Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flugumferðarstjórar segja skort á samningsvilja Félag íslenskra flugumferðarstjóra segja Flugstoðir skorta vilja til að semja. Félagið sendi frá sér yfirlýsingu í kvöld þar sem því er neitað að flugumferðarstjórar krefjist þess að laun sín hækki um tugi prósenta líkt og Flugstoðir hafa haldið fram. 20.12.2006 20:45
Ekki hægt að mismuna starfsfólki Flugstoðir segja að ekki sé hægt að gera flugumferðarstjórum hærra undir höfði en öðrum starfsmönnum og því sé ekki hægt að ganga að kröfum þeirra. Um sextíu flugumferðarstjórar sem störfuðu hjá Flugmálastjórn Íslands hafa ekki gert samning við Flugstöðir ohf., sem tekur við rekstirnum um áramótin, og krefjast þeir kjarabóta. 20.12.2006 20:16
Dómarar detta í lukkupottinn Þingmenn, ráðherrar og æðstu embættismenn fengu vænar launahækkanir, samkvæmt ákvörðun Kjararáðs í dag. Sex komma fimm prósenta launahækkun fellur þeim í skaut. Dómarar detta í lukkupottinn þar sem þeir fá, þessu til viðbótar, launahækkanir frá í fyrra sem ríkið afnumdi með lögum, til baka með dómsúrskurði. 20.12.2006 20:15
Metrennsli í Norðurá Í Borgarfirði hafa ár flætt yfir bakka sína og gamla brúin yfir Hvítá, milli Ferjukots og Hvítarvalla, er lokuð og íbúar í Ferjukoti því innlyksa. 20.12.2006 19:45
Mesta hættan liðin hjá á Akureyri Mestan hættan er liðin hjá á Akureyri vegna vatns- og aurflóða. Ekki er talin ástæða til að óttast frekari skriðuföll nema aftur fari saman miklar leysingar og rigning. Björgunarsveitarmenn munu þó áfram standa vaktina í nótt. 20.12.2006 19:20
Bæir innlyksa vegna flóða í Hvítá Hvítá í Árnessýslu er í miklum ham og var brúnni á Brúarhlöðum lokað í morgun þar sem áin flæddi yfir hana. Eins eru átta íbúðarhús innlyksa í Auðsholti þar sem Hvítáin beljar allt um kring. 20.12.2006 19:11
Mikil hætta á bráðri mengun úr flutningaskipinu Flutningaskipið Wilson Muuga er nú flokkað sem umhverfisslys enda mikil hætta talin á bráðri mengun. Flogið var í skipið í dag til að kanna ástand skipsins og aðstæður til að dæla olíunni í land. 20.12.2006 19:10
Komið verður á fót heimili fyrir heimilislausa Félagsmálaráðuneytið og Reykjavíkurborg ætla að koma á fót heimili fyrir heimilislausa í Reykjavík. Rúm verður fyrir 10 heimilismenn samtímis. Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu í dag, samstarfssamning um heimilið. 20.12.2006 18:05
Ellefu áramótabrennur í Reykjavík Um þessi áramót verða 11 áramótabrennur í Reykjavík. Þær verða allar á sömu stöðum og í fyrra. Kveikt verður í borgarbrennum kl. 20.30. á gamlárskvöld. Í frétt frá Framkvæmdasviði segir að starfsmenn hverfastöðva Framkvæmdasviðs verði við móttöku og uppröðun í bálkesti frá fimmtudeginum 28. desember. Hætt verður að taka á móti efni þegar kestirnir eru orðnir hæfilega stórir eða í síðasta lagi kl.12:00 á gamlársdag. 20.12.2006 17:38
Björgunarsveitir klári verkefni og verði svo í viðbragðsstöðu Almannavarnarnefndir í Árnessýslu ákváðu á fundi sínum sem var að ljúka björgunarsveitir muni ljúka fyrirliggjandi verkefnum og fara síðan heim að því loknu en verða viðbúnar útköllum. Þær hafa í dag aðstoðað hestaeigendur við að bjarga hrossum úr úthaga. 20.12.2006 17:06
