Erlent

Málningu skvett á Lincoln

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Styttan er vinsæll viðkomustaður ferðamanna.
Styttan er vinsæll viðkomustaður ferðamanna. mynd/getty
Skemmdarvargar skvettu grænni málningu á hina sögufrægu styttu af Abraham Lincoln í Washington í nótt.

Málningunni var skvett á neðri hluta styttunnar og var minnisvarðanum lokað þar til hann hefur verið hreinsaður.

Styttan, sem er úr marmara, er vinsæll viðkomustaður ferðamanna víða að, en Lincoln er að margra mati merkilegasti forseti sem Bandaríkin hafa átt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×