Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eldur í rafmagnsköplum í opnum skurðum Eldur kviknaði í rafmagnsköplum í opnum skurðum á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Fyrst kviknaði í kapli við Hnoðraholt í Garðabæ okg urðu spengingar í kaplinum með neistaflugi og reyk. Lögregla lokaði svæðinu og var kallað á starfsmenn Orkuveitunnar til að aftengja kapalinn áður en slökkviliðið sprautaði vatni yfir. 30.7.2007 12:42
Íslensk fyrirtæki gera sig gildandi í Kanada Tvö íslensk fyrirtæki eru að hefja innrás í kandadískt efnahagslíf , annað á sviði jarðhita og hitt á sviði kulda. Jarðhitafyrirtækið Geysir Green Energy, sem nýverið keypti þriðjungs hlut í Hitaveitu Suðurnesja, hefur keypt 20 prósenta hlut í kanadíska fyrirtækinu Western GeoPower Corporation fyrir um 600 milljónir íslenskra króna. 30.7.2007 12:33
Kristinn Hallsson óperusöngvari látinn Kristinn Hallsson óperusöngvari andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði aðfararnótt laugardags. Hann var fæddur í Reykjavík árið 1926 og var áttatíu og eins árs að aldri. Hann hóf nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk síðan brottfararprófi frá Konunglega tónlistarskólanum í London. Kristinn tók þátt í fjölda óperusýninga og tónleika, bæði hér á landi og erlendis og stundaði tónlistarkennslu. 30.7.2007 12:20
Hann bjargaði lífi dóttur minnar Hann bjargaði lífi dóttur minnar, segir móðir stúlkunnar sem ráðist var á með hrottafengnum hætti fyrir utan skemmtistaðinn Sólon um helgina, og vísar þar til sjónarvotts sem kom stúlkunni til hjálpar. Stúlkan, sem var meðal annars bitin á eyra, liggur enn á sjúkrahúsi, en hún undirgekkst aðgerð í gær. 30.7.2007 12:05
Nafn mannsins sem lést við Minni-Borg Maðurinn sem lést í bifhjólaslysi á laugardagskvöldið á Biskupstungnabraut á móts við verslunina Minni-Borg hét Gunnlaugur Björnsson, fæddur 1977. Gunnlaugur bjó í foreldrahúsum í Hveragerði. Hann var ókvæntur og barnslaus. 30.7.2007 11:59
Tekjur ríkisins af fjármagnstekjuskatti aukast um þriðjung Fjármagnstekjuskattur hækkar um þriðjung á milli ára og nú greiða rösklega níutíuþúsund landsmenn skatt af fjármagnstekjum. Skattgreiðendum hefur aldrei fjölgað jafn mikið á milli ára en nú og er skýringin sá mikli fjöldi útlendinga sem bæst hefur á íslenskan vinnumarkað. 30.7.2007 11:55
Veðurútlit vont fyrir verslunarmannahelgina Gert er ráð fyrir að miklu rigningaróveðri á Íslandi um verslunarmannahelgina þegar lægð gengur yfir Ísland. 30.7.2007 11:33
Steingrímur Sævarr Ólafsson verður fréttastjóri Stöðvar 2 Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður fréttasviðs fréttastofu Stöðvar 2 og Steingrímur Sævarr Ólafsson verður fréttastjóri frá og með 1. ágúst. 30.7.2007 11:13
Úrvalsvísitalan sveiflaðist mikið í júlí Miklar hreyfingar voru á Úrvalsvísitölunni í júlí. Í Morgunkorni Glitnis kemur fram að eftir miklar hækkanir í byrjun mánaðarins þar sem vísitalan náði hæsta lokagildi sínu 18. júlí í 9.016 stigum hafi Úrvalsvísitalan gefið töluvert eftir. Lokagildi vísitölunnar á föstudaginn var 8.697 stig sem samsvarar 3,54 prósenta lækkun frá lokagildinu 18. júlí. 30.7.2007 10:32
