Innlent

Karfavertíð hafin af krafti

Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Árleg karfavertíð er nú hafin af fullum krafti á Reykjaneshrygg og afla íslensku togararnir vel. Þar eru nú 16 íslenskir togarar að veiðum, um 30 sjómílur innan við 200 mílna fiskveiðilögsögumörkin, en 24 erlendir togarar eru að veiðum rétt utan við lögsögumörkin. Eftir því sem Landhelgisgæslan kemst næst hefur ekkert svonefnt sjóræningjaskip sést á veiðislóðinni, en það eru skip, skráð undir hentifánum, og veiða utan aflaheimilda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×