Innlent

Nýtt nafn samþykkt

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra ávarpaði aðalfund samtakanna. fréttablaðið/stefán
Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra ávarpaði aðalfund samtakanna. fréttablaðið/stefán

Almannaheill, samtök þriðja geirans, er nýtt nafn á regnhlífarsamtökum almannaheillasamtaka, sem samþykkt var á aðalfundi samtakanna 19. maí síðastliðinn. Þau hétu áður Samtökin almannaheill.

Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra ávarpaði fundinn og ítrekaði ásetning ríkisstjórnarinnar um samráð áður en gerðar yrðu breytingar á almannaþjónustu.

Samtals eiga nú nítján samtök aðild að Almannaheillum. Samtökin vinna að sameiginlegum hagsmunamálum og einbeita sér að því að vinna að endurskoðun á lögum um félagasamtök og efla ímynd þeirra meðal almennings. Almannaheill eiga nú aðild að nefnd sem félagsmálaráðherra hefur sett á laggirnar um heildarendurskoðun á lögum um félagasamtök.

Formaður stjórnar Almannaheilla er Guðrún Agnarsdóttir.- kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×