Innlent

Á þriðja þúsund stúdenta sækja sumarskóla

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Katrín Jakobsdóttir segir að á þriðja þúsund nemar verði við nám í háskólunum í sumar. Mynd/ GVA.
Katrín Jakobsdóttir segir að á þriðja þúsund nemar verði við nám í háskólunum í sumar. Mynd/ GVA.
Á þriðja þúsund háskólastúdenta hafa sótt um fá fá að stunda nám við háskólana í sumar samkvæmt nýjustu tiltæku upplýsingum í menntamálaráðuneytinu. Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra á Alþingi í dag.

Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði ráðherra til hvaða úrræða yrði gripið til að styðja atvinnulausa nemendur í framhaldsskóla á meðan sumarleyfi standa yfir. Katrín Jakobsdóttitr svaraði því til að unnið hefði verið að úrræðum ásamt sveitarfélögunum. Sveitarfélögin myndu ráða sama fjölda í sumarstörf og árin áður og flest benti til þess að atvinnuástandið fyrir þennan aldurshóp yrði verst á höfuðborgarsvæðinu.

Katrín sagði að unnið væri að því með framhaldsskólanemum að finna úrræði innan skólana, fyrir atvinnulausa framhaldsskólanema, sem yrðu þá sennilegast ekki launuð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×