Nærri 82 milljarðar greiddir í almennan tekjuskatt Alls greiða 175.399 einstaklingar, eða 69% framteljenda almennan tekjuskatt, sem nemur samtals 81,9 milljarði króna fyrir árið 2006. Skattgreiðsla á hvern gjaldanda hefur hækkað um 5,1 % milli ára, eða mun minna en gjaldstofninn, sem hækkaði um 10%. Þetta er meðal annars vegna þess að tekjuskattshlutfallið lækkaði úr 24,75% í 23,75% í upphafi ársins 2006 auk þess sem persónuafsláttur hækkaði um 2,5%. 30.7.2007 10:22
Bilun í götuljósarafstreng Í nótt var Orkuveitu Reykjavíkur tilkynnt um bilanir á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu, við Eskiholt í Garðabæ og Skipholt í Reykjavík. Við eftirgrennslan fannst ekki bilun í Garðabæ en við Skipholt hafði götuljósarafstrengur bilað. 30.7.2007 09:32
Eldur í bíl á Hverfisgötu Eldur kom upp í bíl á Hverfisgötu um klukkan hálf sex í kvöld. Að sögn lögreglunnar var bíllinn á ferð þegar skyndilega byrjar að rjúka upp úr vélarhlífinni. 29.7.2007 20:27
11 teknir fyrir hraðakstur Lögreglan á Selfossi stöðvaði í dag 11 ökumenn fyrir hraðakstur. Sá sem fór hraðast var á 135 kílómetra hraða á klukkustund á Hellisheiði. Hann var ennfremur próflaus og grunaður um akstur undir áhrifum ávana- eða fíkniefna. 29.7.2007 20:18
Álagningarseðlar skattstjórans á Netinu Hægt verður að nálgast álagningarseðla frá skattstjóra á Netinu eftir klukkan fjögur á morgun. Seðlarnir sjálfir verða bornir út á þriðjudaginn. 29.7.2007 20:15
Í fangelsi fyrir ólæti og ölvun Tveir gistu fangaklefa lögreglunnar í Snæfellsbæ í nótt vegna óláta og ölvunar í Grundarfirði en þar fór fram um helgina bæjarhátíðin Á góðri stund. Að öðru leyti gekk hátíðin áfallalaust fyrir sig að sögn lögreglunnar í Snæfellsbæ. 29.7.2007 20:15
Keyrt á tvö lömb í Öxnadal Keyrt var á tvö lömb í Öxnadal um helgina en bæði skiptin lét ökumaður sig hverfa án þess að tilkynna atvikið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri eru nokkur tilvik á hverju sumri að keyrt sé á búfénað. Oftast láta menn þó vita. Bæði lömbin fundust dauð. 29.7.2007 19:50
Til álita að Danir, Norðmenn, Bretar eða Kanadamenn fljúgi eftirlitsflug Utanríkisráðherra segir að til álita komi að Danir, Norðmenn, Bretar eða Kanadamenn taki þátt í lofteftirliti NATO hér á landi, þótt ekkert hafi enn verið staðfest varðandi þátttöku ríkjanna. Formaður Vinstri grænna og þingmaður Frjálslynda flokksins eru sammála um að byrjað hafi verið á öfugum enda í málinu. 29.7.2007 19:22
Samgönguráðherra telur óeðlilegt að lágflug verði heimilað Samgönguráðherra telur óeðlilegt að veitt sé leyfi fyrir lágflugi orrustuþotna í tengslum við heræfinguna Norður-víkingur, hér á landi um miðjan ágúst. Stjórnandi æfinganna hefur staðfest að búið sé að senda inn beiðni um slíkt. Formaður Vinstri grænna telur æfingarnar sýndarmennsku og utanríkisráðherra er ókunnugt um málið. 29.7.2007 19:16
