Fleiri fréttir

Reiknar með að ráða sérstakan saksóknara í dag

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra sagðist vongóður um að ráðið yrði í starf sérstaks saksóknara Í bítinu á Bylgjunni í morgun. Framlengdur umsóknarfrestur rann út í gær en einn aðili sótti um starfið.

Tveir handteknir við Alþingishúsið - myndband

Hópur mótmælenda tók sér stöðu fyrir framan inngang Alþingishússins og reyndu þau að varna ráðherrum inngöngu í húsið í morgun. Um þrjátíu manns tóku þátt í aðgerðinni og gerðu þau tilraun til þess að varna því að að Geir H. Haarde forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra kæmust inn. Lögreglumenn aðstoðuðu ráðherrana að lokum við að komast inn í húsið en ríkisstjórnarfundur hófst þar klukkan hálftíu.

Kolmunnaveiðar í stað loðnu

Sex stór fjölveiðiskip, sem í venjulegu árferði væru byrjuð loðnuveiðar, hafa gefið þær veiðar upp á bátinn í bili að minnsta kosti, og eru farin til kolmunnaveiða suður af Færeyjum.

Ingibjörg fékk hlýjar móttökur í Stokkhólmi

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, fékk hlýjar móttökur þegar hún og eigingmaður hennar, Hjörleifur Sveinbjörnsson, komu til Stokkkhólms á laugardaginn þar sem Ingibjörg gengst undir geislameðferð á Karólínska sjúkrahúsinu. Um er að ræða lokahnykk á meðferð Ingibjargar.

Seðlabankinn reistur við úr tæknilegu gjaldþroti

Seðlabanki Íslands mun afskrifa 75 milljarða af kröfum fjármálafyrirtækja. Verið er að reisa Seðlabankann við úr því tæknilega gjaldþroti sem hann kom sér í og reikningurinn er sendur til skattgreiðenda, segir hagfræðingur.

Útilokar ekki uppsagnir

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, útilokar ekki að starfsfólki heilbrigðisstofnanna verði sagt upp störfum í tengslum við fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á heilbrigðiskerfinu. ,,Ég get ekkert fullyrt um það yfir línuna," sagði Guðlaugur aðspurður í Kastljósi í kvöld hvort hann gæti fyllyrt að engum verði sagt upp vegna aðgerðanna. Hann sagði að kerfið sé í stöðugri þróun.

Innganga Íslands í ESB hefði ekki áhrif í Noregi

Talsmaður norska Miðflokksins í utanríkismálum hefur ekki trú á því að það hefði mikil áhrif í Noregi, ef Ísland yrði meðlimur í Evrópusambandinu. Þriggja manna sendinefnd flokksins fundaði með forsætisráðherra í dag um stöðuna í íslenskum stjórnmálum.

Minni og færri jólatré prýddu heimili landsmanna

Færri og minni jólatré prýddu heimili landsmanna um jólin ef marka má trén sem borgarstarfsmenn hafa hirt upp síðustu daga. Borgarstarfsmenn hafa síðustu daga haft í nógu við að safna saman jólatrjám sem borgarbúar sem borgarbúar hafa losað sig við eftir jólin.

Öngþveiti í Gilinu á Aukureyri

Umferðaröngþveiti varð í Gilinu á Akureyri í morgun þegar snjómokstur olli eignatjóni og ýmisskonar vanda. Verkstjóri hjá bænum telur að loka hefði átt Gilinu á meðan snjómoksturinn fór fram.

Sunnudagsútgáfu Fréttablaðsins hætt

Ákveðið hefur verið að fækka útgáfudögum Fréttablaðsins og hættir blaðið að koma út á sunnudögum frá og með næstu helgi. Þess í stað verður helgarútgáfa blaðsins efld til muna, að sögn Jóns Kaldals ritstjóra Fréttablaðsins. Engar uppsagnir eru fyrirhugaðar vegna breytinganna.

Fimm bíla árekstur á Miklubraut

Fimm bíla árekstur varð á Miklubraut á fimmta tímanum. Áreksturinn varð rétt við frárein í Stakkahlíð en bifreiðarnar voru á leið vestur Miklubraut. Talsverðar umferðatafir eru á svæðinu í kring. Lögreglubifreið og sjúkrabifreið er á staðnum.

Rafræn ferðaheimild til Bandaríkjanna tekur gildi í dag

Frá og með deginum í dag þurfa þeir sem hyggja á ferðalag til Bandaríkjanna að sækja um rafræna ferðaheimild, svokallaða ESTA. Hún mun koma í stað eyðublaðsins sem hingað til hefur verið afhent um borð í flugvélum á leið til Bandaríkjanna.

