Innlent

Flatskjá stolið í Gerðubergi

Innbrotstilfelli voru 22 um helgina hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Brotist var inn í bíla, fyrirtæki og heimahús. Ekki var um nein stórinnbrot að ræða. Mikið hefur verið um innbrot á höfuðborgarsvæðinu undanfarið.

Meðal annars var brotist inn í menningarmiðstöðina Gerðuberg í Breiðholti og flatskjá stolið aðfaranótt laugardags um klukkan þrjú. Einnig var brotist inn í Aktu taktu í Garðabæ, í fyrirtæki á Krókhálsi og í heimahús í Miðhrauni, Hafnarfirði. - vsp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×