Fleiri
Metfjöldi á visir.is 14.12.2005 11:14 Fréttablaðið fær ekki afhent gögnin Fréttablaðið fær ekki afhent þau gögn sem sýslumaðurinn gerði upptæk í máli Jónínu Benediktsdóttur, að sögn lögmanns Jónínu. Hann segir lögbann sýslumannsins í Reykjavík enn vera í gildi, en Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Kára Jónasson af skaðabótakröfu Jónínu í morgun. 14.12.2005 11:07 Fréttablaðið sýknað Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, segir að fullnaðarsigur hafi fengist í máli Jónínu Benediktsdóttur gegn blaðinu vegna birtinga þess á tölvupóstum hennar. Dómur var kveðinn upp í málinu fyrir stundarfjórðungi á þá leið að ritstjóri Fréttablaðsins, Kári Jónasson, var sýknaður af skaðabótakröfu Jónínu. 14.12.2005 11:01 Fleiri vilja íslenskt vatn Útflutningur á íslensku vatni hefur aukist um þriðjung frá síðasta ári, en það er þrátt fyrir að síðustu þrír mánuðir þessa árs séu ekki taldir með. Forstjóri stærsta vatnsútflytjandans á íslensku vatni segir þó langt því frá að fyrirtækið sé dottið í lukkupottinn. 14.12.2005 10:15 95% félagsmanna Eflingar samþykktu kjarasamning við Reykjavíkurborg 14.12.2005 10:00 Dómur kveðinn upp í máli Jónínu Ben gegn Fréttablaðinu Dómur verður kveðinn upp í máli Jónínu Benediktsdóttur gegn Fréttablaðinu og Kára Jónassyni, ritstjóra blaðsins, í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan korter í ellefu. Málið snýst um tölvupósta Jónínu sem Fréttablaðið birti upplýsingar úr snemma í haust. <b>Bein útsending NFS frá Héraðsdómi er aðgengileg á VefTV Vísis. Dómur verður kveðinn upp klukkan 10:30</B> 14.12.2005 09:31 Hallæri í góðærinu Grundvöllur búsetu verður æ ótraustari í sjávarbyggðum á öllu norðanverðu landinu, frá Snæfellsnesi að Vopnafirði. Þingmenn úr röðum stjórnarliða og stjórnarandstöðu tala um ómarkvissa byggðastefnu og áhugaleysi stjórnvalda. 14.12.2005 09:30 Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést í umferðarslysi í Svalbarðsstrandarhreppi á mánudagsmorguninn hét Sigurður Arnar Róbertsson, fæddur árið 1967 í Reykjavík. Hann var búsettur að Laxagötu 6 á Akureyri. Sigurður lætur eftir sig þrjú börn. 14.12.2005 08:33 Fjögurra klukkustunda gjaldfrjáls leikskólavist Öll börn á Seyðisfirði fá fjögurra klukkustunda gjaldfrjálsa leikskólavist frá og með áramótum. Bæjarstjórn ákvað á fundi sínum í gær að bjóða dagfrjálsan leikskóla hálfan daginn fyrir börn á aldrinum eins til fjögurra ára en þetta stendur fimm ára börnum þegar til boða. 14.12.2005 08:07 Erlend fiskiskip að veiðum í íslenskri lögsögu? Landhelgisgæslan hefur rökstuddan grun um að erlend fiskiskip hafi leikið það undanfarnar vikur og mánuði að slökkva á fjareftirlitsbúnaði sínum að næturlagi, laumast allt að 20 sjómílur inn í íslensku fiskveiðilögsöguna og stundað þar veiðar. 14.12.2005 08:03 Sjá næstu 50 fréttir
Forysta leikskólakennara og Reykjavíkurborg funda í næstu viku Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgrstjóri vill koma eftirfarandi á framfæri vegna fréttar NFS fyrr í morgun varðandi kjarasamning leikskólakennara. Hún segir að til standi að funda með forystu leikskólakennarana 19. desember næstkomandi þegar niðurstaða úr atkvæðagreiðslu Eflingar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar muni liggja fyrir. 15.12.2005 08:17
Tæplega 4000 hænur drápust í bruna á Hornafirði Um 3600 hænur drápust þegar kviknaði í hænsnahúsi að bænum Grænahrauni á Hornafirði um klukkan tvö í gær. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. 15.12.2005 08:15
Boðað til launaráðstefnu í janúar Launanefnd sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum í gær tillögu formanns nefndarinnar, Gunnars Rafns Sigurbjörnssonar, um að boða til launaráðstefnu 20. janúar næstkomandi. Boðað er til ráðstefnunnar meðal annars vegna þeirra deilna sem upp hafa risið vegna nýgerðra kjarasamninga Reykjavíkurborgar við Eflingu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. 15.12.2005 08:00
Launanefnd sveitarfélaga samþykkti tillöguna Launanefnd sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum í gær tillögu formanns nefndarinnar, Gunnars Rafns Sigurbjörnssonar, um að boða til launaráðstefnu 20. janúar næstkomandi. Boðað er til ráðstefnunnar meðal annars vegna þeirra deilna sem upp hafa komið vegna nýgerðra kjarasamninga Reykjavíkurborgar við Eflingu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. 15.12.2005 07:26
Þrír bílar skemmdust vegna grjóthruns Þrír bílar urðu fyrir skemmdum vegna grjóthruns úr Óshlíð á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur í gær en engan sakaði. Einn bílanna hafnaði í vegrás ofan vegar en hún var full af vatni og flæddi inn í bílinn. Undirvagn á öðrum skemmdist og gat kom á bensíngeymi og hjólbarði eyðilagðist á þriðja bílnum. 15.12.2005 07:12
Áfram skrölti hann þó Ölvaður ökumaður, sem leið átti um Öxnadalinn í nótt, missti stjórn á bíl sínum sem fór út af veginum, valt heila veltu og kom niður á hjólinn aftur. Við það hvell sprakk á öðru framhjólinu, en með þrjú hjól undir bílnum, skrölti hann áfram- þó. 15.12.2005 07:12
Sendi ríkislögreglustjóra bréf varðandi fyrrum forstjóra Byggðastofnunar Magnús Þór Guðmundsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, sendi ríkislögreglustjóra bréf þar sem hann bendir á ummæli Kristinn H. Gunnarssonar, þingmanns Framsóknarflokks, varðandi afglöp fyrrum forstjóra Byggðastofnunar í starfi. Magnús Þór telur að afglöpin varði við lög, eigi fullyrðingar Kristins við staðreynd að styðjast, og furðar sig á því að málið hafi ekki verið rannsakað af lögreglu á sínum tíma. 14.12.2005 23:37
Þolinmæði leikskólakennara á þrotum Þolinmæði leikskólakennara í Reykjavík er þrotum. Þeir saka borgaryfirvöld um að sýna menntun sinni lítilsvirðingu og hroka og krefjast leiðréttingar á kjörum sýnum hið fyrsta. Launanefnd sveitarfélaga hyggst á næstunni funda með forystumönnum Félags leikskólakennara vegna málsins. 14.12.2005 23:16
Hefja aftur skipulagða leit á miðnætti Björgunarsveitarmenn hafa hætt leit í bili í Fossvoginum að Einari Haraldssyni, átján ára gömlum pilt, sem saknað er síðan eftir miðnætti. Björgunarsveitarmenn hefja aftur skipulagða leit í kringum miðnætti og ganga þá fjörur í Fossvoginum. 14.12.2005 21:50
Mæðrastyrksnefnd afhent jólatré Mæðrastyrksnefnd fékk jólatré afhent frá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar. Sú venja hefur skapast að gefa Mæðrastyrksnefnd jólatré eftir grisjun furulunda í útmörk Reykjavíkur. Ragnhildur G. Guðmundsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar, segir jólatrén koma sér vel og þegin af heilum hug. 14.12.2005 21:49
Leitað að 18 ára gömlum pilt Leit stendur yfir að Einari Haraldssyni, átján ára gömlum dreng , en ekkert hefur spurst til hans síðan hann rétt eftir miðnætti. Lögreglan í Reykjavík óskar eftir upplýsingum um ferðir Einars. 14.12.2005 21:13
Byrjuð á nýrri glæpasögu Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur og verkfræðingur er byrjuð á nýrri glæpasögu. Söguna skrifar hún á kvöldin hátt uppi á fjöllum í vinnubúðum við Kárahnjúka. 14.12.2005 21:11
Misskildi sitt eigið frumvarp Iðnaðarráðherra segist hafa misskilið sitt eigið frumvarp um breytingu á lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu. Það sé ekki rétt að handhafar rannsóknarleyfa á auðlindum í jörðu eigi að hafa forgang að virkjunarleyfi. Þingmaður Samfylkingarinnar segir að flokkurinn hefði stutt frumvarpið ef ákvæði um vilyrði ráðherra fyrir nýtingarleyfi hefði verið fellt brott. 14.12.2005 20:54
Kveikt í dagblöðum í fjölbýlishúsi Eldur kom upp í stigagangi í Grýtubakka tvö um fimm-leytið í dag. Töluverður reykur var í stigaganginum þegar lögregla kom að, en eldurinn logaði ekki lengur. Svo virðist sem einhverjir óprúttnir náungar hafi kveikt í bunka af dagblöðum, en lögregla veit ekki en hver eða hverjir voru að verki. 14.12.2005 20:50
Félag um lýðheilsu mótmælir lokun Heilsuverndarstöðvar Aðalfundur Félags um lýðheilsu lýsir áhyggjum sínum yfir að Heilsuverndarstöðin sem akkeri og minnismerki í heilsuvernd á Íslandi hverfi úr því hlutverki. Ráðamenn eru hvattir til að tryggja áframhaldandi stöðu Heilsuverndarstöðvarinnar og starfsemi hennar í í lýðheilsu Íslendinga. 14.12.2005 20:03
Barnadauði á Íslandi er sá lægsti í heiminum Atli Dagbjartsson, yfirlæknir á vökudeild segir ástæður fyrir lágri tíðni ungbarnadauða á Íslandi vera meðal annars góð mæðravernd, meðferð og lækningar við fæðingu og virkt ungbarnaeftirlit, sem farið er eftir. 14.12.2005 19:57
Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla háu matvöruverði Samtök ferðaþjónustunnar taka undir með Samkeppniseftirlitinu að óásættanlegt sé að íslenskir neytendur og veitingahúsin í landinu, greiði 42% hærra verð fyrir matvæli en aðrar þjóðir í ESB löndunum. 14.12.2005 19:00
Óskað eftir upplýsingum um piltinn Lögreglan í Reykjavík óskar eftir upplýsingum um ferðir Einars Haraldssonar. Hann er 18 ára og fór frá Laugarásbíói um kl 00:30 og hefur ekki sést síðan. Grunur leikur á að Einar hafi farið í átt að Öskjuhlíð. 14.12.2005 18:54
Jónas ekki sáttur Jónas Garðarson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, hefur ýmislegt að athuga við rannsókn sjóslyssins á Viðeyjarsundi. Það hvarflar ekki að honum að segja af sér formennsku vegna málsins. 14.12.2005 18:45
Ekki enn fundinn Lögregla hefur ekki enn fundið 18 ára gamlan dreng sem hefur verið leitað síðan síðdegis í dag. Ekki hefur spurst til hans síðan um miðnættið í gær, en þá sást til hans við Öskjuhlíð. Fjölmennt leitarlið er nú í Öskjuhliðinni. 14.12.2005 18:37
Stúlkan fundin Lögreglan hefur fundið tíu ára gamla þroskahefta stúlku sem leitað var að í Hlíðunum í dag. Hún var hjá vinkonu sinni og kom í leitirnar þar. 14.12.2005 17:37
Starfshópur skipaður um aðgerðaráætlunina "Einfaldara Ísland" Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur skipað starfshóp með fulltrúum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins til að undirbúa aðgerðaráætlunina „ Einfaldara Ísland." Meginmarkmið áætlunarinnar, sem kynnt var í stefnuræðu forsætisráðherra nú í haust, verður einföldun laga og reglna, ekki síst til þess að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. 14.12.2005 17:23
Jólin klámvædd í gosdrykkjaauglýsingu? „Það vilja allar mömmur kyssa jólasveininn okkar." Þetta fullyrðir Ölgerðin í auglýsingu sem birst hefur í dagblöðum síðustu daga þar sem sjá má jólasvein með bera bringu, og konu krjúpandi við hlið sér. „Klámvæðing á jólunum," segja femínistar. 14.12.2005 17:20
Karlmenn um 88% viðmælenda í íþróttafréttum Karlar eru mun meira áberandi í fjölmiðlum en konur. Svipuð kynjahlutföll eru í fréttum, sjónvarpsþáttum og auglýsingum en það hallar verulega á hlut kvenna. Hlutfall karla í fjölmiðlum er á bilinu 65-80% á móti 20-35% kvenna en hlutfallið breytist lítillega eftir því hvort um er að ræða auglýsingar, fréttir, fréttatengda þætti eða sjónvarpsþætti. 14.12.2005 17:15
Lögbann á gögn áfram í gildi Fréttablaðið fær ekki afhent þau gögn sem sýslumaðurinn í Reykjavík gerði upptæk að kröfu Jónínu Benediktsdóttur í september síðastliðnum þrátt fyrir dóminn sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þar sem blaðið var sýknað af kröfum Jónínu. Að sögn Sigurjóns M. Egilssonar, fréttaritstjóra Fréttablaðsins, gildir lögbann sýslumanns enn þar sem málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. 14.12.2005 17:08
Baugur Group gengur frá kaupum í Þætti eignarhaldsfélagi Baugur Group hefur gengið frá kaupum á tuttugu prósent hluti í Þætti eignarhaldsfélagi ehf. Kaupverðið verður greitt í reiðufé og hlutabréfum í Íslandsbanka. Þáttur sem áður var að fullu í eigu Milestone ehf., mun um leið taka yfir rúmlega sextán komma fjögur prósenta eignahlut Milstone í Íslandsbanka og ríflega sextíu og sex prósenta hluti í Sjóvá. 14.12.2005 17:01
Leitað að 10 ára stúlku og ungum manni Lögreglan í Reykjavík hefur hafið leit að tíu ára gamalli stúlku sem ekki hefur spurst til síðan á milli tvö og þrjú í dag. Síðast sást til hennar við Hamrahlíðina í Reykjavík. Þá leitar fjölmennt lið björgunarsveitarmanna og lögreglu nú að ungum manni sem ekkert hefur spurst til síðan um miðnættið í gær. Síðast spurðist til mannsins við Öskjuhlíð og því einblína leitarmenn á svæðið þar í kring. 14.12.2005 16:54
Mörgu ábótavant í mannréttindamálum hérlendis Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins kynnti skýrslu sína til úrbóta um stöðu mannréttindamála á Íslandi. hann hefur margt við mannréttindamál hérlendis að athuga og leggur fram fjölmargar breytingartillögur. Hann vill m.a. endurskoða ráðningarferli hæstaréttardómara og bæta aðgang fanga að sálfræðiaðstoð. 14.12.2005 16:45
Ráðamenn tryggi áframhaldandi stöðu Heilsuverndarstöðvar Félag um lýðheilsu lýsir áhyggjum sínum yfir að Heilsuverndarstöðin sem akkeri og minnismerki í heilsuvernd á Íslandi hverfi úr því hlutverki, en eins og greint hefur verið frá hefur húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg verið selt. Í ályktun frá félaginu eru ráðamenn hvattir til að tryggja áframhaldandi stöðu Heilsuverndarstöðvarinnar og starfsemi hennar í lýðheilsu Íslendinga. 14.12.2005 16:41
Fimm sækja um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjaness Fimm umsækjendur eru um embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjaness sem taka mun til starfa 1. febrúar á næstkomandi. 14.12.2005 15:30
Jarðskjálfti upp á 3 á Richter úti fyrir Grímsey Jarðskjálfti upp á þrjá á Richter mældst um tólf kílómetra norður af Grímsey í nótt. Frá því í gær hafa 16 skjálftar mælst þar, flestir minni en tveir að stærð. Jarðskjálftahrinur eru algengar á þessu svæði. 14.12.2005 15:15
Hefur lagt hald á yfir 500 kannabisplöntur á árinu Lögregla er búin að leggja hald á nokkuð á sjötta hundrað kannabisplöntur á árinu og er talið að næstum allt marijúana, sem neytt er hér á landi, sé framleitt innanlands. 14.12.2005 14:55
Hjálmar leiðréttir misskilning sinn Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, segir sér bæði ljúft og skylt að leiðrétta misskilning sinn um tímasetningu ráðgjafar ríkislögmanns í máli Valgerðar H. Bjarnadóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu, gegn ríkinu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Hjálmar sendi frá sér í dag. 14.12.2005 13:07
Matvæli dýrust á Íslandi af löndum Evrópu Matvæli er dýrust á Íslandi af löndum Evrópu. Matvöruverð hérlendis er 42 prósentum hærra en að meðaltali í löndum Evrópusambandsins. Innflutningshömlur á búvörum eru talin helsta skýringin, að því er fram kemur í skýrslu samkeppniseftirlita á Norðurlöndum, sem kynnt var í morgun. 14.12.2005 12:50
Tíðni ungbarnadauða í heiminum lægst á Íslandi Tíðni ungbarnadauða í heiminum er lægst á Íslandi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem birt var í morgun. Hundruð milljóna barna þjást vegna mikillar misnotkunar og kúgunar og eru beinlínis ósýnileg gagnvart umheiminum. 14.12.2005 12:16
Fréttablaðið fær ekki afhent gögnin Fréttablaðið fær ekki afhent þau gögn sem sýslumaðurinn gerði upptæk í máli Jónínu Benediktsdóttur, að sögn lögmanns Jónínu. Hann segir lögbann sýslumannsins í Reykjavík enn vera í gildi, en Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Kára Jónasson af skaðabótakröfu Jónínu í morgun. 14.12.2005 11:07
Fréttablaðið sýknað Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, segir að fullnaðarsigur hafi fengist í máli Jónínu Benediktsdóttur gegn blaðinu vegna birtinga þess á tölvupóstum hennar. Dómur var kveðinn upp í málinu fyrir stundarfjórðungi á þá leið að ritstjóri Fréttablaðsins, Kári Jónasson, var sýknaður af skaðabótakröfu Jónínu. 14.12.2005 11:01
Fleiri vilja íslenskt vatn Útflutningur á íslensku vatni hefur aukist um þriðjung frá síðasta ári, en það er þrátt fyrir að síðustu þrír mánuðir þessa árs séu ekki taldir með. Forstjóri stærsta vatnsútflytjandans á íslensku vatni segir þó langt því frá að fyrirtækið sé dottið í lukkupottinn. 14.12.2005 10:15
Dómur kveðinn upp í máli Jónínu Ben gegn Fréttablaðinu Dómur verður kveðinn upp í máli Jónínu Benediktsdóttur gegn Fréttablaðinu og Kára Jónassyni, ritstjóra blaðsins, í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan korter í ellefu. Málið snýst um tölvupósta Jónínu sem Fréttablaðið birti upplýsingar úr snemma í haust. <b>Bein útsending NFS frá Héraðsdómi er aðgengileg á VefTV Vísis. Dómur verður kveðinn upp klukkan 10:30</B> 14.12.2005 09:31
Hallæri í góðærinu Grundvöllur búsetu verður æ ótraustari í sjávarbyggðum á öllu norðanverðu landinu, frá Snæfellsnesi að Vopnafirði. Þingmenn úr röðum stjórnarliða og stjórnarandstöðu tala um ómarkvissa byggðastefnu og áhugaleysi stjórnvalda. 14.12.2005 09:30
Nafn mannsins sem lést Maðurinn sem lést í umferðarslysi í Svalbarðsstrandarhreppi á mánudagsmorguninn hét Sigurður Arnar Róbertsson, fæddur árið 1967 í Reykjavík. Hann var búsettur að Laxagötu 6 á Akureyri. Sigurður lætur eftir sig þrjú börn. 14.12.2005 08:33
Fjögurra klukkustunda gjaldfrjáls leikskólavist Öll börn á Seyðisfirði fá fjögurra klukkustunda gjaldfrjálsa leikskólavist frá og með áramótum. Bæjarstjórn ákvað á fundi sínum í gær að bjóða dagfrjálsan leikskóla hálfan daginn fyrir börn á aldrinum eins til fjögurra ára en þetta stendur fimm ára börnum þegar til boða. 14.12.2005 08:07
Erlend fiskiskip að veiðum í íslenskri lögsögu? Landhelgisgæslan hefur rökstuddan grun um að erlend fiskiskip hafi leikið það undanfarnar vikur og mánuði að slökkva á fjareftirlitsbúnaði sínum að næturlagi, laumast allt að 20 sjómílur inn í íslensku fiskveiðilögsöguna og stundað þar veiðar. 14.12.2005 08:03