Umboðsmaður snuprar fjármálaráðuneytið

Umboðsmaður Alþingis snuprar fjármálaráðuneytið fyrir að hafa ekki svarað fyrirspurn frá framkvæmdastjóra fyrirtækis þar sem óskað var eftir því að ráðuneytið svaraði fyrri áskorun þess um lækkun á álagningu eldsneytis á hópbifreiðar.

Ungir Sjálfstæðismenn ánægðir með Guðlaug Þór

Samband ungra sjálfstæðismanna fagnar þeim breytingum sem Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur lagt til á sviði heilbrigðismála. Með tillögunum er gerð tilraun til þess að ná fram varanlegum umbótum á rekstri heilbrigðisstofnana á Íslandi í því skyni að auka skilvirkni og hagræði.

Þrír vilja á formannsstól í VR

Framboðsfrestur til formanns, stjórnar og trúnaðarráðs VR rann út á hádegi í dag og fundar kjörstjórn félagsins þessa stundina til að fara yfir framboðin. Þrír hafa gefið kost á sér til formanns, en það eru þeir Gunnar Páll Pálsson, núverandi formaður félagsins, Lúðvík Lúðvíksson og Kristinn Örn Jóhannesson.

Mikið magn af olíu lak á götuna

Talið er að um 50 til 100 lítrar af olíu hafi lekið úr strætisvagni í nótt og í morgun þar sem hann var staðsettur á lóð Strætó við Helstháls. Slökkviliðið var kvatt á staðinn um hálfníuleytið í morgun og hófst þegar handa við að hreinsa upp olíuna ásamt mönnum frá Hreinsitækni. Hreinsunarstarfið gekk vel að sögn slökkviliðsins og tók um klukkustund.

Robert Wade á Borgarafundinum í kvöld

Borgarafundur verður haldinn í Háskólabíó í kvöld klukkan 20:00 í áttunda sinn. Öllum formönnum stjórnmálaflokkanna og Viðskiptaráði Íslands hefur verið boðin þátttaka í pallborðsumræðum. Efni fundarins er íslenskt atvinnulíf í aðdraganda kreppunnar og spurt er hvað hafi farið úrskeiðis og fjallað verður um hriplekt lagaumhverfi og veikar eftirlitsstofnanir. Þetta kemur fram í frétt frá aðstandendum fundarins.

Aðgerðir til að sporna við atvinnuleysi í vinnslu

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað starfshóp um vinnumarkaðsaðgerðir með fulltrúum aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaganna, fjármálaráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Hlutverk starfshópsins er að móta tillögur um aðgerðir til að sporna gegn atvinnuleysi.

Bjarni segir ekki ákveðið að hann taki við af Birni

Bjarni Benediktsson alþingismaður segir það ekki hafa verið ákveðið að hann taki við embætti dómsmálaráðherra, eins og Fréttablaðið fullyrti um helgina. Hann segir ekkert hafa verið ákveðið um framtíðar ráðherraskipan.

Norðmenn reyna að tala um fyrir Íslendingum

Fjögurra manna nefnd frá norska Miðflokknum og flokki Jafnaðarmanna kom hingað til lands um helgina í þeim tilgangi að reyna að tala um fyrir Íslendingum og leiða þá í sanninn um að Evrópusambandsaðild muni ekki verða Íslandi hagstæð.

Þingvallavegur lokaður á morgun

Á morgun verður Þingvallavegur nr. 36 lokaður vegna ræsagerðar frá klukkan 9 - 17. Vegfarendum er bent á Suðurlandsveg og Biskupstungnabraut að Þingvöllum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni sem bendir einnig á að ekki sé ráðlegt faraNesjavallaleiðina af því að sá vegur er ekki í þjónustu.

Íslensk kona í Palestínu óttast ísraelska hermenn og lögreglu

Íslensk kona sem býr í Jerúsalem, í um þriggja tíma akstursleið frá Gaza, segist varla hafa komist út úr húsi eftir að átökin á Gaza hófust í desember. Konan sem býr þar ásamt palenstínskum eiginmanni og tveimur dætrum sínum hefur dvalið í Pakistan frá því í ágúst síðastliðnum. Vegabréfsáritun hennar er útrunnin og þess vegna óttast hún afskipti lögreglu og hermanna.

Mótmæli við stjórnarráðið - myndband

Hópur fólks kom saman fyrir framan stjórnarráðið í morgun til þess að mótmæla framferði Ísraelsmanna á Gaza. Um fimmtíu manns taka þátt í mótmælunum og hefur rauðri málningu verið kastað á veggi hússins og flugeldar hafa verið sprengdir á tröppunum.

Vel á öðru hundraðinu í hálku

Lögreglan á Selfossi stöðvaði í gærkvöldi tvo ökumenn vegna hraðaksturs á Biskupstungnabraut. Annar mældist á 116 kílómetra hraða en hinn á 130, þrátt fyrir að hálka væri á veginum.

