Innlent

Hægt verður að ættleiða börn frá Póllandi og Togo

Allt bendir til þess að Íslendingar í ættleiðingarhugleiðingum geti fljótlega leitað til Póllands. Félagið Alþjóðleg ættleiðing mun væntanlega byrja að taka á móti umsóknum vegna þessa strax í sumar.

Alþjóðleg ættleiðing vill fjölga samstarfslöndum vegna ættleiðingar til Íslands. Félagið var stofnað síðasta haust og hefur nú komið sér fyrir í gamla Saltfélagshúsinu á Granda.

Birna Ósk Einarsdóttir, formaður Alþjóðlegrar ættleiðingar, segir að fólki sé velkomið að senda fyrirspurnir og hafa samband gegnum síma eða tölupóst.

„Við hvetjum alla til að hafa samband ef þeir vilja kynna sér þetta betur."

„Við sáum að reynsla annarra landa í kringum var góð af því að ættleiða börn frá Póllandi," segir Birna Ósk

Á næstu vikum fara félagsmenn út til Póllands til að ganga frá því hvernig samstarfinu verður nákvæmlega háttað. Ásamt Póllandi er einnig unnið að samstarfi við Kenía og Togo í Afríku.

Samkynhneigðum pörum hefur ekki verið kleift að ættleiða hingað til. En hver er afstaða nýja félagsins til ættleiðingar samkynhneigðra?

„Ég held að við séum öll sammála um það að það eigi allir að hafa sama rétt til að eignast barn. Það sem er vandamálið er að löndin sem gefa frá sér börn til ættleiðingar eru mörg hver ekki fylgjandi því að samkynhneigðir ættleiði börn," segir Birna Ósk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×