Frábært veður á Bræðslunni Boði Logason skrifar 27. júlí 2013 12:01 Áskell Heiðar Ásgeirsson, er bræðslustjóri í ár, ásamt bróður sínum Magna Ásgeirssyni tónlistarmanni.
Tónlistarhátíðin Bræðslan fer fram í níunda skipti á Borgarfirði Eystri í kvöld. Mikil aðsókn er á hátíðina enda seldist upp á hana á tveimur sólarhringum. Fólk byrjaði að streyma austur á fimmtudag þar sem Jónas Sigurðsson hitaði upp mannskapinn með tónleikum ásamt Lúðrasveit Þorlákshafnar. Í gær hélt svo Magni Ásgeirsson tónleika ásamt góðum gestum. Og í kvöld er aðalkvöldið, Bræðslan sjálf þar sem John Grant, Bjartmar Guðlaugsson, Mannakorn, Magni og Ásgeir Trausti koma fram. Áskell Heiðar Ásgeirsson er bræðslustjóri í ár. „Við seldum alla miða upp á tveimur sólarhringum í maí í forsölu, við erum búnir að vita það lengi að það yrði uppselt. En það er auðvitað mikið af fólki sem kemur hingað til hitta vini og vandamenn og upplifa stemminguna jafnvel þó það sé ekki með miða á hátíðina,“ segir Áskell. Hvað eru gestir hátíðarinnar margir? „Við seljum 850 miða inn í þetta hús, það er það sem húsið tekur. Við horfum auðvitað til þess að það eru takmörk fyrir því hvað 150 manna bæjarfélag getur tekið á móti mörgum í einu. Við viljum alls ekki taka við of mörgu, viljum frekar að upplifunin sé góð fyrir þá sem koma.“ Tónleikarnir fara fram í fjörutíu ára gamallari síldarbræðslu í bænum, sem er orðin vel ryðguð og sjúskuð að sögn Áskels Heiðars. „Bræðslan er Bræðslan og hún verður að vera inni í bræðslunni, það liggur fyrir. En auðvitað fer mikill hluti af þessari gleði fram utandyra. Það eru flestir hér sem búa í tjöldum. Það er grillað hér í hverjum húsagarði og auðvitað eru gítarar á lofti hér og þar, þannig mikið af þessari gleði fer fram utandyra.“ Og veðrið leikur við Austfirðinga, eins og aðra landsmenn. „Það er búið að vera hér 20 stiga hiti nánast í mánuð. Það var smá þoka í gær, en mér sýnist hún vera að fara og það verður bara æðislegt veður hér í dag sýnist mér.“
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Sjá meira