Ölvaður ökumaður reyndist á stolnum bíl

Ölvaði ökumaðurinn, sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði eftir nokkra eftirför í gærmorgun, reyndist hafa tekið bílinn ófrjálsri hendi. Það kom fram við yfirheyrslur yfir honum í gærkvöldi.

Saka oddvitann um að stela bókhaldinu

Þegar Sigurbjörn Hjaltason, oddviti Kjósarhrepps, mætti til vinnu eftir jól mætti honum stórskemmd hurðin á hreppsskrifstofunni. Brotist hafði verið inn og tölvum með gögnum hreppsins stolið. Þau eru ófundin.

Tillögufrestur rennur út í dag

Frestur til að skila inn tillögum vegna hönnunar sýningarskála Íslands á heimssýningunni í Kína, EXPO 2010, rennur út í dag. Fimm fyrirspurnir um verkefnið bárust Ríkiskaupum áður en frestur til fyrirspurna rann út. Leigður verður 500 fermetra skáli fyrir Ísland á svæði með hinum Norðurlöndunum. Eftir að kreppan hófst var ákveðið að framlag ríkisins verði um það bil aðeins þriðjungur af því sem var áætlað. Ríkið muni þannig verja um 150 milljónum í sýninguna og fá þess utan framlög frá fyrirtækjum. - gar

Atvinnurekendur svíkja út bæturnar

Fyrirtæki og einstaklingar misnota atvinnuleysisbætur vegna hlutastarfs í auknum mæli og nýta þær sem launagreiðslur, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Hærri greiðslur frá áramótum

Greiðslur til stuðningsfjölskyldna sem annast sólarhringsvistun fatlaðra barna í skamman tíma hækkuðu um 12,5 prósent um áramótin.

Segja tölur um gjaldþrot ýktar

Ekki er raunhæft að ætla að 3.500 fyrirtæki verði gjaldþrota á árinu, eins og tölur sem Credit Info á Íslandi hefur tekið saman gefa til kynna. Þetta segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra. Hann segir að hér sé skuldastaða fyrirtækjanna tekin miðað við gengi krónunnar eins og það sé í dag. Það sé ekki raunhæft viðmið, enda vitað að gengið eigi eftir að styrkjast.

Frjálslyndir funduðu í framsóknarvígi

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, og þingflokksformaðurinn Jón Magnússon funduðu með ríflega sjötíu Íslendingum á Klöru­bar á Kanaríeyjum á laugardag. Barinn hefur hingað til verið þekktur sem mikið vígi framsóknarmanna og þeir reglulega haldið þar fundi.

Ríkisfyrirtæki bíða úrskurðar kjararáðs

Stjórnir fyrirtækja í eigu ríkisins fara yfir tilmæli ríkisstjórnarinnar um að lækka laun helstu stjórnenda á næstunni. Talið er að niðurstaða kjararáðs varðandi launalækkun æðstu embættismanna og stórra hópa í þjónustu ríkisins geti lagt línuna fyrir ríkisfyrirtæki og er því beðið eftir niðurstöðu kjararáðs. Undirbúningur kjararáðs hefst á næstunni og má búast við að niðurstaða liggi fyrir síðar í janúar.

Mikil aðsókn á landsfund

Allflest félög í Sjálfstæðisflokknum hafa gengið frá skráningu landsfundarfulltrúa sinna samkvæmt upplýsingum sem fengust á skrifstofu flokksins. Mikill áhugi á fundinum er talinn stafa af stöðu efnahagsmála á Íslandi auk þess sem ákvarðanir um stefnu flokksins í Evrópumálum liggja fyrir fundinum.

Svo sannarlega ekkert lamb að leika sér við

„Lambið er mjög sprækt og ljónstyggt svo að það er mjög erfitt að nálgast það,“ segir Hlynur Sigurðarson, formaður björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ, sem ásamt þremur öðrum björgunarsveitarmönnum og sex bændum gerði árangurslausa tilraun til að ná lambi af syllu í Úlfarsfelli í gær.

Verka fisk við Malavívatn

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur sett upp fiskverkunaraðstöðu í þorpinu Madzedze við Malavívatn. Aðstaðan gæti hugsanlega orðið fyrirmynd fleiri slíkra umhverfis Malavívatn. „Framtíðin verður að dæma um hvort vel hafi til tekist og hvort þetta verði fiskimannafjölskyldum til framdráttar með aukinni fæðuöflun,“ er haft eftir Stefáni Kristmannssyni, verkefnastjóra fiskimála hjá ÞSSÍ í Malaví, í tilkynningu.

Náttúrulegu skilyrðin góð

Síðasta ár var metár í innvigtun mjólkur en rúmum 126 milljónum lítra af mjólk var skilað til samlaga innan Samtaka afurðastöðva á árinu.

Sjá næstu 50 fréttir