Laun æðstu embættismanna hækka í október og um áramót 20. desember 2006 12:01 MYND/GVA
Kjararáð hefur ákveðið að laun þeirra sem heyra undir ráðið, þar meðal þingmenn, ráðherrar, forseti og dómarar, skuli hækka um 3,6 prósent afturvirkt frá 1. október 2006. Þá skuli þau hækka um 2,9 prósent um áramót. Úrskurður þar að lútandi var kveðinn upp í gær. Kjararáð tók við af Kjaradómi og kjaranefnd sem áður kváðu upp úrskurði um laun og starfskjör þjóðkjörinna manna, ráðherra og dómara og annarra ríkisstarfsmanna sem svo er háttað um að þau geta ekki ráðist með samningum á venjulegan hátt vegna eðlis starfanna eða samningsstöðu. Bent er á í úrskurði Kjararáðs að um áramótin hækki laun samkvæmt kjarasamningum um 2,9 prósent hjá flestum. Þá hafi ráðið kannað þróun launa á árinu sem er að líða og komist að því að lágmarkshækkun samkvæmt kjarasamningum var 5,5 prósent en af launavísitölum Hagstofu Íslands sést að laun að meðaltali hafi hækkað mun meira, bæði vegna kjarasamninga og launaskriðs. Síðasta launavísitala hafi hækkað um 11 prósent næstu tólf mánuði á undan. Á sama tíma hafi laun embættismanna og þjóðkjörinna fulltrúa sem heyra undir kjararáð hækkað um tæplega 5,6 prósent, 2,5 prósent 1. janúar og um 3 prósent 1. júlí samkvæmt úrskurði kjararáðs hinn 4. október. Bent er á að ákvarðanir kjararáðs sem leiða af hækkunum sem ekki verða beint lesnar úr kjarasamningum, svo sem hækkanir um launaflokka og launaskrið af öðrum ástæðum, komi ætíð eftir á og stafi af breytingum sem þegar hafi verið gerðar annars staðar. Af þessum sökum og vegna þess hve launahækkanir hafi verið miklar að undanförnu er það niðurstaða kjararáðs að nauðsynlegt sé að launahækkun til þeirra sem undir ráðið heyra verði skipt í tvennt; annars vegar til þess að taka mið af þeim launabreytingum sem orðið hafa á vinnumarkaði fram til septembermánaðar 2006, umfram þá hækkun sem fólst í úrskurði kjararáðs 4. október, og hins vegar vegna almennrar launahækkunar sem samið hefur verið um 1. janúar 2007.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira