Erlent

Ariel Castro dæmdur í lífstíðarfangelsi

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Mannræninginn Ariel Castro hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi eftir að hafa játað á sig allar sakir til þess að sleppa við dauðadóm. Málinu er því lokið án þess að réttarhöld hafi farið fram.

Castro hélt þremur konum nauðugum á heimili sínu í meira en áratug, nauðgaði þeim ítrekað og beitti þær margvíslegu ofbeldi. Var hann ákærður í 977 liðum, þar á meðal fyrir að vera valdur að fósturmissi einnar konunnar með barsmíðum.

Hann á engan möguleika á reynslulausn, þar sem dómurinn hljóðar upp á ævilangt fangelsi að viðbættum þúsund árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×