Erlent

Í fangelsi fyrir að laumast inn í fangelsi

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Matagrano laumaðist inn í fangelsið á Rikers-eyju og var þar í að minnsta kosti viku.
Matagrano laumaðist inn í fangelsið á Rikers-eyju og var þar í að minnsta kosti viku. samsett mynd
Fyrrverandi fanginn Matthew Matagrano hefur játað að hafa ítrekað notað fölsuð skilríki til þess að laumast inn í fangelsi í New York.

Matagrano réðist á fanga og stal 2.500 dala labbrabbtæki í gæsluvarðhaldsfangelsi á Manhattan. Þá er hann sagður hafa laumast inn í fangelsið á Rikers-eyju og verið þar í að minnsta kosti viku.

Það er ekki ljóst hvað Matagrano gekk til, en hann hefur afplánað dóma fyrir kynferðisbrot. Hann á yfir höfði sér tíu ára fangelsisdóm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×