Fleiri fréttir

Morgunblaðið 100 ára í dag

Morgunblaðið er 100 ára í dag, en fyrsta blaðið kom út 2. nóvember árið 1913. Fyrsti ritstjóri blaðsins var Vilhjálmur Finsen en alls hafa ritstjórarnir verið fimmtán á þessum hundrað árum.

Búa sig undir hefnd

Mikill viðbúnaður er nú í Pakistan en yfirvöld þar í landi búa sig undir hefndaraðgerðir Talibana eftir að leiðtogi þeirra, Hakimullah Mehsud, féll í loftárás Bandaríkjahers í gær.

Það er alvarlegur tónn í mér

María Ellingsen leikkona var að ljúka við leikverk um líf og ástir þriggja kvenna, leikur í nýrri sjónvarpsseríu og berst með Hraunavinum. Hún ætlar að vera í Afríku um áramótin og á Svalbarða um verslunarmannahelgina. Svo er hún móðir.

Sprenging í flugeldaverksmiðju

Kínverska lögreglan hefur handtekið lögfræðing og framkvæmdastjóra kínverskrar flugeldaverksmiðju en 11 manns létust og 17 særðust í sprengingu í verksmiðjunni, sem staðsett er í Guangxi, í gær.

Mörg fíkniefnamál í borginni

Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og fjölmörg fíkniefnamál komu upp. Einstaklingur var handtekinn í Kópavogi, grunaður um framleiðslu og dreifingu fíkniefna. Lögreglan lagði hald á plöntur og fíkniefni í sölueiningum en slepptu manninum að lokinni skýrslutöku.

Fleiri vildu njósna og hlera

Gögn sem bandaríski njósnarinn Edward Snowden hafði undir höndum sýna að leyniþjónstur Þýskalands, Frakklands, Spánar og Svíþjóðar hafi síðastin fimm ár unnið að því að efla getu sína til símahlerana og netnjósna.

Flestir sjálfstæðismenn vilja Júlíus Vífil

Stærstur hluti stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins, um 40,5 prósent, vill að Júlíus Vífill Ingvarsson leiði lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. Þetta sýna niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Netflixvæðing skaðar ekki sjónvarpsáhorf

Áhorf á útsendingar hefur ekki dregist saman þrátt fyrir aukið framboð af afþreyingarefni í gegnum efnisveitur eins og Netflix að sögn talsmanna sjónvarpsstöðvanna. Sjónvarpsstjóri 365 segir afkomuna í ár stefna í að verða betri en í fyrra.

Skaðvöldum fjölgað um 27 tegundir

Skordýrum sem lifa á trjágróðri hefur fjölgað um 27 tegundir frá byrjun 20. aldar. Ein þeirra drap niður skógarfuru sem vart finnst hér lengur. Meindýr geta haft mikil áhrif á vaxandi skógarauðlindir landsins þegar til framtíðar er litið.

Æðstu ráðamenn Bretlands sýna sæstrengnum áhuga

Utanríkisráðherra Breta sýndi sæstreng milli Íslands og Bretlands mikinn áhuga á fundi með forsætisráðherra. Ólafur Ragnar Grímsson þekkir til alþjóðlegra fjárfesta sem telja sæstreng mjög álitlegan fjárfestingarkost.

Geta varðskipsins Þórs nú öllum ljós

Stærsta verkefni varðskipsins Þórs síðan það kom nýtt til landsins í september 2011 er nú yfirstandandi. Aðgerðir við að slökkva elda um borð í farskipinu sýna glögglega getu skipsins í björgunarstarfi.

250.000 fengust fyrir fórn á hári

Hálf milljón króna safnaðist í góðgerðaviku Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi (FSu). Nemendur ákváðu að styðja starf Unicef í Sýrlandi.

Á að útrýma kynbundnum launamun

"Frumvarp um jafnlaunavottun er liður í því að útrýma kynbundnum launamun.“ segir Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra.

Veislan heldur áfram á Airwaves

Þriðja kvöld tónlistarhátíðarinnar leggst ekki síður í gestina en þau tvö sem liðin eru eins og sjá má á meðfylgjandi myndum og myndskeiðum.

Með kannabis í nærbuxunum

Karlmaður á þrítusaldri reyndist vera með fjóra poka af kannabisefnum í nærbuxum sínum þegar lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af honum.

40 prósent Reykvíkinga ánægðir með ákvörðun Jóns Gnarr

Nærri fjörutíu prósent kjósenda í Reykjavík eru ánægðir með að Jón Gnarr ætli ekki að bjóða sig fram í næstu sveitastjórnarkosningum á meðan þriðjungur er ósáttur við ákvörðun borgarstjórans. Björt framtíð fengi svipað fylgi og Besti flokkurinn ef gengið yrði til kosninga nú.

Össur galopnar inn í bakherbegi stjórnmálanna

Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðherra afhjúpar átök forseta Íslands við fyrrverandi ríkisstjórn á Ríkisráðsfundum í væntanlegri bók. Hann greinir m.a. frá því hvernig minnstu munaði að Jóhanna Sigurðardóttir neyddist til að segja af sér þegar hún skipti núverandi formanni Samfylkingarinnar út úr ríkisstjórn.

Egill ætlar að áfrýja

„Báðum þessum dómum verður áfrýjað til hæstaréttar,“ segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Egils Einarssonar.

Þakklát og glöð yfir því að skipið sé farið

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar segist glöð yfir því að Fernanda hafi verið dregin úr höfn í Hafnarfirði. Hafnarfjörður er skilgreind sem neyðarhöfn og líklega sú sem næst var skipinu.

Tíst-maraþon Lögreglunnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stefnir á að setja inn skilaboð á Twitter fram undir morgun.

Stefán Jón vill nýjan R-lista

Stefán Jón Hafstein segir að nú sé stund upp runnin fyrir nýtt framboð – Regnbogaframboðið – í Reykjavíkurborg. Allar aðstæður séu fyrir hendi.

Betra ef Fernanda væri við Hörpu

Hörður Harðarson vélsmiðjameistari hjá Trefjum segist ekki skilja af hverju skipið Fernanda hafi verið staðsett þar sem hún er. Skipið hefur verið dregið aftur út á sjó til að auðvelda slökkvistarf og draga úr umhverfisvá vegna reyks og elds.

Fernanda dregin út úr höfninni

Flutningaskipið er komið út úr höfninni en óvíst er hvert förinni er heitið. Talsmenn Umhverfisstofnunar og Hafrannsóknarstofnunar funda eftir hádegi. Finna þarf stað þar sem minnsta hættan skapast sökkvi skipið.

Sjá næstu 50 fréttir