Maður tók konu sína í gíslingu í Básum í Þórsmörk Maður á fimmtugsaldri gekk berserksgang í Básum í Þórsmörk í nótt og hélt konu sinni í gíslingu um tíma. Hann er grunaður um að hafa beitt eiginkonu sína ofbeldi. 29.7.2007 19:06
Einkahagsmunir á kostnað almannahagsmuna í Þorskafirði Sýslumaðurinn á Patreksfirði sem barist hefur af krafti fyrir úrbótum á Vestfjarðavegi, segir að landeigendur í Þorskafirði láti einkahagsmuni framar almannahagsmunum með því að höfða mál gegn umhverfisráðherra. Ráðherra hefur heimilað að Vestfjarðavegur liggi um Teigsskóg í Þorskafirði. Landeigendur segja að Teigsskógur sé ósnortinn og að arnarvarpi sé ógnað með nýja veginum. 29.7.2007 19:00
Þrjátíu ný störf og á annað þúsund ferðamenn í sjóstangaveiði á Vestfjörðum Ferðaþjónusta tengd sjóstangaveiði hefur stóraukist á Vestfjörðum og menn sjá mikla möguleika í skemmtisiglingum. Á annað þúsund manns hafa komið á sjóstöng á Flateyri og Suðureyri það sem af er sumri. Þetta er tvöfaldur íbúafjöldinn í þessum tveimur sjávarplássum. 29.7.2007 18:55
Bútur bitinn af eyra konu fyrir utan skemmtistað Tuttugu og sjö ára kona varð fyrir hrottafenginni líkamsárás þriggja kvenna um tvítugt, í biðröð við skemmtistaðinn Sólon í miðborginni á þriðja tímanum í nótt. Hún var dregin á hárinu eftir gangstéttinni, sparkað í hana og stór bútur bitinn af eyra hennar, að sögn sjónarvotta. 29.7.2007 18:52
Hrottafengin líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur Kona á þrítugsaldri varð fyrir hrottafenginni líkamsárás þriggja kvenna um tvítugt í biðröð við skemmtistaðinn Sólon í miðborg Reykjavíkur á þriðja tímanum í nótt. Hún var dregin á hárinu eftir gangstéttinni, sparkað í hana og stór bútur bitinn af eyra hennar, að sögn sjónarvotta. 29.7.2007 16:51
Málið upplýst - morðinginn svipti sig lífi Árásarmaður mannsins sem skotinn var til bana á Sæbrautinni í morgun svipti sig lífi á Þingvöllum tæpri klukkstund eftir árásina. Í fórum mannsins fannst bréf og skotvopn sem tengir hann við skotárásina. Fórnarlambið hóf fyrir stuttu samband við fyrrverandi eiginkonu árásarmannsins. Lögreglan segir málið upplýst. 29.7.2007 15:34
Morðið ekki tengt undirheimunum Skotmaðurinn var enn á staðnum þegar sendibílstjórinn forðaði særða manninum af vettvangi. Málið er ekki talið tengjast undirheimum samkvæmt heimildum Vísis. 29.7.2007 15:23
Skotinn með riffli í brjóstið Maðurinn sem lést af völdum skotsára eftir árás á Sæbrautinni í morgun var skotinn með .22 kalibera riffli í brjóstið. Þetta staðfestir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi. Lögreglan útilokar ekki að um árás án tilefnis hafi verið að ræða. Heimildir segja að maðurinn hafi verið að skipta um dekk þegar á hann var ráðist. Sérsveit lögreglunnar er í viðbragðsstöðu. 29.7.2007 14:34
Fórnarlamb skotárásarinnar látið Maðurinn sem varð fyrir skotárás á Sæbrautinni laust fyrir hádegi í dag er látinn. Hann var fæddur árið 1972. 29.7.2007 13:17
