Innlent

Sykurskattur tilraunarinnar virði

Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs og fyrrverandi landlæknir, líst vel á hugmyndir um sérstakan sykurskatt.
Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs og fyrrverandi landlæknir, líst vel á hugmyndir um sérstakan sykurskatt. Mynd/Haraldur Jónasson
„Ég held að það sé tilraunarinnar virði að gera eitthvað í þessa veru," segir Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs og fyrrverandi landlæknir, um umdeildar hugmyndir um sérstakan sykurskatt.

Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, hefur sagst vilja leggja sykurskatt á gosdrykki til að bregðast við sykurneyslu og slæmri tannheilsu ungmenna. Ekki er allir sáttir við tillöguna og til að mynda hafa Samtök iðnaðarins gagnrýnt hana harðlega.

Sigurður sagði í Kastljósi fyrr í kvöld að það væri vel þess virði að íhuga sértakan sykurskatt hafi yfirvöld vaxandi áhyggjur af ofþyngd barna og versnandi tannheilsu þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×