Fleiri fréttir

Jóhannes Jónsson látinn

Jóhannes Jónsson, kaupmaður og stofnandi Bónuss er látinn. Hann lést á Landspítalanum í morgun, eftir stutta sjúkrahúsvist. Hann var fæddur 31. ágúst árið 1940.

Vísað úr landi vegna þyngdar

Yfirvöld á Nýja Sjálandi hafa ákveðið að vísa suður-afrískum manni úr landi á þeim forsendum að hann sé of feitur.

Skúta í vandræðum

Þýsk skúta lenti í vandræðum skammt Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Meðlimir úr Björgunarfélagi Vestmannaeyja fóru á staðinn á slöngubátnum Stóra Erni og aðstoðuðu skútuna.

Missti stjórn á vélhjóli

Ökumaður vélhjóls var fluttur á slysadeild eftir að hafa misst stjórn á hjóli sínu við Laxamýri, sunnan við Húsavík eftir hádegi í dag. Óljóst er hvort að ökumaðurinn sé alvarlega slasaður, en að sögn lögreglu var hann með meðvitund.

Toyota naumlega stærstir

Toyota seldi 4,91 milljón bíla á fyrri hluta ársins, GM 4,85 milljón bíla og Volkswagen 4,70.

Aldrei réttlætanlegt að nauðga

Druslugangan fer fram á þremur stöðum á landinu í dag og hefst klukkan tvö. Skipuleggjandi göngunnar vonast eftir góðri þátttöku.

Frábært veður á Bræðslunni

Tónlistarhátíðin Bræðslan fer fram í níunda skipti á Borgarfirði Eystri í kvöld. Mikil aðsókn er á hátíðina enda seldist upp á hana á tveimur sólarhringum.

Blóðug átök í Egyptalandi

Talið er að yfir eitt hundrað manns úr röðum Bræðralags múslima hafi fallið í átökum í Kaíró við herinn í Egyptalandi í nótt. Allt að 4500 eru sagðir hafa slasast.

Íslendingar í návígi við hákarl

Það er ekki á hverjum degi sem strandgestir komast í návígi við hákarla en sú var raunin hjá Jóni Júlíussyni og fjölskyldu í Flórída á dögunum.

Fannst heill á húfi

Björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli voru kallaðar út í nótt til leitar að sextán ára gömlum ítölskum pilti.

Neitar að tjá sig

Spænski lestarstjórinn Francisco Jose Garzon Amo, sem olli slysi í Galsíu í norðurhluta landsins í vikunni, neitar að tjá sig við lögreglu.

Kynngimagnaðar Strandir

Blaðamaður Fréttablaðsins heimsótti Strandir fyrir stuttu og eyddi þar átta dögum. Á öldum áður var svæðið þekkt fyrir galdramenn, galdrabrennur og hvers kyns kukl. Í dag er það kynngimagnaður og töfrandi ferðamannastaður.

Ósáttir við hjólabann í Ásbyrgi

"Það gengur ágætlega í Reykjavík að fólk hjóli gönguleiðir. Af hverju er ekki hægt að hjóla gönguleiðir í þjóðgörðum?“ spyr Aron Reynissson fjallaleiðsögumaður, ósáttur við takmarkanir á hjólreiðum í Ásbyrgi.

Karlmönnum er líka nauðgað

Sveini Rúnari Einarssyni var nauðgað á Þjóðhátíð í Eyjum í fyrra af hópi manna sem hann veit ekki deili á. Hann segir sögu sína í von um að hjálpa öðrum karlmönnum í sömu stöðu að segja frá og losna við skömmina sem fylgir.

Hamborgarar í síðasta sinn

Í dag verður síðasti matarmarkaðurinn á Lækjartorgi opinn þetta sumarið. Aldrei hafa fleiri söluaðilar selt vörur sína en á markaðnum í dag. Markaðurinn er opinn frá ellefu til fjögur.

Enginn bilbugur á geislafræðingum

Enn ríkir pattstaða um kjaramál geislafræðinga. Þeir funduðu með stjórnendum Landspítalans í dag og höfnuðu þar málamiðlun spítalans sem átti að tryggja lágmarksmönnun.

Umferðarslys í Kinn

Þriggja bíla umferðarslys varð í nálægð Húsavíkur nú rétt fyrir hálf sex.

23 látnir í sprengjuárás í Pakistan

Að minnsta kosti 23 létust í tveimur sprengingum á markaði í bænum Parachinar í norðurhluta Pakistans fyrir stundu. Á annað hundrað manna eru sárir en enginn hefur enn lýst yfir ábyrgð á verknaðinum.

Skorar á Vesturlönd að setja rússneska þingmenn í ferðabann

Nikolai Alekseev lögfræðingur og leiðtogi réttindahreyfingar samkynhneigðra í Rússlandi segir að það hafi ekkert upp á sig að sniðganga vörur eins og Stolichnaya vodka til að þrýsta á rússnesk stjórnvöld að bæta ráð sitt varðandi mannréttindi hinsegin fólks.

Meðlimi Pussy Riot synjað um reynslulausn

Réttur í Rússlandi hafnaði í dag beiðni Nadezhda Tolokonnikova um reynslulausn. Hún er meðlimur í Pussy Riot og hefur setið í fangelsi frá því mars á síðasta ári.

Ísraelar svara ESB

Ísraelsstjórn hefur ákveðið að takmarka allt samstarf við fulltrúa Evrópusambandsins á herteknu svæðunum á Gasa og Vesturbakkanum.

Mansalshringur upprættur

Lögregluyfirvöld í Grikklandi handtóku í gær átján manns vegna mansals og misnotkunar á ólöglegum innflytjendum. Gríska lögreglan naut aðstoðar Europol, bandarískra yfirvalda og spænsku lögreglunnar við að uppræta glæpasamtök sem stóðu að mansalinu.

Lestarstjórinn montaði sig af hraðanum á Facebook

Facebook-síðu lestarstjórans hefur nú verið lokað og lögreglan hefur handtekið hann. Í yfirheyrslu viðurkenndi hann að lestin hefði verið á tvöföldum hámarkshraða þegar hún fór út af sporinu á Spáni í fyrradag með þeim afleiðingum að tugir létust.

Sjá næstu 50 fréttir