Erlent

Neitar að tjá sig

Francisco Jose Garzon Amo, stuttu eftir slysið
Francisco Jose Garzon Amo, stuttu eftir slysið
Spænski lestarstjórinn Francisco Jose Garzon Amo, sem olli slysi í Galsíu í norðurhluta landsins í vikunni, neitar að tjá sig við lögreglu.

Hann er nú í haldi lögreglu eftir að í ljós kom að lestin var á 180 kílómetra hraða þar sem hámarkshraðinn er 80.

Sjötíu og átta fórust í slysinu og fjölmargir liggja alvarlega slasaðir á sjúkrahúsi.

Þriggja daga þjóðarsorg var lýst yfir Spáni eftir slysið.

BBC greinir frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×