuna hafa unnið greiningu á sínum grunnþörfum. Þar á bæ séu menn jákvæðir, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Íslenska óperan á Gamla bíó. Stefán segir ekki tímabært að velta því fyrir sér hvað verði um það hús ef af þessu yrði. Ása Richardsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins, segir málið á umræðustigi. Aðstæður og teikningar hafi verið skoðaðar, en ekki ein króna verið nefnd. „Það var ekki gert ráð fyrir dansflokki í húsinu í upphafi, þannig að augljóst er að gera verður einhverjar breytingar ef mæta á þörfum hans. Aðalmálið hlýtur að vera hvað þær kosta og hverjir hinir listrænu möguleikar eru.“ Dansflokkurinn hefur sýnt í Borgarleikhúsinu í 200 og 500 manna sal. Ása segir ljóst að 1800 manna salur sé allt of stór, nema fyrir stór samstarfsverkefni. Hún segir að vissulega geti skapast möguleikar með flutningi. „Við getum þó ekki svarað því hvernig okkur líst á þetta fyrr en við höfum fengið svör við því hvernig starfsemin yrði og sérstaklega hvað þetta mundi kosta.“ Anna Kristín Einarsdóttir, tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, segist spennt fyrir því að fá fleiri í húsið. „Þetta er bara jákvætt. Fyrir mitt leyti hefur mér alltaf þótt skrítið að óperan væri ekki með og hef tröllatrú á samstarfi og að allir nýti þetta flotta hús.“- kóp katrín jakobsdóttir
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Innlent Fleiri fréttir Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Sjá meira