AGS: Áhyggjur af samstöðuskorti Íslendinga 25. maí 2009 16:43 Mark Flanagan.
Fulltrúar Samstöðu, bandalags grasrósarhreyfinga, hittu í dag í annað sinn fulltrúa Alþjóðgjaldeyrissjóðsins en fyrri fundurinn átti sér stað þann 10. mars síðastliðinn. Í tilkynningu frá bandalaginu segir að í máli þeirra Franeks Roswadovski og Marks Flanagan, fulltrúum AGS, hafi komið fram að þeir hafi áhyggjur af því að samstöðu skorti í þjóðfélaginu um aðgerðir og markmið í efnahagsmálum þjóðarinnar. Af hálfu Samstöðu sátu fundinn þau Heiða B Heiðarsdóttir,Sigurlaug Ragnarsdóttir og Árni Daníel Júlíusson. „Rætt var um aðkomu AGS að íslensku efnahagskreppunni. Aðgerðaráætlun AGS og ríkisstjórnarinnar miðar að þremur þáttum; Endurreisn banka, endurreisn gjaldmiðilsins og að gera ríkisfjárhaginn sjálfbærann, þ.e að ná jafnvægi í ríkismálum," segir í tilkynningu frá Samstöðu. „Í lok þessa árs mættum við gera ráð fyrir að hafa náð botni efnahagskreppunnar. En síðara hluta árs 2010 myndum við fara að sjá merki um bata og strax 2011 yrði efnahagskerfið komið í gang að ný." Uppgjör bankanna tekið lengri tíma en upphaflega stóð til Þá segir að fram hafi komið hjá AGS fulltrúunum að uppgjör bankanna sem hrundu hefði tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir. „Í raun mætti að segja að þessa tæpa átta mánuði sem liðnir eru frá hamförunum hefði lítið þokast í aðgerðaráætlun stjórnvalda og AGS." „Fulltrúar AGS höfðu af því áhyggjur að samstöðu skorti í samfélaginu um aðgerðir og markmið í efnahagsmálum. Gott væri ef núverandi stjórn gæti náð tökum á ástandinu. Hún hefur nú þingmeirihluta og umboð frá kjósendum. Fram kom hjá fulltrúum AGS að þeir teldu að því fyrr sem til aðgerðanna kæmi, hversu sársaukafullar sem þær vafalaust verða fyrir þjóðina fyrstu mánuðina, því fyrr myndi birta á ný í efnahagsmálum þjóðarinnar," segir ennfremur. Hlógu að ummælum Brown Fulltrúar Samstöðu spurðu þá Roswadovski og Flanagan um umdeilda stýrivaxtastefnu peningastefnunefndar. „Fulltrúar AGS sögðust telja að til að ná jafnvægi á útflutningstekjum þjóðarinnar og koma í veg fyrir algjört hrun á innflutningi til landsins væri nauðsynlegt að halda stýrivöxtum háum um stundarsakir auk gjaldeyrishafta. Þá var tæpt á fullyrðingum breska forsætisráðherrans Gordons Brown um samskipti breska forstætisráðuneytisins við AGS varðandi Icesave. „Þeim virtist skemmt og fullyrtu að slík samskipti hefðu aldrei átt sér stað og myndu aldrei eiga sér stað," segja samstöðumenn.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira