Nálastungulæknir í mál við Landlæknaembættið 25. maí 2009 12:37 Umdeildar nálastungur.
Nálastungulæknirinn Ríkharður Mar Jósafatsson hefur stefnt Landlæknaembættinu fyrir að veita tæplega hundrað sjúkraliðum, ljóðsmæðrum og hjúkrunarfræðingum starfsleyfi í nálarstungum. Sjálfur lærði Ríkharður nálastungufræðin í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum en honum hefur ítrekað verið synjað um starfsleyfi þar sem hann er ekki hluti af viðurkenndri heilbrigðisstétt. „Ég vil afturkalla leyfi heilbrigðisstarfsmannanna til nálarstungu," segir Ríkharður sem hefur þurft að heyja ótrúlega baráttu síðan hann kom til Íslands með nálarstungumenntun sína sem hann kláraði árið 1993. Árið 1999 var hann ákærður og dæmdur fyrir skottulækningar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þá hafði hann auglýst þjónustu sína í Morgunblaðinu. Hæstiréttur sýknaði hann af skottulækningadóminum ári síðar og snéri alfarið dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Í dómnum kom fram að Ríkharður hefði í engu reynt að blekkja fólk með því að halda því fram að hann væri læknir. Árið 2006 höfðaði Ríkharður mál á hendur íslenska ríkinu þar sem hann krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu þess en hann hélt því fram að synjun Landlæknis á starfsleyfi hafi verið óheimil og með því hafi landlæknir brugðið fæti fyrir atvinnustarfsemi sína. Hæstiréttur sýknaði ríkið af kröfunni. Og enn heldur Ríkharður áfram baráttu sinni. Hann er ósáttur við að Landlæknir veiti starfsmönnum heilbrigðisgeirans leyfi til þess að stunda nálarstungur. Ríkharður heldur því fram að starfsfólkið mæti eingöngu á þriggja til sex daga námskeið. Sjálfur nam hann nálarstungufræðin í þrjú ár í Bandaríkjunum til þess að fá prófgráðu sína. Sú gráða er ekki viðurkennd á Íslandi og þá skiptir engu þó námið hafi verið lánshæft hjá lánasjóði íslenskra námsmanna þegar hann lagði stund á fræðin. Að sögn Ríkharðs eru fleiri menntaðir nálarstungufræðingar í sömu sporum og hann. Þeir hafa lagt stund á nám sitt víðsvegar um veröldina, en vegna þess að þeir tilheyra ekki hinni íslensku heilbrigðisstétt þá fá þeir ekki starfsleyfi þrátt fyrir margra ára nám. „Með þessum leyfum er Landlæknir að búa til skottulækningar innan nálarstungugeirans," segir Ríkharður Mar en mál hans var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Lögfræðingur hans er Dögg Pálsdóttir en ekki náðist í hana við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Sjá meira