Erlent

23 látnir í sprengjuárás í Pakistan

Þorgils Jónsson skrifar
23 eru látnir eftir sprengjuárás á markað í norðurhluta Pakistans í dag.
23 eru látnir eftir sprengjuárás á markað í norðurhluta Pakistans í dag. NordicPhotos/AFP
Að minnsta kosti 23 létust í tveimur sprengingum á markaði í bænum Parachinar í norðurhluta Pakistans fyrir stundu.

Talsmaður sjúkrahússins í bænum sagði að á annað hundrað manns væru sárir, en mikill fjöldi fólks var á markaðnum við innkaup.

„Við höfum enga aðstöðu fyrir hina særðu,“ sagði Zahid Hussain, læknir. „Margir þeirra þurfa að liggja á gólfi sjúkrahússins, eða á jörðinni hér fyrir utan."

T
alsmaður lögreglu staðfesti að um tvær sprengjur hefði verið að ræða. Um 400 metrar voru milli þeirra og þær sprungu  með stuttu millibili. Annarri þeirra virtist hafa verið komið fyrir á vélhjóli á markaðnum. Enginn hefur enn lýst ábyrgð á hendur sér og rannsókn stendur enn yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×