Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þyrlur ekki enn komnar í gagnið aftur Landhelgisgæslan hefur ekki enn á að skipa nothæfri þyrlu þar sem viðgerðin á minni þyrlunni, TF SIF, hefur dregist á langinn vegna skorts á varahlutum. Hún átti að komast í gangið í fyrradag en er enn í viðgerð. 2.3.2006 09:00
Rætt um heimild til að nota tálbeitur Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, spyr Björn Bjarnason dómsmálaráðherra út í heimildir lögreglu til að leita uppi barnaníðinga í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag. 2.3.2006 08:59
Jarðgöng undir Vaðlaheiði vegna álvers? Hugmyndir um jarðgöng undri Vaðlaheiði við Akureyri hafa nú fengið byr undri báða vængi eftir undirritun viljayfirlýsingar um byggingu álvers við Húsavík í gær. 2.3.2006 08:45
Tveir til viðbótar segja upp við MÍ Tveir stjórnendur til viðbótar hafa sagt upp störfum við Menntaskólann á Ísafirði en Ólína Þorvarðardóttir skólameistari sagði upp störfum fyrr í vikunni. Munu það vera aðstoðarskólameistari og áfangastjóri sem hafa sagt upp og miðast uppsögn þeirra við lok skólaárs, í endaðan júlí. Haft er eftir Guðmundi Þór Kristjánssyni, áfangastjóra, á ruv.is að ástæða uppsagnar hans sé að hann sé búinn að fá nóg eftir áralangar deilur innan menntaskólans. 2.3.2006 08:30
Rannsaka fjármögnun kaupa á stofnfé Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsakar hvort fimm félög hafi fjármagnað kaupin á stofnfjárhlutum í Sparisjóði Hafnarfjarðar að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. 2.3.2006 08:00
Jóna Fanney segir upp Jóna Fanney Friðriksdóttir bæjarstjóri á Blönduósi hefur sagt upp störfum. Uppsagnarbréf hennar sem var tekið fyrir á fundi bæjarráðs í gær er stílað 27. febrúar og samkvæmt því lætur Jóna Fanney af störfum 1. júní næstkomandi, fáeinum dögum eftir bæjarstjórnarkosningar. 2.3.2006 07:45
Íslenskt skip staðið að ólöglegum veiðum Lögregla stendur nú vakt við íslenskt fiskiskip sem kom til Sandgerðis undir morgun eftir að hafa verið staðið að ólöglegum línuveiðum suðvestur af landinu í gær. 2.3.2006 07:30
Álver eykur ekki þenslu Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, telur að álversframkvæmdir á Bakka við Húsavík rúmist vel innan efnahagskerfisins. Hann segir nauðsynlegt að horfa til framtíðar en það sé gert með þessum framkvæmdum. 1.3.2006 23:19
Hagnaður Exista Íslandsmet Fjárfestingarfélagið Exista skilaði rúmlega 50 milljarða króna hagnaði í fyrra, sem er nýtt Íslandsmet. Fyrra metið átti KB-banki, sem skilaði tæpum 50 milljörðum í hagnað í fyrra, en KB-banki er einmitt einn aðaleigandi Exista. 1.3.2006 22:30
Sjálfstæðisflokkurinn fengi meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn fengi hreinan meirihluta í borginni þrátt fyrir að Samfylkingin bæti við sig fylgi þriðja mánuðinn í röð. Þetta er niðurstaða Þjóðarpúls Gallups sem var kynnt í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld. Litlu munar á að Samfylkingin tapi sínum sjötta manni til Sjálfstæðisflokksins sem þar með fengi níu menn í borgarstjórn. Oddviti Samfylkingarinnar segir flokkinn í sókn og kvíðir engu. 1.3.2006 22:13
Ekki tímabært að byggja þrjú álver Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að fyrirhugað álver á Bakka við Húsavík geti orsakað enn meiri sveiflur í efnahagslífinu. Hún segir að ríkisstjórnin eigi að fara sér hægt í frekari álversframkvæmdir. 1.3.2006 20:58
Allt í bál og brand Allt virðist komið í bál og brand í kjaradeilu slökkviliðsmanna og sveitarfélaga. Ekkert kom út úr sáttafundi í dag, en á föstudaginn kemur í ljós hvort af verkfalli verður. Slökkviliðsmenn hafa mótmælt víða um land í dag, en fréttastofa hitti um tvö hundruð þeirra á baráttufundi í Reykjavík og þeim var heitt í hamsi. 1.3.2006 19:30
Landsvirkjun hefur tilraunaboranir í sumar Landsvirkjun mun þegar í sumar hefja tilraunaboranir vegna þeirra jarðvarmavirkjana sem ætlað er að sjá væntanlegu álveri fyrir raforku. 1.3.2006 19:23
Ljósmæður vitja ekki lengur sængurkvenna Ljósmæður eru hættar að vitja sængurkvenna á heimili þeirra, eftir að samningur ljósmæðra og Tryggingastofnunar rann út á miðnætti. 1.3.2006 19:09
Ríkisstjórnin ætti að fá niðurlægingarverðlaun Ríkisstjórnin ætti að fá niðurlægingarverðlaun 21. aldar fyrir að skríða á hnjánum fyrir álherrum í Ameríku. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon og hvetur til þess að iðnaðarráðherra veiti þeim viðtöku fyrir hönd félaga sinna. 1.3.2006 19:02
Engin lausn í sjónmáli Enn er engin varanlega lausn komin í samningadeilu milli Ljósmæðrafélags Íslands og samninganefnd skipaðri af heilbrigðisráðherra, sem semur við sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn. Nefndin hefur þó fallist á að greiða þeim ljósmæðrum áfram laun sem enn sinna skjólstæðingum sínum, þrátt fyrir að samningurinn hafi runnið út á miðnætti í gær. 1.3.2006 18:53
Íslendingur í haldi bresku lögreglunnar Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri, sem lögreglan í Burnley á Englandi handtók í síðustu viku og sakar um rán á breskri stúlku, verður í gæsluvarðhaldi fram í byrjun apríl þegar mál hans verður tekið fyrir. 1.3.2006 18:45
Ungliðar mótmæltu álverframkvæmdum Ungliðar gegn stóriðju mótmæltu byggingu álvers á Bakka við Húsavík, á skrifstofum Alcoa á Suðurlandsbraut í dag. Lögregla fjarlægði ungliðana af skrifstofunum eftir skamma en hávaðasama viðveru þeirra þar. 1.3.2006 18:00
Félagsmálaráðherra ávarpaði fund Kvennanefndar SÞ Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, ávarpaði í dag 50. fund Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem nú stendur yfir í New York. Ráðherrann lagði áherslu á að enda þótt árangur hefði náðst á grundvelli þeirrar stefnu sem mörkuð var á Peking ráðstefnunni árið 1995 þá væri ljóst að enn væri mikið verk að vinna. 1.3.2006 17:03
Mótmælendur ruddust inn á skrifstofu Alcoa Um 20 ungir mótmælendur hafa ruðst inn á skrifstofur Alcoa við Suðurlandsbraut í Reykjavík og hafa þar í frammi mótmæli gegn byggingu álvers við Húsavík. Ungliðarnir krefjast þess að hætt verði við byggingu álversins og fallið frá stóriðjustefnu stjórnvalda. 1.3.2006 16:26
Enn er allt í hnút Enn er allt í hnút hjá samningarnefnd Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefnd sveitarfélaganna. Slökkviliðsmenn hafa mótmælt víða um land í dag. 1.3.2006 16:08
Bakki við Húsavík varð fyrir valinu Bandaríska álfyrirtækið Alcoa og ríkisstjórn Íslands hafa undirritað samkomulag um að hefja ítarlega könnun á hagkvæmni þess að reisa nýtt, 250.000 tonna álver á Bakka við Húsavík. Verði af byggingu þess mun álverið nota rafmagn sem að mestu verður framleitt með vistvænni jarðvarmaorku. Verði ákveðið að reisa nýtt álver á Norðurlandi er fyrstu framkvæmda á svæðinu ekki að vænta fyrr en árið 2010. 1.3.2006 15:00
