Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldurinn slökktur á Tryggvagötu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í húsi við Tryggvagötu 10 rétt eftir klukkan eitt. Sjónarvottar segja að um mikinn eld hafi að ræða og Kjartan Skaptason sem leigir aðstöðu í húsinu segist halda að kveikt hafi verið í. Mikill reykur kom út um glugga og dyr hússins og voru þrír slökkviliðsbílar á svæðinu.Eftir að slökkviliðið hóf slökkvistörf gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins. 14.1.2009 13:09
Embættismenn funduðu með Robert Wade Robert Wade, stjórnmálahagfræðingur við London School of Economics fundaði í morgun með fulltrúum frá fjármála-, forsætis- og viðskiptráðuneytinu. Fundurinn stóð yfir í nærri tvær klukkustundir. 14.1.2009 13:02
Mega banna mótmælendum að hylja andlit sitt Nokkuð hefur borið á því að mótmælendur sem hafa haft sig hvað mest í frammi undanfarnar vikur og mánuði hylji andlit sitt með treflum og lambhúshettum. Hér á landi geta skapast þær aðstæður að lögreglu sé heimilt að krefjast þess að grímurnar séu teknar niður. Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir að grímurnar hafi ekki valdið lögreglu vandræðum hingað til. Hann segir mikilvægast að laga það ástand sem uppi hefur verið í stað þess að magna það. 14.1.2009 12:36
Funda um framtíð Birnu Björgvin G. Sigðurðsson viðskiptaráðherra og Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra funda með Vali Valssyni, formanni bankaráðs Glitnis nú í hádeginu, en ákveðið hefur verið að stöður bankastjóra ríkisbankanna verða auglýstar lausar til umsóknar á næstu dögum. 14.1.2009 12:12
Venus skín skært um þessar mundir Margir hafa rekið augun í stjörnu á kvöldhimninum í suðri sem hefur skinið afar skært undanfarið. Á störnufræðivefnum segir að um reikistjörnuna Venus sé að ræða en í dag kemst Venus lengst frá sólinni frá jörðu séð sem þýðir að hún nær hæstu stöðu á himninum áður en hún fer lækkandi á ný. 14.1.2009 11:57
Menn reyndu hvorki að temja sér hófsemi né fyrirhyggju Margt bendir til þess að rótleysi og lítil áhersla á grunngildi hafi dregið menn út á hálan ís í íslensku viðskiptalífi að undanförnu. Fátt bendir til dæmis til þess að menn hafi, að minnsta kosti í ákveðnum fyrirtækjum, reynt að temja sér hófsemi eða fyrirhyggju í 14.1.2009 11:52
Suðurlandsskjálftinn: 733 milljónir í styrki Íslenska ríkið mun greiða út 733 milljónir króna í styrki vegna jarðskjálftans á Suðurlandi þann 29. maí í fyrra. Stærsti hluti þess, eða 402 milljónir, fara til einstaklinga sem urðu fyrir tjóni en tryggingar ná ekki til. Þá fara 200 milljónir króna til sveitarfélaga á svæðinu vegna fyrstu viðbragða við skjálftanum. 14.1.2009 11:30
Ísland gerir ráð fyrir fleiri sjó- og mengunarslysum í norðurhöfum Ísland hefur tekið við formennskunni í Norrænu ráðherraráðinu og leggur til þar að komið verði á fót gagnabanka um siglingarleiðir í norðurhöfum. Íslenskir ráðmenn gera ráð fyrir að fleiri sjó- og mengunarslys verði á þessum slóðum í kjölfar þess að heimskautsísinn hopar stöðugt og fleiri leiðir opnast fyrir skipasiglingar. 14.1.2009 11:26
Hnífakastarinn ákærður Búið er að gefa út ákæru á hendur þriggja barna föður sem grunaður er um að hafa beitt þrjú börn sín hrottalegu ofbeldi. 14.1.2009 11:17
Hátt í 30 nýnemar í Lögregluskólanum Tuttugu og níu nýnemar hófu í gær nám á fyrstu önn grunnnámsdeildar Lögregluskóla ríkisins. Námið á önninni tekur um fjóra mánuði og í september 2009 fara nemendurnir í fjögurra mánaða starfsþjálfun í lögreglunni, eftir því sem fram kemur á vef 14.1.2009 10:26
Heildaraflinn jókst um 10% í desember Heildarafli íslenskra skipa í desember, metinn á föstu verði, var 10,0% meiri en í desember 2007. 14.1.2009 09:47
