Nærri 82 milljarðar greiddir í almennan tekjuskatt 30. júlí 2007 10:22
Alls greiða 175.399 einstaklingar, eða 69% framteljenda almennan tekjuskatt, sem nemur samtals 81,9 milljarði króna fyrir árið 2006. Skattgreiðsla á hvern gjaldanda hefur hækkað um 5,1 % milli ára, eða mun minna en gjaldstofninn, sem hækkaði um 10%. Þetta er meðal annars vegna þess að tekjuskattshlutfallið lækkaði úr 24,75% í 23,75% í upphafi ársins 2006 auk þess sem persónuafsláttur hækkaði um 2,5%. Þetta kemur fram í upplýsingum frá Ríkisskattstjóra, en helstu niðurstöður skattaálagningar árið 2007 liggur nú fyrir. Um er að ræða endanlega álagningu á tekjuskatti, fjármagnstekjuskatti og útsvari á tekjur ársins 2006. Meginhluti álagningarinnar hefur þegar verið innheimtur í formi staðgreiðslu eða fyrirframgreiðslu á árinu 2006. Einnig er hér um að ræða álagningu á gjaldi í Framkvæmdasjóð aldraðra, auk þess sem ákvarðaðar eru greiðslur barnabóta og vaxtabóta. „Útsvar til sveitarfélaga nemur alls 87,3 milljörðum króna og hækkar um 12,4% frá fyrra ári. Greiðendur útsvars eru 244.883 og fjölgar um 4,6% milli ára. Álagt útsvar á hvern gjaldanda hækkar samkvæmt því um 7,4% milli ára en meðalútsvarshlutfall breyttist ekki. Álagður fjármagnstekjuskattur einstaklinga nemur 16,3 milljörðum króna og hækkar um tæplega 34% milli ára. Greiðendur fjármagnstekjuskatts eru 93 þúsund og fjölgar um tæp 10% milli ára. Söluhagnaður skýrir drjúgan helming af skattstofni fjármagnstekjuskatts en arður og vaxtatekjur tæpan fjórðung hvor liður. Fjármagnstekjuskattur eykur enn hlut sinn í tekjusköttum til ríkissjóðs og nemur hann nú 16,6% samanborið við 14,4% árið 2006. Framtaldar eignir heimilanna námu rúmlega 2.800 milljörðum króna í lok síðasta árs og höfðu þær aukist um 14,9% frá fyrra ári. Fasteignir heimilanna töldust 2.052 milljarðar að verðmæti eða nær ¾ hlutar af eignum og verðmæti þeirra hafði aukist um 12,5% milli ára en eigendum fasteigna fjölgaði um 1,2%. Framtaldar skuldir heimilanna námu alls 1.113 milljörðum króna í árslok 2006 og höfðu þær vaxið um liðlega 21% frá árinu 2005. Framtaldar skuldir vegna íbúðarkaupa jukust minna eða um 17,8%, og námu rúmlega 700 milljörðum króna. Skuldir vegna íbúðarkaupa námu 34,4% af verðmæti þeirra og hafði það hlutfall hækkað nokkuð frá fyrra ári. Á þessu ári verða greiddir út rúmir 7,4 milljarðar króna í barnabætur samanborið við 6 milljarða króna í fyrra sem er 24,1% aukning. Þá fjölgar þeim sem bótanna njóta um 14,8% frá síðasta ári. Hér kemur það til að tekjuskerðingarmörk vegna bótanna hafa verið hækkuð um 20%, auk þess sem bætur eru nú greiddar vegna barna allt að 18 ára aldri en áður voru einungis greiddar bætur vegna barna að 16 ára aldri. Barnabætur vegna barna yngri en 7 ára hafa einnig verið hækkaðar um 20%. Þá hafa skerðingarhlutföll vegna tekna umfram skerðingarmörk verið lækkuð. Þetta allt hefur í för með sér að meðalbætur á fjölskyldu hækka um 8%. Ákvarðaðar vaxtabætur vegna vaxtagjalda af íbúðarlánum, sem einstaklingar greiddu af á árinu 2006, nema 5,3 milljörðum króna í ár. Vaxtabætur fá um 50 þúsund aðilar. Meðalvaxtabætur eru nú 106 þúsund að meðaltali á hvern vaxtabótaþega en þeim er skipt á milli hjóna og sambýlisfólks. Sem kunnugt er var vaxtabótum endurúthlutað vegna síðasta árs eftir að í ljóst kom að mikil hækkun fasteignaverðs leiddi til verulegrar fækkunar þeirra sem þeirra höfðu notið. Að teknu tilliti til þeirrar endurúthlutunar hækka útborgaðar vaxtabætur um tæp 5% milli ára, en fjöldi vaxtabótaþega er svipaður bæði árin. Hinn 1. ágúst n.k. koma til útborgunar 9,2 milljarðar króna eftir skuldajöfnun á móti ofgreiddum sköttum. Vaxtabætur eru stærsti hluti útborgunarinnar en útborgun þeirra nemur 4,3 milljörðum. Fjórðungur barnabóta verða útborgaðar og nemur upphæð þeirra 1,6 milljörðum. Afgangurinn, um 3 milljarðar króna, eru ofgreidd staðgreiðsla eða fyrirframgreiddir skattar af tekjum síðasta árs. Barnabætur eru greiddar út fjórum sinnum á ári og kemur síðasti hluti þeirra, tæpir 2 milljarðar króna, til útborgunar 1. nóvember næstkomandi," segir í tilkynningu frá Fjármálaráðuneytinu.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fleiri fréttir Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Sjá meira