ABC barnahjálp safnar fyrir skóla Það er ekki oft sem skrýmsli og furðuverur heimsækja Bessastaði en það gerðist í dag þegar Dorrit Moussaieff, forsetafrú, tók á móti börnum og gaf fé í söfnunina "Börn hjálpa börnum" sem hófst í dag og það var ekki annað að sjá en að Dorrit væri hin hressasta á Bessastöðum þegar hún tók á móti nemendum úr fimmta bekk Álftanesskóla. 1.3.2006 14:52
Gagnrýnir Nýsköpunarsjóð Runólfur Ágústsson telur að aðstandendur keppninnar um Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands séu komnir á hálan ís með afstöðu sinni til kvenna. Vísar hann til ummæla sem Hanna María Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs námsmanna, lét falla í fréttum NFS á mánudagskvöld. 1.3.2006 14:00
Dugir ekki að syngja fyrir hærri launum Slökkviliðsmenn mættu í fullum herklæðum fyrir utan Borgartún 30 og mótmæltu harðlega ósveigjanleika stjórnvalda í samningaviðræðum en Launanefnd sveitarfélaga fundaði í Borgartúni í hádeginu. Þeir voru mættir með kröfuspjöld og sögðu að ekki myndi duga að syngja öskudagslög fyrir hærri launum. Á spjöldunum sem mennirnir báru var auglýst eftir starfsmanni sem þyrfti að þora að leggja sig í lífshættu, þyrfti að geta þolað líkamlegt erfiði og andlegt álag og að viðkomandi gæti lent í stórhættu í hreinsun á efnaúrgangi. 1.3.2006 12:56
Sængurkvennadeildir fyllast Fæðingardeildir Landspítalans gætu fyllst á nokkrum klukkustundum nú þegar ljósmæður taka ekki við nýjum fjölskyldum í heimaþjónustu í sængurlegu. Samningur ljósmæðra og Tryggingastofnunar rann út á miðnætti og konur sem hefðu átt að fara heim í dag þurfa því að dvelja áfram á sængurlegudeildum sjúkrahúsa. Á fundi í gær höfnuðu ljósmæður tilboði tryggingastofnunar enda segjast þær vera komnar langt undir útreiknaðan kostnað við vitjanir. 1.3.2006 12:36
Húsvíkingar vongóðir um álver Andi Einars heitins Benediktssonar athafnaskálds mun væntanlega svífa yfir vötnum á æskuheimili hans í Gamla Bauki á Húsavík í dag, þar sem stuðningsmenn álvers við Húsavík, vonast til að geta fagnað nýju álveri í héraði síðdegis. 1.3.2006 12:00
Tímaritið aVs lagt niður Tímaritum landsins fækkar um eitt á föstudag. Þá verður tímaritið aVs formlega lagt niður en það hefur verið gefið út í röskan áratug. Í tímaritinu hefur verið fagleg umfjöllun um arkitektúr og skipulag auk tengdra málefna. 1.3.2006 11:45
Óvenju mikið um sjúkraflutninga Slökkviliðsmenn hafa haft í nægu að snúast síðasta sólarhringinn við sjúkraflutninga. Alls var farið í 88 útköll vegna slíkra flutninga frá klukkan átta í gærmorgun til klukkan átta í morgun og þykir það óvenju mikið. 1.3.2006 11:43
Slökkviliðsmenn krefjast hærri launa Fjöldi slökkviliðsmanna hefur safnast saman fyrir utan húsnæði Ríkissáttasemjara í Borgartúni. Með því vilja slökkviliðsmenn þrýsta á um að laun þeirra verði bætt til muna frá því sem nú er. 1.3.2006 11:37
Jeppa stolið í Grindavík Toyota Hi-Lux jeppa var stolið í Grindavík síðustu nótt og hefur ekki fundist. Bíllinn er blár að lit með bílnúmerið LT-053. Hann er með 38 tommu hjólbarða og krómaðan veltiboga. 1.3.2006 11:21
Svifryk yfir heilsuverndarmörkum Umhverfissvið Reykjavíkurborgar ráðleggur þeim sem eru með viðkvæm öndunarfæri að halda sig fjarri fjölförnum umferðargötum. Ástæðan er sú að svifryk í Reykjavík er hátt yfir heilsuverndarmörkum og er það annan daginn í röð sem slíkt gerist. 1.3.2006 10:51