Steingrímur segir samkomulag sýndarmennsku Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, gagnrýnir að ekki hafi verið haft eðlilegt samráð um áætlun um lofteftirlit Atlantshafsbandalagsins. Hann telur að fyrst ætti að móta stefnu í varnarmálum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, segir sjálfsagt að endurskoða mat á vörnum landsins, en er ánægð með að samkomulagið við NATO sé í höfn. 29.7.2007 12:31
Alvarleg líkamsárás á Sæbraut Mjög alvarleg líkamsárás átti sér stað rétt fyrir hádegi við gatnamót Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar. Einn maður hefur verið fluttur á slysadeild og óstaðfestar heimildir herma að þetta hafi verið skotárás. Talið er að vettvangur árásarinnar nái einnig til Laugardalslaugarinnar og eru lögregla og sjúkrabílar þar. Hefur inngang laugarinnar veri lokað af. Litlar upplýsingar hafa fengist frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um málið enn sem komið er. 29.7.2007 11:56
Utanríkisráðherra ekki kunnugt um lágflugsbeiðni Utanríkisráðherra hefur ekki vitneskju um að óskað verði eftir heimild til lágflugs á varnaræfingunni Norður-víkingur, sem fram fer hér á landi í haust, sem stjórnandi æfinganna hefur staðfest að sótt verði um til Flugmálastjórnar. Formaður vinstri grænna segir æfingarnar ekkert annað en sýndarmennsku, nær sé að verja fjármununum í eflingu almannavarna, björgunarstarfsemi og löggæslu. 29.7.2007 11:53
Lögregla á þyrlu tekur þrjá ökumenn fyrir utanvegaakstur Lögreglan á Hvolsvelli fékk fréttir af utanvegaakstri inni á friðlandi í gær og fóru lögreglumenn á þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-Eir, inn að Álftavatni þar sem þrír ökumenn voru staðnir að því að aka utan vega að sögn lögreglunna á Hvolsvelli. 29.7.2007 10:32
Maður gekk berserksgang í Þórsmörk Á Hvolsvelli voru öll tjaldstæði full og mikil ölvun og erill hjá lögreglu. Lögreglan þar var kölluð inn í Bása í Þórsmörk, en þar gekk maður berserksgang að sögn lögreglu og hafði í hótunum við konu sína. Maðurinn hélt konu sinni í gíslingu að sögn lögreglu og hafði í hótunum við aðrar konur á svæðinu. 29.7.2007 10:30
Eldur í bílakerru í Grjótaþorpi Kveikt var í bílakerru í Grjótaþorpinu í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Að sögn slökkviliðsins var kerran full af hvers konar blaðarusli og varð hún því fljótt alelda. Vel gekk að slökkva eldinn og ekki er talið að nálæg hús hafi verið í hættu. 29.7.2007 10:09
Skemmdir unnar á björgunarbát í Sandgerðishöfn Eignarspjöll voru unnin á björgunarbátnum Verði í Sandgerðishöfn um áttaleytið í gærkvöldi. Tæmt var úr slökkvitækjum bátsins, feiti smurt á hurðarhúna. 29.7.2007 09:56
Ölvaður maður stakk sér til sunds í Keflavíkurhöfn Tveir lögreglumenn og einn slökkviliðsmaður þurftu að synda á eftir ölvuðum manni sem fór í sundferð um höfnina í Keflavík um klukkan ellefu í gærkvöldi. Maðurinn var búinn að synda um 200 metra frá landi þegar hann náðist. 29.7.2007 09:54
Tveir gistu fangaklefa í Keflavík Nokkur ölvun var í miðbæ Keflavíkur í nótt og fengu tveir að gista fangaklefa. Annar þeirra var handtekinn í morgun fyrir að sinna ekki fyrirmælum lögreglu. 29.7.2007 09:31
