Innlent

150 plöntur í 101 Reykjavík

Mynd/Úr safni
Kannabisræktun var stöðvuð í íbúð í miðbæ Reykjavíkur um miðjan dag á föstudag. Við húsleit fundust um 150 kannabisplöntur. Helmingur þeirra var á lokastigi ræktunar.

Karlmenn á fertugsaldri játuðu aðild að málinu. Mennirnir hafa áður komið við sögu lögreglu. Telur lögreglan málið upplýst.

Málið er liður í sameiginlegum aðgerðum lögreglunnar til að hamla sölu og dreifingu fíkniefna. Margar verksmiðjur hafa verið upprættar á undanförnum mánuðum.- vsp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×