Situr ráðherrafund í Kaupmannahöfn Sigríður Anna Þórðardóttir, samstarfsráðherra Norðurlanda, situr í dag fund samstarfsráðherra í Kaupmannahöfn. Þar á að leggja línurnar að helstu áherslum í starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar og ákveða fjárlög næsta árs. 1.3.2006 10:47
Fjögurra milljarða hagnaður Símans Síminn hagnaðist um rúma fjóra milljarða króna á síðasta ári. Það er þriðjungi meiri hagnaður en árið áður þegar félagið hagnaðist um þrjá milljarða króna. 1.3.2006 10:14
Íslendingur í bresku fangelsi Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri er í gæsluvarðhaldi í Burnley í Englandi, eftir að hann var handtekinn í síðustu viku á hótelherbergi, þar sem 14 ára bresk stúlka var með honum. 1.3.2006 10:00
Bjóða fram A-lista í Reykjanesbæ Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og óflokksbundnir í Reykjanesbæ ætla að bjóða sameiginlega fram til næstu bæjarstjórnarkosninga undir bókstafnum A. 1.3.2006 09:35
Einna minnst verðbólga á EES-svæðinu Verðbólga hérlendis síðasta árið mælist 1,3 prósent samkvæmt evrópsku neysluverðsvísitölunni, sem er samræmd verðbólgumæling EES-ríkjanna. Þetta er heldur minni verðbólga en á evrópska efnahagssvæðinu þar sem hún mælist 2,2 prósent og evrusvæðinu þar sem hún mælist 2,4%. 1.3.2006 09:20
Leita að Pompei austursins Haraldur Sigurðsson prófessor í haffræði hefur leitt hóp vísindamanna sem hefur fundið stað sem segja má að sé eins konar Pompei austursins. 1.3.2006 09:15
Vopnað rán upplýst Lögreglan í Kópavogi hefur upplýst vopnað rán sem var framið í lyfjaversluninni Apótekaranum 22. febrúar. Karlmaður á þrítugsaldri sem hefur alloft komist í kast við lögin hefur viðurkennt að hafa verið að verki. 1.3.2006 09:08
Ingimundur leiðir F-listann Ingimundur Þ. Guðnason, bæjarstjóri í Garðinum, skipar fyrsta sæti á framboðslista F-listans, lista framfarasinnaðra kjósenda, við sveitarstjórnarkosningar í vor. Ingimundur hefur verið bæjarstjóri í Garði frá 1990 og verður bæjarstjóraefni listans í kosningunum. 1.3.2006 09:05
Fons kaupir Skeljung á ný Stóru olíufélögin, sem áður fyrr voru einskonar kjölfesta í ákveðnum hagsmunahópum, ganga nú kaupum og sölum. Eignarhaldsfélagið Fons, í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar keyptu í gær Skeljung af Högum, sem er í Baugs-samstæðunni, samkvæmt frétt Morgunblaðsins. 1.3.2006 09:00
Sprengdu bor lausan Sprengjusérfræðingar sprengjusveitar Landhelgisgæslunnar fengu óvenjulegt verkefni á dögunum. Þá var kallað eftir þeirra hjálp til að losa jarðbor Íslenskra orkurannsókna sem var pikkfastur á rúmlega kílómetra dýpi nálægt Reykjanesvita. 1.3.2006 09:00
Heimaþjónusta við sængurkonur leggst af Heimaþjónusta ljósmæðra við sængurkonur, sem fara fljótt heim af fæðingadeildinni, lagðist af á miðnætti, en þá rann út samningur ljósmæðra við Tryggingastofnun, án þess að nýr samningur næðist. 1.3.2006 08:52
Verðlaunuð fyrir Reykjanesbæjarbók Þorgrímur Þráinsson og Ingibjörg M. Möller urðu hlutskörpust í samkeppni Reykjanesbæjar um handrit að barna- og unglingabók. 1.3.2006 08:45
Veðjað á álver Spákaupmenn á peningamarkaðnum virðast veðja á að álfyrirtækið Alcoa ætli að reisa álver fyrir norðan, því hækkun krónunnar um rösklega eitt prósent í gær er meðal annars rakin til væntinga til þess. 1.3.2006 08:30