Fleiri fréttir

Vistvernd í verki

Snæfellingar hafa á undanförnum árum lagt ríka áherslu á umhverfismál. Mikið starf er unnin undir merkjum Grænfánans og Bláfáninn blaktir við hún við Stykkilshólmshöfn.

Það borgar sig ekki fyrir Dani að mennta sig

Það borgar sig ekki fyrir Dani að mennta sig, sérstaklega ekki danskar konur. Eftir háskólanám geta þær átt von á 3% hækkun á launum sínum. Danski karlpeningurinn hefur örlítið forskot á dönsku konurnar en þeir geta átt von á 4,8% launahækkun eftir háskólanám.

Aðeins hálftíma sigling til Eyja

Siglingar á milli Vestmannaeyja og lands tækju aðeins um hálftíma ef hugmyndir nefndar um framtíðarsamgöngur til Vestmannaeyja um ferjulægi í Bakkafjöru verða að veruleika.

Á að segja af sér

Árni Magnússon félagsmálaráðherra á að segja af sér að mati Ungra vinstri grænna.

Lækka tolla ekki ótilneydd

Stjórnvöld lækka ekki tolla á innfluttar landbúnaðarafurðir fyrr en þau neyðast til þess vegna alþjóðasamþykkta. Þangað til verða Íslendingar að greiða hæsta matvælaverð í heimi segir formaður Neytendasamtakanna.

1. sætið?

Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi hefur boðað til blaðamannafundar síðar í dag. Dagur gekk fyrir skemmstu í raðir Samfylkingarinnar og á fundinum í dag kemur væntanlega í ljós hvort hann ætlar að bjóða sig fram í efsta sæti lista Samfylkingarinnar gegn þeim Steinunni Valdísi Óskarsdóttur og Stefáni Jóni Hafstein.

Aflaverðmæti íslenskra skipa dregst mikið saman

Aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa virðist hafa dregist mun meira saman en tölur Hagstofunnar gefa til kynna. Þetta kemur fram á vefnum Skip.is, þar sem viðmælandi vefsins bendir á að við útreikningana sé miðað við aflaverðmætið árið 2003 á föstu verðlagi, en ekki sé tekið tillit til gegnisþróunar. Vegna þess telji Hagstofan samdráttinn nema um þremur prósentum, en með tilliti til styrkingar krónunnar gaganvart SDR, sé nær að tala um 17 prósenta samdrátt í aflaverðmætum. Skeikar þarna mörgum milljörðum króna

Keyrt á ljósastaur

Það var þrefalt lán í óláni hjá ungum ökumanni, sem missti stjórn á bíl sínum í fljúgandi hálku og brattri brekku á Akureyri í gærkvöldi, að hann skyldi aka á stag að stórum ljósastaur, í stað þess að steypast niður bratta brekku. Við þunga bílsins brotnaði hinsvegar staurinn, sem var úr tré, en lenti rétt við hlið bílsins í stað þess að falla á hann. Staurinn dró með sér dræsur af neistandi raflínum, en þær lentu ekki heldur á bílnum, sem var ökufær eftir ósköpin. Ökumaðruinn beið ekki boðana og dreif sig út úr bænum, og var það ekki fyrr en norður á Tjörnesi, að Húsavíkurlögreglan stöðvaði hann.

Strandaði við Grundartanga

Gríska flutningaskipið Polyefkis, strandaði í fjörunni við álverið á Grundartanga um miðnætti síðustu nótt. Engin slys urðu á áhöfninni og litlar skemmdir er taldar hafa orðið á skipinu. Skipið var dregið að höfninni í Grundartanga í nótt.

Laus úr gæsluvarðhaldi

Maðurinn sem úrskurðaður var í einnar viku gæsluvarðhald síðastliðinn þriðjudag, eftir að um 200 kannabisplöntur og nokkur kíló af kannabisefnum fundust á heimili hans í uppsveitum Árnessýslu, hefur verið látinn laus.

Vélar á leið frá Bandaríkjunum lentu á Egilsstaðaflugvelli

Tvær farþegavélar á leið frá Bandaríkjunum þurftu að lenda á Egilsstaðaflugvelli í morgun vegna snjókomu í Keflavík. Nú hins vegar hefur snjókoman breyst í slydduél og samgöngur komnar því sem næst í eðlilegt horf á Keflavíkurflugvelli.

Björgólfur Thor fjárfestir ársins í Búlgaríu

Björgólfur Thor Björgólfsson var í gærkvöldi útnefndur fjárfestir ársins í Búlgaríu af búlgarska ríkisútvarpinu. Fyrirtæki Björgólfs Thors, Novator, fjárfesti nýverið í búlgarska landssímanum, BTC, og námu þau viðskipti nærri 100 milljörðum íslenskra króna.

Mjólkurbændur skulda um 20 milljarða króna

Mjólkurbændur á Íslandi skulda um tuttugu milljarða króna og hafa skuldirnar aukist mjög mikið á undanförnum árum. Þetta sagði Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, í viðtalsþættinum Skaftahlíð á NFS í dag. Skýringuna á þessu segir hann liggja í því að bændur hafi verið hvattir til að stækka mjólkurbúin, og mikil kappsemi hafi ráðið för.

Þyrlunni snúið við

Þyrlu Landhelgisgæslunnar var snúið aftur til Reykjavíkur skömmu eftir hádegi í dag en hún hafði haft viðdvöl á Ísafirði eftir að hafa verið kölluð út vegna slasaðs sjómanns. Skipið var statt um sextíu sjómílur norður af Horni þegar slysið varð en þar sem arfavitlaust veður var á svæðinu var ákveðið að bíða eftir því að veður lægði.

Skattbyrði lækkar aðeins hjá þeim tekjuhæstu

Skattbyrði hefur aukist hjá öllum síðustu tvö árin, nema þeim tekjuhæstu. Hjá þeim hefur skattbyrðin lækkað. Skattbyrði þeirra sem hafa hæstar tekjur hefur lækkað um 1,7 prósentustig en skattbyrði þeirra tekjulægstu hækkað um tæp þrjú prósent.

Þyrlan sækir slasaðan sjómann norður af Horni

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, var kölluð út í morgun til þess að sækja slasaðan sjómann um borð í skipi sem statt var um sextíu sjómílur norður af Horni. Maðurinn féll niður í lest skipsins og að sögn Gæslunnar kvartaði hann undan bakverkjum.

Bílvelta við Hrófá

Betur fór en á horfðist þegar maður á áttræðisaldri velti bíl sínum rétt sunnan við Hrófá á Vestfjörðum síðdegis í gær. Að sögn lögreglunnar á Hólmavík lenti bíll mannsins utan í umferðarmerki á blindhæð með þeim afleiðingum að hann snerist á veginum og fór eina veltu.

Landbúnaðarvörur ekki dýrar á Íslandi

Spánverjar eyða mun stærri hluta af sínum tekjum í kaup á matvælum en Íslendingar. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir landbúnaðarvöru ekki dýra á Íslandi.

Ófært á Fróðárheiði

Óveður er á Fróðárheiði og þar er ófært en annars er hálka, snjóþekja og snjókoma víða á Vesturlandi og á sunnanverðum Vestfjörðum, sem og á Hellisheiði og í Þrengslum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Menntaráð eykur fjárhæð til þróunarverkefna

Menntaráð Reykjavíkur ætlar að verja þrjátíu milljónum í verkefni sem tengjast nýsköpun og þróun í skólamálum. Menntaráð hefur því hækkað styrkupphæð til þrónarverkefna úr fjörutíu og fimm milljónum í sjötí og fimm.

Bóluefni gegn fuglaflensu

Heilbrigðisráðherrar Norðurlandanna náðu í dag samkomulagi um að þau standi saman að framleiðslu bóluefnis gegn fuglaflensu.

Sérsmíðaður semball í Salinn

Nýr sérsmíðaður semball er kominn í Salinn í Kópavogi og mun Jory Vinikour, bandarískur semballeikari, vígja hann á morgun.

Göngugarpar styrkja Sjónarhól

Göngugarparnir Bjarki Birgisson, Guðbrandur Einarsson og aðstoðarmaður þeirra Tómas Birgir Magnússon, sem gengu hringinn í kringum landið í sumar undir kjörorðinu "Haltur leiðir blindan" færðu Sjónarhóli 250 þús. króna jólagjöf.

VR félagar minntir á kjarasamninga og rétt til hvíldar

Nú stendur yfir ein mesta vinnutörn ársins hjá verslunarmönnum. Á undanförnum árum hefur verið gert stórátak í því að hjálpa þeim að gæta réttar síns á þessum árstíma. Talsvert hefur borið á því undanfarin ár að réttur verslunarmanna til hvíldartíma hefur gleymst í nóvember og desember þegar verslanir eru oft opnar í tólf tíma á sólarhring eða meira.

Börn gáfu jólapakka

Það ríkti gleði og sannkallaður jólaandi í Húsaskóla í dag þar sem börn úr fyrsta og öðrum bekk gáfu jólapakka til Mæðrastyrksnefndar. Það er mikilvægt að allir fái eitthvað fallegt um jólin sögðu börnin.

Baugur enn í kauphugleiðingum

Danska viðskiptablaðið Börsen fullyrðir í dag að Baugur sé að kaupa stærsta einkarekna fasteignafélag Danmerkur fyrir 30 milljarða króna.

Ríkisstjórnin styður Árna

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að Árni Magnússon félagsmálaráðherra hafi sinn stuðning og ríkisstjórnarinnar

Karlmaður slapp án meiðsla

Karlmaður slapp án meiðsla þegar bíll sem hann ók valt á veginum sunnan við Hrófsá rétt eftir klukkan tvö í dag

Ræningjar stela peningaflutningabíl

Tveir vopnaðir menn rændu peningaflutningabíl frá Securitas skammt frá Södertälje suður af Stokkhólmi í Svíþjóð í morgun.

Íslensk stjórnvöld ætla ekki að hefja sjálfstæða rannsókn á fangaflugi

Íslensk stjórnvöld hyggjast veita Evrópuþinginu allar þær upplýsingar sem gætu komið að góðum notum við rannsókn Evrópuráðsins á meintu fangaflugi bandarísku leyniþjónustunnar CIA og tilurð meintra leynifangelsa. Ríkisstjórnin ætlar þó ekki að hefja sjálfstæða rannsókn samkvæmt upplýsingum úr forsætisráðuneytinu.

Útgáfa fyrir 13 milljarða í vikunni

Erlendir aðilar hafa gefið út skuldabréf í íslenskum krónum fyrir um þrettán milljarða króna í þessari viku. Útgáfa erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum er því komin í tæpa hundra fimmtíu og tvo milljaðra króna.

Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 3,1 prósent

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði að um 3,1 prósent í nóvember frá fyrra mánuði. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Fasteignamati ríkisins. Síðastliðna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 49 prósent en um 35,5 prósent síðastliðna tólf mánuði.

Fimm fengu samtals hundrað milljónir

Fimm stærstu kúabú landsins fengu samanlagt rúmar hundrað milljónir króna í styrki úr ríkissjóði á síðasta verðlagsári. Árlega eru greiddir fjórir milljarðar króna í styrki til búvöruframleiðslu og þar af fer um helmingur í mjólkurframleiðslu.

Fundu fíkniefni og þýfi við húsleit í Hafnarfirði

Lögreglan í Hafnarfirði lagði hald á talsvert magn af ætluðum fíkniefnum og ýmsum tækjum sem talin eru þýfi við húsleit í bænum í gær. Að fengnum dómsúrskurði réðst lögreglan inn og lagði hald á ríflega 100 grömm af amfetamíni, yfir 100 grömm af hassi og rúmlega 200 LSD-skammta.

66 þúsund krónur fyrir laxinn

Dæmi eru um að hver veiddur lax úr einni á hafi kostað veiðimanninn 66 þúsund krónur í sumar en meðalverð úr sextán ám var tuttugu og átta þúsund krónur á laxinn.

Mjólka mótmælir úreltum reglum

Mjólka ehf. hefur sent landbúnaðaráðherra bréf þar sem þeir mótmæla harðlega að þurfa gefa upp trúnaðarupplýsingar til samkeppnisaðila. Tilefni mótmælanna er krafa Bændasamtaka Íslands á hendur Mjólku um skil á skýrslum á framleiðslu, sölu og birgðir mjólkurvara en Mjólka ehf. hóf nýlega framleiðslu mjólkurafurða án ríkisstyrkja.

216 milljóna króna munur í útboðinu

Tvö hundruð og sextán milljóna króna munur var á hæsta og lægsta tilboði í frárennslisskurð við Kárahnjúkavirkjun. Lægst bauð Héraðsverk á Egilsstöðum, 240 milljónir, sem er 126 milljónum undir kostnaðaráætlun, en hæsta boð átti KNH á Ísafirði, 455 milljónir, sem er 90 milljónum yfir kostnaðaráætlun.

Sjá næstu 50 fréttir