Erlent

Castro gæti sloppið við dauðadóm

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Castro er meðal annars sakaður um að hafa haldið þremur konum nauðugum á heimili sínu í meira en áratug og beitt þær ofbeldi.
Castro er meðal annars sakaður um að hafa haldið þremur konum nauðugum á heimili sínu í meira en áratug og beitt þær ofbeldi. mynd/afp
Talið er að saksóknarar í Ohio muni bjóða Ariel Castro, grunuðum mannræningja, ævilangt fangelsi í stað dauðadóms gegn því að hann játi á sig sekt.

Castro er sakaður um að hafa haldið þremur konum nauðugum á heimili sínu í meira en áratug, nauðgað þeim ítrekað og beitt þær margvíslegu ofbeldi.

Gangi hann að samningnum mun hann ekki hafa möguleika á reynslulausn, þar sem dómurinn myndi hljóða upp á ævilangt fangelsi að viðbættum þúsund árum. Þá mun einnig ekki þurfa að rétta í málinu.

Castro hefur neitað sök í nærri þúsund ákæruliðum en mál hans verður tekið fyrir í dag.

Konurnar þrjár sem fundust á heimili Castros. Frá vinstri: Gina De Jesus, Amanda Berry og Michelle Knight.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×