Innlent

Reglusemi skilyrði skotvopnaleyfis

Sett verða skilyrði um reglusemi til að fá skotvopnaleyfi, samkvæmt drögum nefndar að frumvarpi til nýrra vopnalaga. Þetta kemur fram í athugasemdum við frumvarpið sem birtar eru á heimasíðu Skotíþróttasambands Íslands. Í athugasemdunum segir meðal annars að óregla og skotvopnaleyfi geti ekki með nokkru móti farið saman. Óreglu megi staðreyna með lögregluskýrslum, læknisvottorðum og og öðrum sönnunargögnum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×