Verulegt tjón á Djúpadalsvirkjun Franz Árnason, framkvæmdastjóri Fallorku ehf. sem rekur Djúpadalsvirkjun í Eyjafjarðarsveit ,segir að verulegt tjón hafi orðið á virkjuninni í dag þegar efri stíflan í virkjuninni brast eftir mikið úrhelli í Eyjafirði á síðasta sólarhring. 20.12.2006 16:56
Reyndist ölvaður undir stýri í banaslysi Annar mannanna, sem yfirheyrðir hafa verið vegna umferðarslyss sem varð á Reykjanesbraut nærri nýju IKEA-versluninni í Garðabæ í nóvember, hefur viðurkennt að hafa ekið bifreiðinni. Komið hefur í ljós að hann og tveir aðrir sem voru í bílnum hafi verið undir áhrifum áfengis en einn mannanna lést þegar bílnum var ekið á steypustólpa. 20.12.2006 16:36
Fjórðungur þróunarfjár ÞSSÍ til Malaví á næsta ári Þróunarsamvinnustofnun Íslands ætlar að verja um fjórðungi þess fjár sem stofnunin hefur þegar fengið samþykkt fyrir fyrir næsta ár til þróunarverkefna í Malaví, alls um 280 milljónum króna. 20.12.2006 16:26
Tengivagn valt á Suðureyrarvegi Vegurinn til Suðureyrar er lokaður vegna umferðaróhapps sem varð nú í eftirmiðdaginn. Þá valt tengivagn flutningabíls með þeim afleiðingum að hann lokar nú veginum. Óhappið varð til móts við eyðibýlið Laugar á veginum milli Suðureyrar og Botns í Súgandafirði en að sögn lögreglu á Ísafirði urðu engin slys á fólki. 20.12.2006 16:14
16 ára piltur dæmdur fyrir hættulega líkamsárás Sextán ára piltur var dæmdur í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í Keflavík í desember í fyrra. 20.12.2006 15:59
Flæðir inn í kjallara Selfosskirkju Björgunarfélag Árborgar vinnur nú að því að tæma kjallara Selfosskirkju þar sem allt er á floti, að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Björgunarsveitarmenn hafa þurft að aðstoða lögreglumenn við að stugga forvitnu fólki frá árbakkanum, þar sem bæði börn og fullorðnir hafa hætt sér tæpara en góðu hófi gegnir. 20.12.2006 15:41
Flugi til Ísafjarðar í dag aflýst Flugi á vegum Flugfélags Íslands sem fara átti til Ísafjarðar í dag hefur verið aflýst vegna veðurs og verður ekki athugað með flug þangað fyrr en á morgun. Þá er óvíst með flug til Egilsstaða og Akureyrar og verður kannað með flug þangað næst klukkan hálffimm. 20.12.2006 15:36
Annar dæmdra nauðgara laus úr gæsluvarðhaldi Gæsluvarðhald yfir tveimur karlmönnum sem eru grunaðir um kynferðisbrot og setið hafa í varðhaldi undanfarið rennur út í dag. Lögreglan í Reykjavík hefur ekki farið fram á framlengingu gæsluvarðhalds yfir þeim eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá henni. 20.12.2006 15:22
Nýtt varðskip til um mitt ár 2009 Reikna má með því að nýtt varðskip verði komið í flota Landhelgisgæslu Íslands um mitt ár 2009 en samningur um smíði þess var undirritaður í dag. Það gerðu Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands ásamt Carlos Fanta de la Vega, forstjóra skipasmíðastöðvarinnar ASMAR í Chile, sem átti lægsta tilboð í smíði skipsins. 20.12.2006 15:17
