Innlent

Skotinn með riffli í brjóstið

Fyrir framan Laugardalslaug
Fyrir framan Laugardalslaug MYND/365

Maðurinn sem lést af völdum skotsára eftir árás á Sæbrautinni í morgun var skotinn með .22 kalibera riffli í brjóstið. Þetta staðfestir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi. Lögreglan útilokar ekki að um árás án tilefnis hafi verið að ræða. Heimildir segja að maðurinn hafi verið að skipta um dekk þegar á hann var ráðist. Sérsveit lögreglunnar er í viðbragðsstöðu.

Samkvæmt heimildum Vísis er ekki útilokað að maðurinn hafi verið skotinn án tilefnis. Þykir margt benda til þess að hann hafi verið að skipta um dekk á bíl sínum við Sæbrautina þegar á hann var skotið. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki viljað staðfesta þetta en segir hins vegar ekkert vera útilokað í rannsókn málsins.

Maðurinn lést á slysadeild Landspítalans laust eftir hádegi í dag.

Enn sem komið er hefur enginn verið handtekinn vegna málsins að sögn lögreglu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×