Áfrýjunarnefnd staðfestir brot Bændasamtakanna 25. maí 2009 11:53 Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins frá 6. mars síðastliðnum að Bændasamtök Íslands hafi brotið gegn samkeppnislögum með aðgerðum sem miðuðu að því að hækka verð á búvörum. Áfrýjunarnefndin taldi þó við hæfi að lækka sekt sem lögð var á samtökin, í sjö og hálfa milljón króna, en Samkeppniseftirlitið hafði áður sektað samtökin um tíu milljónir. Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu kemur fram að brotið hafi átt sér stað í tengslum við Búnaðarþing sem haldið var í mars 2008. „Var brotið talið snúa að búvörum sem ekki lúta opinberri verðlagningu skv. búvörulögum, s.s. kjúklingum, eggjum, grænmeti og svínakjöti. Vegna þessa brots var BÍ gert að greiða 10.000.000 kr. stjórnvaldssekt og lagt fyrir BÍ að grípa til aðgerða til þess að koma í veg fyrir að samskonar brot verði endurtekin." Bændasamtökin skutu málinu til áfrýjunarnefndar samkeppnismála því samtökin töldu sig ekki hafa brotið samkeppnislög og héldu því fram að aðgerðir þeirra falli ekki undir ákvæði samkeppnislaga. „Hafa BÍ í því sambandi vísað til ákvæða búvörulaga. Samkeppniseftirlitið hefur hins vegar byggt á því að samkeppni sé ætlað að tryggja hagsmuni almennings varðandi þær búvörur sem ekki lúta opinberri verðlagningu. Í málinu reyndi því á mikilvæg álitaefni varðandi samspil búvörulaga og samkeppnislaga," segir einnig. Áfrýjunarnefndin segir að verðlagning búvara sem ekki eru verðlagðar á grundvelli búvörulaga lúti „lögmálum hins frjálsa markaðar og þar með ákvæðum samkeppnislaga eins og samkeppnisyfirvöld hafa staðfest hvað eftir annað með úrskurðum þar að lútandi." Staðfesti nefndin einnig að BÍ hafi brotið gegn samkeppnislögum með aðgerðum sem miðuðu að því að hækka verð á búvörum og taldi nefndin að um óvéfengjanlegt lögbrot hafi verið að ræða. „Áfrýjunarnefnd samkeppnismála taldi hæfilegt að lækka sekt BÍ í sjö og hálfa milljón kr. Var í því sambandi vísað til þess að um fyrsta brot BÍ væri að ræða og að opinskáar umræður hefði lengi viðgengist á vettvangi BÍ án afskipta. Áfrýjunarnefnd taldi fyrirmæli Samkeppniseftirlitsins til BÍ um aðgerðir til að koma í veg fyrir að samskonar brot verði endurtekin of almenn og felldi þau úr gildi. Mun Samkeppniseftirlitið í kjölfar þessa úrskurðar setja sig í samband við BÍ til að tryggja að settar verði skýrar vinnureglur sem tryggi að á vettvangi BÍ eigi sér ekki aftur stað ólögmætt verðsamráð."
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Innlent Fleiri fréttir Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Sjá meira