Eldur í Sjálfsbjargarhúsinu í nótt Einn var fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun eftir að eldur kviknaði út frá lampa í herbergi í Sjálfsbjargarhúsinu við Hátún í Reykjavík í nótt. 14.1.2009 08:14
Íslendingar hafa þjóða mestar áhyggjur af einkafjárhag Af 17 þjóðum hafa Íslendingar hafa mestar áhyggjur af einkafjárhag sínum, samkvæmt viðamikilli alþjóðakönnun um fjármálakreppuna. 14.1.2009 07:56
Átján ökumenn ljóslausir Lögreglan á Selfossi stöðvaði átján ökumenn í gærkvöldi þar sem ljósabúnaður á bílum þeirra var ekki í lagi. Þeir voru skrifaðir upp og gefinn frestur til lagfæringa, en ekki sektaðir að svo stöddu. 14.1.2009 07:16
Brotist inn í kaffihús á Selfossi Brotist var inn í kaffihús á Selfossi í nótt og þaðan stolið fimmtán þúsund krónum í reiðufé úr sjóðsvélinni. 14.1.2009 07:14
Ölvaðir ökumenn gerðu víðreist í nótt Ölvaður ökumaður ók út af Eyjafjarðarbraut við Akureyri í gækvöldi og hafnaði ofan í skurði. Hann slapp ómeiddur en ökumaður sem kom þar að taldi hinn óheppna ekki með fullri rænu og hringdi á lögreglu. 14.1.2009 07:12
Veikur sjómaður sóttur á þyrlu Sjómaður veiktist alvarlega um borð í íslensku fiskiskipi þegar það var statt 50 sjómílur norður af Horni síðdegis í gær. Skipstjórinn óskaði eftir aðstoð og sendi Landhelgisgæslan þyrlu eftir manninum. 14.1.2009 07:10
Lýsa áhyggjum af breytingum á rekstri St. Jósefsspítala Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar heilsugæslustöðvanna í Hafnarfirði og Garðabæ lýsa áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á rekstri Sankti Jósefsspítala í Hafnarfirði. 14.1.2009 07:08
Óviðunandi ógn við ráðherra Lögreglumenn á vettvangi tóku ekki eftir því þegar mótmælandi við Alþingishúsið veittist að forsætisráðherra eftir að hafa stjakað við lögreglumanni. Forseti Alþingis segir tilburðina vera algerlega óviðunandi. 14.1.2009 06:45
Vilja bæta fyrir skemmdir á tækjabúnaði Stöðvar 2 Hópur mótmælenda býðst til að safna fé vegna skemmda sem urðu á tækjabúnaði Stöðvar 2 við Hótel Borg þegar Kryddsíldin fór þar fram á gamlársdag. Fólkið óskar eftir upplýsingum um skemmdirnar frá óháðum aðila. Jafnframt furðar hópurinn á sig því að Ari Edwald, forstjóri 365, telji sig hafa vald til að geta sagt lögreglu til hvernig hún eigi að haga störfum sínum. Undir bréfið skrifa Agnar Kr. Þorsteinsson, Björg Sigurðardóttir og Gunnar Gunnarsson. 13.1.2009 23:04
Minnir þingmenn Samfylkingarinnar á stefnu flokksins Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, minnir flokksfélaga sína á þingi á stefnu flokksins og sérstaklega á þann hluta hennar sem fjallar um lýðræðismál. Hún segir flokksfélaga um land uggandi vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar. Hlusti kjörnir fulltrúar ekki á raddir fólksins fá þeir umboð sitt ekki endurnýjað. 13.1.2009 20:41
Alda innbrota á höfuðborgarsvæðinu Alda innbrota gengur nú yfir höfuðborgarsvæðið og er talið að um skipulagða glæpastarfsemi sé að ræða í sumum tilfellum. Versnandi efnahagur er hugsanlega hluti af vandanum, segir yfirlögregluþjónn. 13.1.2009 19:45
Fjórir sendiherrabústaðir til sölu Utanríkisráðuneytið undirbýr nú sölu á fjórum sendiherrabústöðum. Um er að ræða bústaðina í New York, Washington, London og Osló. Gert er ráð fyrir að ríkissjóður geti hagnast um 500 til 1000 milljónir króna á sölu fasteignanna. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 13.1.2009 19:45
Óvíst með framvindu Héðinsfjarðarganga Óvissa ríkir um framvindu Héðinsfjarðarganga, þar sem kostnaður við framkvæmdina hefur stóraukist. Tékkneski verktakinn Metrostav á í vandræðum með að klára verkið. 13.1.2009 18:47