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins til taks á Selfossi Slökkviliðsmenn af höfuðborgarsvæðinu fara nú á fjórða tímanum austur fyrir fjall til þess að vera til taks á Selfossi ef fer að flæða þar inn í hús með hækkandi vatnsborði Ölfusár. Allar björgunarsveitir í Árnessýslu hafa verið kallaðar út og slökkviliðin í umdæminu eru í viðbragðstöðu. 20.12.2006 15:16
Forseti Íslands sendir samúðarkveðju vegna andláts sjóliðsforingja Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi í dag Margréti Danadrottningu samúðarkveðju vegna andláts sjóliðsforingjans Jans Nordskovs Larsens sem drukknaði við björgunarstörf í tengslum við strand kýpverska skipsins Wilson Muuga. 20.12.2006 15:05
Sýknaður af ákæru um nauðgun Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað stúlku í maí síðastliðnum. Fólkið mun hafa hist á skemmtun og farið saman af skemmtuninni og á maðurinn að hafa naugðað stúlkunni á víðavangi skammt þar frá. 20.12.2006 14:58
Mesta vatnshæð síðan mælingar hófust Vatnamælirinn þar sem Hvítá rennur um Fremstaver hefur aldrei sýnt meiri vatnshæð síðan hann var settur upp. Snorri Zóphóníasson, hjá Vatnamælingum Orkustofnunar, býst við að rennsli Ölfusár við Selfoss vaxi fram að miðnætti í kvöld og geti náð 2000 rúmmetrum á sekúndu, sem er fimmfalt meðalrennsli þessarar vatnsmestu ár landsins. 20.12.2006 14:42
Efri stíflan í Djúpadalsvirkjun brast í úrhellinu Efri stíflan í Djúpadalsvirkjun í Eyjafjarðarsveit, skammt frá Melgerðismelum, brast í úrhellinu í morgun og æddi flóðbylgja niður ána og yfir Eyjafjarðarveg vestri þannig að hann rofnaði. 20.12.2006 14:11
Hestabjörgunin gengur vonum framar Hestabjörgun Björgunarfélagsins Eyvindar við Auðsholt í Hrunamannahreppi gengur vonum framar, að sögn Borgþórs Vignissonar, sem er á vettvangi. Í kringum hundrað hestar voru á flæðiskeri staddir í morgun þegar björgunarmenn komu á vettvang. Tveir litlir gúmmíbátar hafa smalað hestunum á sund og farið með þá á öruggan stað. 20.12.2006 14:09
Grjóthrun úr Óshlíð í morgun Nokkuð grjót hrundi á veginn um Óshlíð í morgun og var lögregla kölluð út til að aðstoða vegfaranda. Kona sem var á leið til Bolungarvíkur keyrði á grjóthnullung og sprengdi dekkið og skemmdi felguna. Vegagerðin ruddi veginn en ekki þurfti að loka honum. Ekki hefur hrunið frekar í dag, að sögn lögreglu á Ísafirði. 20.12.2006 13:47
Lyngdalsheiðin orðin ófær vegna vatnavaxta Lyngdalsheiði, sem liggur milli Þingvalla og Laugarvatns er orðin ófær vegna vatnavaxta og bætist þar með í hóp vega á Norður- og Suðurlandi sem lokast hafa vegna þess. Skeiðavegur er ófær þar sem Hvítá flæðir yfir veginn við Brúarhlöð og þá er Auðsholtsvegur, vegur 340, ófær vegna vatnavaxta við bæinn Auðsholt. 20.12.2006 13:43
Vegstikur hrökkva ekki til að marka öll umferðaróhöpp 5000 þúsund óhöpp, um 2500 slys og 54 banaslys hafa orðið á Suðurlandsvegi milli Reykjavíkur og Selfoss. Vegstikur beggja megin vegarins hrökkva ekki til að marka öll umferðaróhöppin sem orðið hafa á veginum. 20.12.2006 13:15
