Kynngimagnaðar Strandir Sara McMahon skrifar 27. júlí 2013 09:00 Hólmavík skartaði sínu fegursta á öðrum degi ferðalagsins.
Blaðamaður Fréttablaðsins heimsótti Strandir fyrir stuttu og eyddi þar átta dögum. Á öldum áður var svæðið þekkt fyrir galdramenn, galdrabrennur og hvers kyns kukl. Í dag er það kynngimagnaður og töfrandi ferðamannastaður. Eftir átta daga dvöl á Ströndum tók það tíma að venjast aftur því amstri er fylgir daglegu lífi Reykvíkings því kyrrðin situr enn í manni. Þetta var í fyrsta sinn sem ég heimsæki þennan hluta landsins og það rigndi nánast linnulaust alla leið norður á Hólmavík. Það var komið kvöld þegar ég og samferðarmaður minn komumst á fyrsta áfangastað: gistiheimilið Steinhúsið, en húsið var byggt árið 1911 og var fyrsta steinsteypta húsið í Hólmavík. Galdrasafnið á Hólmavík var einnig heimsótt og þar snæddur dásamlega góður kræklingur.Í fjarska sést gamla síldarverksmiðjan í Ingólfsfirði.Næsta dag ókum við til Drangsness og gistum á Malarhorni. Okkar fyrsta verk í bænum var að prófa sundlaugina sem þar er og um kvöldið voru heitu pottarnir í fjöruborðinu heimsóttir. Okkur var sagt að pottarnir séu venjulega þéttsetnir skömmu eftir tíufréttir, en þar láta heimamenn líða úr sér eftir vinnudaginn. Daginn eftir var ferðinni heitið til Bjarnarfjarðar, þar sem ákveðið var að slá upp tjaldi. Að því taugatrekkjandi verki loknu var Gvendarlaug hins góða á Klúku heimsótt, en við laugina er dásamlegur náttúrulegur pottur sem kúrir við blómum vaxna laut. Sundlaugin heitir eftir Guðmundi biskupi sem er sagður hafa haft mikil kynni af Ströndum, allt frá því að hann varð skipreika í Skjaldabjarnarvík árið 1180.Djúpavík. Þegar sólin lét loks sjá sig varð staðurinn með eindæmum litríkur og fallegur.Kynngimögnuð bílferð Það tók að rigna um kvöldið og nóttin í tjaldinu varð blaut, rennblaut meira að segja. Því var sú ákvörðun tekin að pakka saman um hálffimm um morguninn og aka á næsta áfangastað: Djúpavík. Saga Stranda er samofin sögum um galdra, galdrabrennur og hvers kyns kukl og landið var sannarlega kynngimagnað þennan morgun. Dimmgrá ský lögðust af þunga á fjallstoppana, hafið var grátt og úfið og sums staðar læddust þokuslæður hljóðlega yfir dali og bæi. Við vorum ein á ferli og rigning fyrri daga hafði orsakað grjóthrun úr snarbröttum hlíðum fjalla á malarveginn sem við ókum eftir. Blautir og þreyttir ferðalangarnir fengu inni á Hótel Djúpavík þótt ekki væri búið að opna hótelið enn þá. Þar fengum við að þurrka af okkur og okkur boðið upp á kaffi og morgunmat. Eftir stuttan blund og sturtu var ákveðið að líta við á listasýningu sem ber yfirskriftina Steypa og fer fram í gömlu síldarverksmiðjunni. Um kvöldið lét sólin loks sjá sig og varð staðurinn þá með ólíkindum litríkur og fallegur. Sundlaugin í Krossnesi.Sundsprettur í fjöru Næstu þrjá daga höfðumst við samferðarmaður minn við í Norðurfirði. Við fengum inni á Gistiheimili Norðurfjarðar og af svölunum sem fylgdu herberginu gátum við fylgst daglangt með iðandi mann- og fuglalífinu við smábátahöfnina. Bátarnir komu og fóru og í lok dags var aflinn fluttur burt í vörubíl sem skildi eftir svolítinn rykmökk er hann æddi burt úr plássinu. Sundlaugin í Krossnesi var heimsótt alla þá daga sem við gistum í Norðurfirði. Laugin liggur í fjörunni sjálfri og er vinsæll viðkomustaður ferðamanna sem og heimamanna. Ingólfsfjörðurinn var einnig keyrður og gamla síldarverksmiðjan þar skoðuð. Loks var arkað upp á Reykjaneshyrnu þaðan sem útsýnið er engu líkt. Í fjöruborðinu. Staðurinn er dulmagnaður hvort sem er í sól eða gráma.Töfrandi umhverfi Saga segir að stúlka nokkur sem var um hríð í vist hjá Þórði Guðbrandssyni í Munaðarnesi á Stöndum hafi veikst þegar hún var tekin úr vist hjá honum en varð frísk við það að komast til hans aftur. Þegar stúlkan var svo tekin aftur af heimili Þórðar veiktist hún á nýjan leik. Af þessu fór af stað orðrómur um að Þórður hefði verið valdur að veikindum hennar með göldrum. Engir líkamlegir kvillar hrjá mig en ég er aftur á móti orðin veik fyrir þessu fámennasta sveitarfélagi landsins. Eins og í sögunni um stúlkuna grunar mig að veikindin hverfi um leið og ég sný aftur á þennan töfrandi stað.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Innlent Fleiri fréttir Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sjá meira