Bankastjórastöður ríkisbankanna auglýstar Stöður bankastjóra ríkisbankanna verða auglýstar lausar til umsóknar á næstu dögum. Þetta var ákveðið í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar funduðu Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Árni M. Matthiesen fjármálaráðherra með formönnum bankaráða Landsbanka, Glitnis og Kaupþings í dag. Á fundinum mun hafa verið farið yfir starfsmannamál bankanna og ráðherrarnir tilkynnt formönnum bankaráðanna að það væri vilji ríkisvaldsins, sem eiganda bankanna, að stöður bankastjóranna yrðu auglýstar lausar til umsóknar. 13.1.2009 18:30
Vilja að Guðlaugur endurskoði ákvörun um St. Jósefsspítala Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar heilsugæslustöðvanna í Hafnarfirði og Garðabæ lýsa yfir áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum vegna ákvörðunar Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, um stórfelldar breytingar á starfsemi St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Starfsfólkið vill að Guðlaugur endurskoði ákvörðun sína. 13.1.2009 20:27
9000 kílómetra ferðalag fyrir ABC barnahjálp Tveir bræður leggja í næstu viku upp í níuþúsund kílómetra ferðalag þar sem tilgangurinn er að safna fé frir ABC barnahjálp. 13.1.2009 19:20
Lúðvík og Guðlaugur funduðu um St. Jósefsspítala Heilbrigðisráðherra og bæjarstjórinn í Hafnarfirði funduðu um Sánkti Jósefsspítala í dag og eru sammála um að skoða verði alla heilbrigðisþjónustuna í bænum í samhengi. Bæjarstjórinn segir spítalann mikilvægan í almennri heilbrigðisþjónustu í bænum. 13.1.2009 19:00
Örvæntingar gætir meðal umbjóðanda Vinnumálastofnunar Nýtt yfirlit Vinnumálastofnunar um stöðuna á vinnumarkaði sýnir að tæplega átta þúsund manns - eða 4,8 prósent - voru skráðir atvinnulausir í desember síðast liðnum og hafði fólki án atvinnu fjölgað um 45 prósent frá því í mánuðinum á undan. Annir eru gríðarlegar á vinnumiðlun Vinnumálastofnunar. 13.1.2009 18:51
Mótmælendur lausir úr haldi lögreglu Mennirnir tveir sem handteknir voru við Alþingi í morgun eftir að þeir brutu öryggismyndavél við húsið eru lausir úr haldi lögreglu. Þetta staðfesti varðstjóri í samtali við fréttastofu. 13.1.2009 18:09
Ingibjörg ráðlagði Sigurbjörgu fyrir borgarafundinn Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, ráðlagði Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur, stjórnsýslufræðingi, sem hélt framsögu á borgarafundinum í Háskólabíói í gær að nálgast ræðu sína á fundinum af varfærni og gæta þess að ganga ekki á faglegan heiður sinn. 13.1.2009 17:58
Sótti um stöðu saksóknara vegna bankahrunsins eftir hvatningu Ólafur Þór Hauksson, sýslumaður á Akranesi, sem Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, skipaði í dag til að gegna embætti sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins gerði það eftir hvatningu. Hann vill ekki greina frá því hvort að Björn hafi hvatt hann til að sækja um stöðuna. Dómsmálaráðherra hafði samráð við fulltrúa allra þingflokka í allsherjarnefnd Alþingis þegar hann skipaði Ólaf í starfið. Nýja starfið leggst afar vel í Ólaf. 13.1.2009 17:46
Fundar um fjárstyrki og hjálparstarf vegna jarðskjálftanna Geir H. Haarde, forsætisráðherra, mun á morgun greina frá fjárstyrkjum og hjálparstarfi til þeirra sem urðu fyrir tjóni vegna jarðskjálfanna á Suðurlandi 29. maí sem ekki fæst bætt með öðrum hætti. Geir mun greina frá þessu á fundi með blaðamönnum á Selfossi í fyrramálið. 13.1.2009 17:12
Ólafur Þór verður sérstakur saksóknari Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur í dag, að höfðu samráði við fulltrúa allra þingflokka í allsherjarnefnd Alþingis, falið Ólafi Þór Haukssyni, sýslumanni á Akranesi, að gegna embætti sérstaks saksóknara. 13.1.2009 16:11
