Samdráttur ríkissjóðs 67 milljarðar Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 25. maí 2009 18:40
Tekjur ríkissjóðs munu skreppa saman um nærri 67 milljarða króna á þessu ári, sem samsvarar nánast kostnaðinum við að reka alla framhaldsskóla, háskóla og löggæslu landsins. Ríkissjóður gildnaði í góðærinu en þegar heimilin eru farin að halda að sér höndum og fyrirtæki mörg í kröggum bitnar það beint á okkar sameiginlega sjóði. Strax fyrstu þrjá mánuði ársins kom sex milljörðum minna í kassann heldur en á sama tíma í fyrra. Laun hafa víða lækkað í samfélaginu, því hafa tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti einstaklinga dregist saman um 1,3% - en öllu meiri er samdrátturinn vegna tekjuskatts fyrirtækja, eða 20,1%. Lægri tekjur og hærri afborganir þýðir að minna er keypt. Ríkið innheimtir virðisaukaskatt af öllu mögulegu, allt frá mjólkurpotti að hótelherbergjum. Virðisaukaskatturinn skilaði ríkissjóði 18,4% minna nú en í fyrra, eða rúmum sex milljörðum. Bílasala hefur hrunið og ríkissjóður fékk því 90,7% minna í kassann af vörugjöldum bíla fyrstu 3 mánuði ársins. Við fyrstu sýn virðist landinn lítið hafa dregið af sér í kaupum á áfengi og tóbaki en þegar nánar er rýnt í tölurnar kemur í ljós að tekjur ríkisins af sopanum dýra hefur minnkað öllu meira en reyknum skaðlega, eða nærri sjö prósent. Tekjur ríkissjóðs í fyrra voru um 465 milljarðar en áætlaðar tekjur þessa árs eru tæpir 398 milljarðar króna. Munurinn er tæpir 67 milljarðar. Til að glöggva sig á tölunum má minna á að það kostar ríkið liðlega þessa upphæð að reka allra framhalds- og háskóla landsins og löggæsluliðið allt. Hins vegar er þetta aðeins um 60% af þeirri upphæð sem Kaupþing sá sér fært að veita kaupsýslumanninum Robert Tchenguiz í yfirdrátt.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira