Fleiri fréttir

Nafn mannsins sem lést

Maðurinn sem lést í umferðarslysi í Svalbarðsstrandarhreppi á mánudagsmorguninn hét Sigurður Arnar Róbertsson, fæddur árið 1967 í Reykjavík. Hann var búsettur að Laxagötu 6 á Akureyri. Sigurður lætur eftir sig þrjú börn.

Fjögurra klukkustunda gjaldfrjáls leikskólavist

Öll börn á Seyðisfirði fá fjögurra klukkustunda gjaldfrjálsa leikskólavist frá og með áramótum. Bæjarstjórn ákvað á fundi sínum í gær að bjóða dagfrjálsan leikskóla hálfan daginn fyrir börn á aldrinum eins til fjögurra ára en þetta stendur fimm ára börnum þegar til boða.

Erlend fiskiskip að veiðum í íslenskri lögsögu?

Landhelgisgæslan hefur rökstuddan grun um að erlend fiskiskip hafi leikið það undanfarnar vikur og mánuði að slökkva á fjareftirlitsbúnaði sínum að næturlagi, laumast allt að 20 sjómílur inn í íslensku fiskveiðilögsöguna og stundað þar veiðar.

Tólf fangar í ónýtu fangelsi

Tólf fangar sitja nú í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg, sem rekið hefur verið á undanþágum um áratuga skeið. Í bráðabirgðaskýrslu eftirlitsnefndar Evrópuráðsins segir það óásættanlegt að gæsluvarðhaldsfangar skuli vistaðir þar, enda standist það engan veginn þær kröfur sem nú séu gerðar til slíkra fangelsa.

Óviðunandi árangur í byggðapólitík

Árangur stjórnvalda er rýr og jafnvel óviðunandi í byggðamálum segir í umsögnum um framvindu byggðaáætlunar 2002 til 2005. Meginmarkmið í áætluninni eru sögð skýrari nú en í fyrri áætlunum. Þó skorti á að þeim sé fylgt eftir.

100% verðmunur

Allt að 100 prósent verðmunur var á jólabókum í gær að því er fram kemur á fréttavef ASÍ. Þetta eru niðurstöður verðlagseftirlits ASÍ í fjórtán verslunum á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Bónus var oftast með lægsta verðið á 26 titlum af 36 en oft var lítill verðmunur milli Bónuss og Nettós.

Hundrað prósenta verðmunur

Það munar allt að hundrað prósentum á verði nýrra bóka milli verslana samkvæmt verðkönnun Alþýðusambands Íslands og algengt er að fimmtíu prósentum eða meira muni á hæsta og lægsta verði.

Páfagarður harmar aftöku Stanley W. Tookie

Páfagarður harmaði í dag að morðinginn Stanley Tookie Williams skyldi hafa verið tekinn af lífi í Bandaríkjunum. Fjölmargir aðrir hafa fordæmt aftökuna, en Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri í Kaliforníu, neitaði að náða Tookie.

Vilja aðgang að heilsufarsupplýsingum sínum á netinu

Rúmlega níu af hverjum tíu telja sig eiga að hafa aðgang að eigin heilsufarsupplýsingum á Netinu, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar frá Háskóla Íslands. Jafnmargir telja að forráðamenn eigi að hafa slíkan aðgang að upplýsingum um börn sín.

Sjaldgæft að kvikni í bifreiðum í árekstri

Afar sjaldgæft er að eldur komi upp í bílum eftir árekstra eða veltur, að sögn framkvæmdastjóra Rannsóknarnefndar umferðaslysa, en í gær kviknaði í bifreið í banaslysinu í austanverðum Eyjafirði.

Athugun á flutningi olíubirgðastöðvar hefur dregist

Samþykkt var í borgarstjórn fyrir um ári að starfshópur færi í að athuga með flutning olíubirgðastöðvarinnar í Örfirisey. Sú vinna hefur dregist um marga mánuði en hópurinn fer á fund með forsvarsmönnum olíufélaganna í lok vikunnar.

Gripinn með nokkur kíló af hassi í Leifsstöð

Karlmaður situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið tekinn með nokkur kíló af hassi í fórum sínum í Leifsstöð. Þetta er mesta magn af hassi sem tekið hefur verið á einum manni það sem af er árinu.

Lést í umferðarslysi í Svalbarðstrandarhreppi

Maðurinn sem lést í umferðarslysi í Svalbarðsstrandarhreppi í gærrmorgun hét Sigurður Arnar Róbertsson, fæddur árið 1967 í Reykjavík. Hann var búsettur að Laxagötu 6 á Akureyri. Sigurður lætur eftir sig þrjú börn.

Fornminjar fundust við Útskála í Garði

Fornleifar frá lokum víkingaaldar fundust við jarðrask vegna framkvæmda að Útskálum í Garði í gær. Björgunaruppgröftur fornleifafræðinga er hafinn því að ekki stendur til að hætta við framkvæmdirnar, þótt mannvistarleifarnar séu mjög fornar.

Seld til útlanda fyrir metfé

JPV útgáfa hefur selt útgáfuréttinn að bók Árna Þórarinssonar Tíma nornarinnar til Þýskalands fyrir tveggja og hálfrar milljóna króna fyrirframgreiðslu. Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi segir þetta líklega hæstu fyrirframgreiðslu sem fengist hefur fyrir íslenska bók í útlöndum.

Auðlindafrumvarp ráðherra þvert á niðurstöður nefndar

Frumvarp iðnaðarráðherra um rannsóknir og nýtingu á auðlindum jarðar gengur þvert á niðurstöður auðlindanefndar, sem Davíð Oddsson skipaði á sínum tíma. Meginniðurstöður þeirrar nefndar voru að jafnræði ætti að ríkja við úthlutun og að greiða þyrfti gjald fyrir afnotin.

Lögregla fann stolinn jeppa og hluti úr öðrum

Lögreglan á Selfossi fann á dögunum Nissan Patrol jeppa sem stolið hafði verið í Njarðvík í byrjun nóvember. Eftir ábendingu fannst jeppinn í bílskúr í bænum og í ljós kom að maður í Þorlákshöfn leigði skúrinn. Sá var handtekinn og færður í fangageymslur. Í jeppanum fundust hlutir sem tengdust öðrum Partrol-jeppa sem stolið var í Reykjavík í síðustu viku og fannst strípaður við Rauðavatn.

Ærumeiðandi skilaboð á garðvegg fyrrverandi forstjóra Skeljungs

Þú ert mesti þjófur Íslands! Þessi orð úðaði spellvirki á garðvegg hjónanna Kristins Björnssonar, fyrrverandi forstjóra Skeljungs, og Sólveigar Pétursdóttur alþingismanns, við Fjólugötu. Lögreglunni var tilkynnt um spellvirkið rétt fyrir klukkan tvö í dag og í þann mund er fréttamann bar að garði var vinur þeirra hjóna í óða önn að mála yfir veggjakrotið. Hjónin eru stödd í útlöndum. Lögreglan leitar nú vísbendinga um hver hafi staðið að þessu skemmdarverki.

Persónulegir munir Bobby Fischer til sölu á ebay

Sautján stórir pappakassar eru til sölu á ebay og innihalda rúmlega eitt þúsund hluti sem eru eða voru í eigu skáksnillingsins Bobbys Fischers. Álitamál er hvort uppboðið sé lögmætt og hafa hópar hérlendis sem erlendis áhuga á að athuga hvort hægt verði að koma búslóðinni í hendur Fichers.

Skipstjóri Hörpunnar var ölvaður þegar báturinn steytti á skeri

Eigandi skemmtibátsins Hörpunnar sem steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi í haust og sökk með þeim afleiðingum að tveir fórust, var undir áhrifum áfengis þegar hann stýrði skipinu. Hann var einn við stjórn bátsins í ferðinni. Þetta er niðurstaða rannsóknar lögreglunnar á tildrögum slyssins.

Krafist verður gæsluvarðhalds vegna kannabisræktunar

Lögreglan í Árnessýslu hyggst fara fram á að maðurinn, sem handtekinn var í morgun eftir að um 150 kannabisplöntur fundust í sláturhúsi við Laugarás í Bláskógabyggð, verði úrskurðaður í gæsluvarðhald. Ekki hafa þó fengist upplýsingar um hversu lengi það á að vera.

Nýbygging við heilsugæslustöð á Skagaströnd

Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, undirritaði í dag verksamning vegna nýbyggingar Heilsugæslustöðvar á Skagaströnd. Við sama tækifæri tók ráðherrann fyrstu skóflustungu að nýbyggingunni, en húsið verður reist austan við hús dvalarheimilisins Sæborgar og tengist því með tengigangi.

Flest börn ganga eða hjóla í skólann

Tæplega 80 prósent grunnskólabarna fara fótgangandi eða á hjóli í skólann sinn að vetri til en einungis rúmlega 20 prósent með einkabíl eða í strætisvagni. Þetta kemur fram í símakönnun sem IMG Gallup gerði fyrir Umhverfissvið Reykjavíkurborgar á ferðamáta grunnskólabarna í síðasta mánuði.

Skilorðsbundinn dómur vegna fíkniefnabrota

Ungur karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur í eins mánaðar fangelsi, sem skilorðsbundið er til þriggja ára, fyrir fíkniefnabrot. Maðurinn var handtekinn þegar lögregla fann á honum nokkur grömm af marijúana eftir að hafa stöðvað bíl hans. Við leit heima hjá manninum fundust um 80 grömm af hassi, hátt 40 grömm af marijúana auk kannabisfræja.

Í fangelsi fyrir umferðarlagabrot

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann í mánaðarfangelsi og til sviptingar ökuréttinda ævilangt fyrir tvö umferðalagabrot á þessu ári. Maðurinn var ákærður fyrir of hraðan akstur annars vegar og ölvunarakstur hins vegar en hann hefur áður komist í kast við lögin og verið dæmdur fyrir bæði þjófnaði og umferðarlagabrot.

Stíga frekari skref í átt til gjaldfrjáls leikskóla

Bæjarstjórn Seyðisfjarðar hefur samþykkt að stefna að því ap tryggja öllum börnum með lögheimili á Seyðisfirði á aldrinum eins árs til fimm ára fjögurra tíma dvöl á leikskóla bæjarins án endurgjalds, en þetta er liður í fjölskyldustefnu bæjarins. Þetta er annað skrefið í átt að gjaldfrjálsum leikskóla en fyrir um ári var leikskólinn gerður gjaldfrjáls í 4 tíma fyrir 5 ára börnin.

Kristján skipaður ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneyti

Kristján Skarphéðinsson hefur verið skipaður ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu frá áramótum eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. Kristján er 48 ára að aldri og hefur verið skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneytinu frá árinu 1999 og settur ráðuneytisstjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytum frá 1. janúar 2003.

Úrskurður óbyggðanefndar ekki felldur úr gildi

Íslenska ríkið var í dag sýknað í Héraðsdómi Suðurlands af kröfum Prestsetrasjóðs um að úrskurður óbyggðanefndar vegna þjóðlenda í Hrunamannahreppi yrði felldur úr gildi að hluta til.

Maður með hníf handtekinn í miðbænum í dag

Lögreglan í Reykjavík handtók í dag mann á sextugsaldri í miðborginni sem gengið hafði á milli verslana með stóran hníf. Að sögn lögreglu ógnaði hann þó engum en setti hnífinn, sem var með um 15 sentímetra blaði, milli tanna sér.

Fasteignaverð hefur hækkað mest á Vesturlandi

Fasteignaverð hefur hækkað mest á Vesturlandi á undanförnum fimmtán árum. Verðið er þó hæst á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um þróun fasteignaverðs hér á landi sem kynnt var í dag.

Dæmdir til að greiða sekt vegna ummæla um Ástþór

Illugi Jökulsson, fyrrverandi ritstjóri DV, og Mikael Torfason, ritstjóri DV, voru sýknaðir af miskabótakröfu Ástþórs Magnússonar vegna skrifa í DV en nokkur ummæli sem féllu um Ástþór dæmd ómerk.

Gunnar lagður af stað af suðurpólnum

Gunnar Egilsson, sem í gær bætti heimsmetið í að komast á suðurpólinn á sem stystum tíma ásamt breskum félögum sínum, er lagður af stað af pólnum aftur. Í samtali við vefinn Suðurland.net skömmu fyrir klukkan tíu í gærkvöldi sagði hann þá félaga vera búna að hvíla sig og að þeir væru að gera sig klára í heimferðina.

Metaukning innflutnings

Innflutningur hefur aldrei aukist jafn mikið á einum ársfjórðungi og á þriðja ársfjórðungi ársins 2005 en þá jókst hann um 32,2 prósent. Á sama tíma minnkaði útflutningur um 3,3 prósent.

Slapp ótrúlega vel úr vinnuslysi

Maður slapp nær ómeiddur þegar þrjú fiskikör féllu á hann ofan af vörubifreið sem hann vann við að afferma í Grindavík í gær. Víkurfréttir greina frá því að maðurinn hafi verið fluttur á slysadeild Landspítalans í Reykjavík en reyndist einungis hafa marist nokkuð og fékk að fara heim að skoðun lokinni.

Hraðvirkasta leitarvélin fyrir flug

Dohop.com opnaði í dag nýja gerð flugleitarvélar sem inniheldur 650 flugfélög, þar með talin 80 lággjaldafélög. Aðstandendur vefsins segja leitarvélina bæði ítarlegri og hraðvirkari en áður hefur þekkst.

Verzlunarmannafélag Reykjavíkur barn síns tíma

Verzlunarmannafélag Reykjavíkur er barn síns tíma og á ekki lengur við - það er að segja, nafn félagsins. Þetta er mat stjórnenda VR og því hefur verið boðað til samkeppni um nýtt nafn.

Fundu kannabisplöntur við húsleit

Lögreglumenn frá Selfossi fundu í morgun á annað hundrað kannabisplöntur og talsvert af Marijuana við húsleit í uppsveitum Árnessýslu. Einn maður hefur verið handtekinn vegna málsins og eru lögreglumenn enn á vettvangi. Maðurinn mun áður hafa gerst bortlegur við lög.

200 samningslausir sjómenn

"Ég er nokkuð viss um að við erum eina stéttin í landinu sem hefur enga samninga og því dapra stöðu gagnvart okkar vinnuveitendum," segir Þorkell Pétursson, smábátasjómaður frá Skagaströnd. Hann er í hópi tæplega 200 sjómanna sem hafa enga samninga við útgerðir þær er eiga þá smábáta er þeir starfa á.

Heimabankaræninginn viðurkennir verknaðinn

Tæplega þrítugur karlmaður hefur viðurkennt að hafa stolið um tveimur milljónum króna úr heimabönkum í nokkrum færslum. Hann hefur hins vegar ekki viljað segja hvað hann gerði við peningana og hefur lögregla ekki haft uppi á þeim.

Ekkert frekara grjóthrun í Óshlíð

Ekkert frekara grjóthrun hefur orðið í Óshlíð á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur eftir að nokkur björg, tvö til fjögur tonn að þyngd, féllu niður á veginn á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Svo vel vildi til að engin átti leið um veginn í sama mund og hrunið varð og hlutust því engin slys af.

Handtekinn með fíkniefni eftir eltingarleik

Ökumaður bíls, sem var á leið niður Ártúnsbrekkuna á sjötta tímanum í morgun, gaf allt í botn þegar hann sá lögreglubíl gefa sér stöðvunarmerki. Hann ók á miklum hraða niður í Mörkina þar sem hann nauðhemlaði, stökk út úr bílnum og tók til fótanna. Það gerðu lögreglumenn líka og hlupu hann uppi.

Sjá næstu 50 fréttir