400.000 króna sekt vegna fíkniefnaaksturs Karlmaður var dæmdur til að greiða 400.000 króna sekt í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að hafa þrisvar sinnum verið stöðvaður af lögreglu undir áhrifum fíkniefna og í eitt sinn verið farþegi í bíl sem lögregla fann fíkniefni í. Hann mætti ekki við þingfestingu málsins. 13.1.2009 15:49
Lenti með dautt á öðrum hreyflinum Lögregla og slökkvilið voru í viðbragðsstöðu á Reykjavíkurflugvelli nú fyrir stundu þegar kennsluvél kom inn til lendingar með dautt á öðrum hreyflinum. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu lenti vélin heilu og höldnu á vellinum. Götum í nágrenni við flugvöllinn var lokað af þessum sökum, meðal annars Snorrabrautin, en slökkvilið segir það ávallt gert í tilvikum sem þessum. 13.1.2009 15:39
Íslendingar til Zimbabwe vegna kólerufaraldurs Hjúkrunarfræðingarnir Hildur Magnúsdóttir og Maríanna Csillaq halda til Zimbabwe í dag og á morgun til að taka þátt í neyðaraðgerðum Rauða krossins vegna kólerufaraldurs í landinu. Þær munu starfa með neyðarteymum norska og finnska Rauða krossins. Fyrir er í Zimbabwe Huld Ingimarsdóttir sendifulltrúi Rauða krossins sem hefur stjórnað matvæladreifingu í landinu frá því í október. 13.1.2009 15:33
30% með bílalán í erlendri mynt Í nýrri skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir ASÍ er lánasamsetning íslenskra heimila skoðuð. Þar kemur fram að langflestir eða 62% eru með verðtryggt húsnæðislán í íslenskum krónum. Næst algengust eru bílalán í erlendri mynt en 30% aðspurðra eru með slík lán. 13.1.2009 15:22
Skíðasvæðið á Siglufirði opið - gott færi Skíðasvæðið á Siglufirði verður opið í dag frá kl 16-20 við frábærar aðstæður. Í tilkynningu frá skíðasvæðinu segir að verður og færi séu eins og best verði á kosið, S-gola, -6c° og heiðskírt. 13.1.2009 15:02
Stakk hníf í gegnum hendi manns Tuttugu og sjö ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir fyrir að hafa stungið mann með eldhúshnífi í hægri hönd þannig að hnífurinn fór í gegnum höndina. Sauma þurfti saman skurðinn sem hlaust af hnífnum. Ákæra gegn manninum var gefin út 22 desember en málið var þingfest í héraðsdómi í gær. Maðurinn neitaði sök við þingfestingu málsins. 13.1.2009 14:46
Býður sig fram gegn Geir Haarde Listamaðurinn Snorri Ásmundsson er búinn að taka ákvörðun um að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi í lok mánaðarins. Snorri segist ekki vera neitt sérstakur pólitíkus en telur sig geta tekið til hendinni. Hann finnur fyrir gríðarlegum stuðningi innan flokksins og segist hafa talað við stjórnmálafræðinga sem styðji við bakið á sér. 13.1.2009 14:31
Mennirnir enn í haldi lögreglu Mennirnir tveir sem handteknir voru við Alþingi í morgun eftir að þeir brutu öryggismyndavél við húsið eru enn í haldi lögreglunnar. Búist er við því að teknar verði skýrslur af mönnunum síðar í dag og þeim síðan sleppt, eins og venja er í málum af þessu tagi. 13.1.2009 13:23
Níu stöðvaðir án ökuréttinda Níu réttindalausir ökumenn voru stöðvaðir í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Að sögn lögreglu höfðu fimm þeirra þegar verið sviptir ökuleyfi og fjórir höfðu aldrei öðlast ökuréttindi. Á sama tímabili voru fimmtíu umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar en þrjú þeirra má rekja til aksturs undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. 13.1.2009 13:23
Miklar hættur í kringum okkur Það eru miklar hættur á ferðinni í nálægum löndum eins og við sjáum á viðbrögðum ríkisstjórna um allan heim, sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra eftir ríkisstjórnarfund i dag. 13.1.2009 12:34
Þingvallavegur lokaður í dag Þingvallavegi númer 36 var lokað klukkan níu í morgun og verður svo fram til klukkan fimm í dag, þar sem verið er að skipta um ræsi í veginum. Vegagerðin bendir vegfarendum á að aka Suðurlandsveg og Biskupstungnabraut að Þingvöllum á meðan. 13.1.2009 12:15