Innlent

Kalla eftir frekari aðgerðum

Háskólatorg
Háskólatorg

„Okkur finnst þetta hrikalegt,“ segir Jóhann Már Helgason, framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Háskóla Íslands, aðspurður um viðbrögð við frétt blaðsins í gær um að um 2.300 manns fái ekki vinnu hjá Reykjavíkurborg næsta sumar. Stærsti hlutinn er framhalds- og háskólanemar.

„Við erum hins vegar komin með sumarnám við Háskólann sem við börðumst fyrir fyrr í vetur, til að sporna gegn þessu. Við köllum nú eftir frekari aðgerðum frá ríkinu og sérstaklega sveitarfélögunum til að tryggja atvinnu,“ segir Jóhann.

Félagsstofnun stúdenta rekur Atvinnumiðlun stúdenta sem auglýsir laus störf í boði. Jóhann segir að eins og með annað vanti þá stofnun fjármagn.

Hafsteinn Gunnar Hauksson, fráfarandi formaður Nemendafélags Verzlunarskóla Íslands, segir þetta koma sér illa fyrir þau ungmenni sem hafi ekki fengið vinnu annars staðar og treysti á Reykjavíkurborg um atvinnu.

„Ég finn fyrir því í kringum mig að félagar manns sem hafa getað treyst á þessa vinnu [hjá Reykjavíkurborg] undanfarin ár geta ekki treyst á þetta núna og standa jafnvel uppi atvinnulausir,“ segir Hafsteinn. - vsp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×