Móturhjólaslys í Grímsnesi Móturhjólamaður slasaðist þegar bíl var keyrt í veg fyrir hann á Biskupstungnabraut við Minni-Borgir í Grímsnesi laust fyrir klukkan átta í kvöld. Maðurinn keyrði á bílinn og kastaðist af hjólinu. 28.7.2007 20:07
Fjórir handteknir á Akureyri í kjölfar húsleitar Lögreglan á Akureyri handtók fjóra einstaklinga í nótt eftir að gerð var húsleit þar í bæ. Í húsinu fundust 15 grömm af hvítu efni og 17 skammtar af ofskynjunarlyfinu LSD. Fólkinu var sleppt að loknum yfirheyrslum í nótt. 28.7.2007 19:56
Sjö teknir fyrir hraðakstur í Borgarnesi Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði sjö ökumenn í dag fyrir hraðakstur. Sá sem fór hraðast mældist á 120 kílómetra hraða á Snæfellsnesvegi en þar er 90 kílómetra hámarkshraði. 28.7.2007 19:40
Landvernd vill að tímabundið virkjanaleyfi gildi í aðeins 1 ár Formaður Landverndar segir eðlilegra að tímabundið virkjanaleyfi Múlavirkjunar muni gilda í aðeins eitt ár, í stað fjögurra eða fimm eins og iðnaðarráðherra hefur talað um. Umhverfissamtökunum finnst einnig vanta viðurlög og þvingunarúrræði í málefnum smærri virkjana þegar framkvæmdaáætlunum er ekki fylgt. 28.7.2007 19:16
Óvenjulegt veðurfyrirbæri á Skeiðarársandi Skýstrokkur sást á Skeiðarársandi um klukkan hálfþrjú í gær. Skýstrokkar myndast mjög sjaldan á Íslandi, enda eru aðstæðurnar sem þarf til að mynda slík fyrirbæri sérstakar og yfirleitt ekki fyrir hendi í andrúmsloftinu yfir eða í grennd við landið. 28.7.2007 19:13
Áhyggjur af krónubréfum í kjölfar lækkunar hlutabréfa Áttatíu og fimm milljarðar eru á gjalddaga í svokölluðum krónubréfum í september. Í framhaldi af falli hlutabréfa í Bandaríkjunum óttast margir að þessir peningar hverfi allir úr íslensku hagkerfi. Ásgeir Jónsson hjá Kaupþingi telur að erlendir fjárfestar hafi enn trú á krónubréfum og því fari peningarnir hvergi. 28.7.2007 19:10
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segist ekki vanhæfur Forstjóri Samkeppniseftirlitsins hafnar því að vera vanhæfur í samkeppnismáli Mjólkursamsölunnar, Osta- og smjörsölunnar og Auðhumlu, eins og Mjólkursamsalan heldur fram. Forstjóri Mjólku óttast það að Mjólkursamsalan telji sig hafna yfir lög og starfsemi eftirlitsstofnanna. 28.7.2007 18:52
NATO þotur sinna eftirliti í lofthelgi Íslands Orrustuflugvélar á vegum Atlantshafsbandalagsins munu sinna reglubundnu eftirliti um lofthelgi Íslands, samkvæmt samkomulagi sem samþykkt hefur verið í fastaráði NATO. Fjórum sinnum á ári munu þotur bandalagsríkja fljúga hér eftirlitsferðir á kostnað ríkjanna sjálfra. Forsenda eftirlitsflugsins eru ratsjárstöðvarnar fjórar hér á landi, sem Íslendingar munu bera allan kostnað af. 28.7.2007 18:48
Vilja æfa lágflug yfir hálendi Íslands Beiðni um heimild til lágflugs á varnaræfingunni Norður víkingur mun berast Flugmálastjórn á næstunni en lágflugsæfingar á þessum árstíma falla ekki undir almennar reglur um heræfingar. Erfitt gæti reynst fyrir Flugmálastjórn að heimila æfingarnar þar sem Flugmálastjórn ber að vernda hagsmuni almennings og umferð ferðamanna um landið er mikil á þessum tíma. 28.7.2007 18:34