Innlent

Fyrningarleið ógnar búsetu

Á Norðfirði Sátt næst ekki með fyrningarleið segir bæjarráð Fjarðabyggðar.
Á Norðfirði Sátt næst ekki með fyrningarleið segir bæjarráð Fjarðabyggðar.

„Áform stjórnvalda um fyrningarleið valda óvissu um starfsgrundvöll sjávarútvegsins til framtíðar og leggst bæjarráð Fjarðabyggðar því eindregið gegn þeim,“ segir í ályktun bæjarráðs Fjarðabyggðar sem segir það vera hlutverk stjórnvalda að hlúa að starfsumhverfi sjávarútvegs og sníða annmarka af fiskveiðistjórnunarkerfinu.

„Sátt verður ekki náð með umbyltingu eins og þeirri sem boðuð er með fyrningarleið,“ segir bæjarráðið og varar við aðgerðum sem „veikt geta starfsgrundvöll sjávarútvegsins og stefnt búsetu í óvissu.“ - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×