Íbúar og sumarhúsaeigendur í Árnessýslu hugi að eigum sínum Þrjár af fjórum almannavarnarnefndum í Árnessýslu funduðu á lögreglustöðinni á Selfossi kl. 11:30. Á fundinum sátu einnig fulltrúar Vatnamælinga og almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra. Íbúar og sumarhúsaeigendur í Árnessýslu eru hvattir til að gæta að eignum sínum. 20.12.2006 12:59
Hugsanlega stærsta flóð í hálfa öld Átta íbúðarhús eru innlyksa í Auðsholti og Hvítáin beljar allt um kring. Steinar Halldórsson, bóndi í Auðsholti í Hrunamannahreppi, segir fólkið vant vatnavöxtum en þetta gæti verið stærsta flóð síðan foreldrar hans fluttu að Auðsholti, fyrir 50 árum síðan. Og það rignir enn og vatnsborðið hækkar. 20.12.2006 12:59
Björguðu manni úr Djúpadalsá - lögreglubílar innlyksa Slökkviliðið á Akureyri bjargaði í morgun manni eftir að bíll hans lenti úti í Djúpadalsá í Eyjarfjarðarsveit nú fyrir hádegið. Svo virðist sem áin hafi grafið veginn í sundur með fyrrgreindum afleiðingum. Slökkvilið segir manninn hafa verið kaldan og hrakinn eftir volkið en lítið meiddan. 20.12.2006 12:33
Vegir víða lokaðir vegna vatnavaxtanna Vegfarendur eru varaðir við vatnavöxtum víða um land þar sem vatn gæti flætt upp á vegi. Skeiðavegur er ófær þar sem Hvítá flæðir yfir veginn við Brúarhlöð. Auðsholtsvegur, vegur 340, er ófær vegna vatnavaxta við bæinn Auðsholt. Það er ófært vegna vatnaskemmda við Ferjukot í Borgarfirði. Í Eyjafirði loka skriður vegi á þremur stöðum; á Hörgárdalsvegi við bæinn Skriðu, á Hólavegi við Grænuhlíð og á Eyjafjarðarbraut vestri er skriða í námunda við Skáldstaði. Eyjafjarðarbraut vestri er einnig í sundur vegna flóðs við Samkomugerði og má búast við að viðgerð þar taki einhverja daga. 20.12.2006 12:32
Hvítárnar í ham Hvítárnar bæði á Suðurlandi og í Borgarfirði eru í miklum ham og er búið að loka brúm og vegum við báðar árnar. Í Borgarfirðinum er búið að loka gömlu brúnni yfir Hvítána sem er millli Ferjukots og Hvítárvalla. Á Suðurlandi var brúnni á Brúarhlöðum lokað í morgun þar sem brúin var komin á kaf og vatn komið upp á veginn beggja vegna brúarinnar. 20.12.2006 12:30
Forðuðu sér undan skriðunni við Grænuhlíð Hjón og barn þeirra sluppu ómeidd út úr íbúðarhúsi sínu að Grænuhlíð í Eyjafjarðarsveit í morgun, þegar aurskriða féll á íbúðarhúsið og gripahúsin. Fólk átti svo fótum sínum fjör að launa þegar önnur skriða féll um ellefuleytið í morgun. Talið er tíu til fimmtán kálfar hafi drepist í fyrri skriðunni. 20.12.2006 12:19
Ekkert gert á strandstað fyrr en veður lægir Mengunarvarnarbúnaður er kominn á strandstaðinn í Hvalsnesi en ekkert verður að gert fyrr en veðuraðstæður leyfa og hægt verður að slaka mönnum og tækjakosti niður í skipið. Umhverfisstofnun stjórnar aðgerðum á strandstað nú þegar búið er að bjarga áhöfninni af skipinu. 20.12.2006 12:15
Laun æðstu embættismanna hækka í október og um áramót Kjararáð hefur ákveðið að laun þeirra sem heyra undir ráðið, þar meðal þingmenn, ráðherrar, forseti og dómarar, skuli hækka um 3,6 prósent afturvirkt frá 1. október 2006. Þá skuli þau hækka um 2,9 prósent um áramót. Úrskurður þar að lútandi var kveðinn upp í gær. 20.12.2006 12:01
