Innlent

Ekki farið gegn vilja kennara

Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jakobsdóttir
„Það verður ekki farið fram gegn vilja kennara í þessum efnum. Það er mikilvægt að allar svona aðgerðir séu ákveðnar í góðri sátt og við munum ræða málin á þeim nótum,“ segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra. Katrín fundar í dag með fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍS) um hugmyndir þeirra um tímabundna fækkun lögbundinna skóladaga grunnskólanemenda.

Katrín fundaði á laugardag með fulltrúum kennara um þessi mál, en Kennarasamband Íslands hefur lagst eindregið gegn hugmyndum SÍS.- kg



Fleiri fréttir

Sjá meira


×