Tveggja mánaða dómur fyrir kannabisrækt Karlmanns á fimmtugsaldri bíður tveggja mánaða fangelsi en hann var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sakfelldur fyrir fíkniefnabrot með því að hafa í vörslu sinni 2,5 grömm af hassi og kannabisræktun. 20.12.2006 11:36
Forðuðu sér undan skriðunni Önnnur skriða féll við bæinn Grænuhlíð í Eyjafjarðarsveit nú á tólfta tímanum. Fréttamaður Stöðvar 2 var að ræða við bóndann á bænum þegar miklar drunur kváðu við og allir forðuðu sér. 20.12.2006 11:31
Hjálmar Árnason vill lögreglurannsókn í málefnum Byrgisins Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, vill að lögreglurannsókn fari fram á málefnum meðferðarheimilisins Byrgsins í Grímsnesi og forstöðumanns þess Guðmundar Jónssonar í ljósi upplýsinga um kynferðislega misneytingu í sjónvarpsþættinum Kompási á sunnudaginn var. Hjálmar sagði í þættinum Ísland í bítið á Stöð2 í morgun, að hann væri ekki alveg sammála Ólafi Helga Kjatanssyni, sýslumanni á Selfossi, um að ekki væri ástæða til að láta fara fram rannsókn í málinu. 20.12.2006 11:31
Hálfs árs fangelsi fyrir líkamsárás Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. 20.12.2006 11:16
Ketkrókur dæmdur í hálfs árs fangelsi Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir búðarhnupl í sumar og haust. Manninum var gefið að sök að hafa stolið þremur lambalærum í einni verslun, einu læri í annarri verslun og lambakótilettum í þriðju versluninni. 20.12.2006 10:58
Flóðið í Hvítá verður við Selfoss um kl. 17 Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur sent frá sér tilkynningu vegna flóðs í Hvítá en veginum um Brúarhlöð hefur þegar verið lokað þar sem áin flæðir yfir veginn. Samkvæmt almannavörnum má búast við því að flóðið í ánni verði komið niður fyrir Vörðufell á Skeiðum upp úr kl.15 í dag og verði við Selfoss upp úr kl.17. 20.12.2006 10:43
Samúðarkveðjur til Dana Bæjarstjóri Sandgerðisbæjar, Sigurður Valur Ásbjarnarson, vottar áhöfn danska varðskipsins Trítons og dönsku þjóðinni samúðarkveðjur bæjarfulltrúa, út af sjóliðanum danska sem lést við björgun Wilson Muuga í gær. Einnig þakka bæjarfulltrúarnir vel unnin björgunarstörf í lögsögu bæjarins. 20.12.2006 10:31
Dæmdur í annað sinn fyrir nauðgun á rúmu ári Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu á heimili sínu í lok maí eða byrjun júní árs 2004. Þá var hann jafnframt dæmdur til að greiða henni eina milljón króna í miskabætur. Þetta er annar dómurinn sem maðurinn hlýtur á rúmu ári fyrir nauðgun en í fyrra var hann dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir naugðun. 20.12.2006 10:30
Holtavörðuheiði lokuð vegna vatnsflaums Þjóðvegur eitt er lokaður milli Brúar í Hrútafirði og Dalsminnis við Bröttubrekkuafleggjarann en mikill vatnsflaumur er á veginum vegna rigninga. Lokað er því fyrir alla umferð á Holtavörðuheiðina. Umferð er beint um Bröttubrekku og Laxárdalsheiði en sú leið er mun lengri og ekki öll malbikuð. 19.12.2006 23:00