Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fáklæddur og blóðugur ferðamaður á hjóli stöðvaður af lögreglunni Í fyrrinótt var tilkynnt um klæðalítinn, erlendan ferðamann í Langholtshverfinu og sagt að hann hefði orðið fyrir barðinu á ræningjum samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 7.9.2012 15:16
Leggið löglega í Laugardalnum - skýringarmynd Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta þau bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu. Þetta er nefnt sérstaklega vegna landsleiks Íslendinga og Norðmanna í knattspyrnu sem fram fer á Laugardalsvellinum í kvöld. 7.9.2012 14:33
Brynjar Mettinisson laus á næstu dögum Brynjar Mettinisson, sem setið hefur í fangelsi í Tælandi að undanförnu grunaður um fíkniefnasmygl, verður látinn laus. Utanríkisráðuneytið fékk tilkynningu um þetta í dag. Þetta staðfesti Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra þegar Vísir hafði samband við hann í dag. Máli hans verður ekki áfrýjað. 7.9.2012 13:37
Salan á Berg-Hugin stendur Forsvarsmenn útgerðarfyrirtækisins Bergs Hugins hafna kröfu Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Vestmannaeyja, um að fallið verði frá sölu fyrirtækisins til Síldarvinnslunnar 7.9.2012 11:57
Stjórn Bjartrar framtíðar samþykkir fyrstu ályktun Björt framtíð vill beita sér fyrir því að hér á landi ríki efnahagslegt jafnvægi og að húsnæðislán verði á svipuðum kjörum og víðast í Evrópu. Hún leggur ríka áherslu á mannréttindamál og umhverfismál og að fjölbreytni ríki á öllum sviðum mannlífsins. Björt framtíð vill að nýting auðlinda sé ávallt í jafnvægi og skili mun meiri arði í sameiginlega sjóði en nú er og að meira frelsi ríki í viðskiptum. Þetta er á meðal þess sem kemur í fyrstu ályktun stjórnar Bjartrar framtíðar sem samþykkt var í gær. 7.9.2012 14:20
Launahækkun forstjórans stuðar lækna Formaður Læknafélags Íslands segir launahækkun forstjóra Landspítalans stuða marga innan stéttarinnar enda hafi mikill niðurskurður í heilbrigðiskerfinu hafi kostað marga starfið og valdið launalækkun og auknu álagi. Fyrir hækkun var forstjóri Landspítalans launahæstur ríkisforstjóra landsins. 7.9.2012 14:07
Ólafur og Dorrit fylgjast með Ólympíuleikum fatlaðra Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú sækja lokadaga Ólympíuleika fatlaðra sem haldnir eru í London. Fyrir hádegi í dag fylgjast þau með keppni í frjálsum íþróttum þar sem Helgi Sveinsson er meðal keppenda. Forseti mun einnig afhenda verðlaun og eftir hádegið heimsækja forsetahjónin Ólympíuþorpið og hitta íslensku keppendurna, þjálfara og forystumenn Íþróttasambands fatlaðra. Þá verður forseti viðstaddur lokahátíð leikanna á sunnudag. 7.9.2012 13:52
Mikill kynbundin launamunur vonbrigði "Þessar niðurstöður valda auðvitað miklum vonbrigðum og það er eðlileg krafa verkalýðshreyfingarinnar að stjórnvöld taki á þessum óútskýrða kynbundnum launamun af alvöru. Nóg hefur verið rætt um vandann fram til þessa en nú þarf að bregðast við," segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, í frétt sem birtist á heimasíðu félagsins í morgun, um niðurstöður nýrrar launakönnunar sem tvö af aðildarfélögum BSRB, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og SFR-stéttarfélag í almannaþjónustu, hafa látið framkvæma ásamt VR. 7.9.2012 11:56
Segist hafa fallið út úr Gamla bíói og brotið sköflunginn "Þetta var frekar óskemmtilegt,“ lýsir Margrét Hildur Guðmundsdóttir í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun en hún segist hafa fallið niður á götu á tónleikum Jet Black Joe í Gamla bíó aðfaranótt laugardags, þegar hún ætlaði ásamt vinkonum sínum út að fá sér ferskt loft. Margrét Hildur segist hafa verið baksviðs ásamt öðru fólki þegar þær vinkonurnar ætluðu út. 7.9.2012 10:46
Stórþjófnaður við Mývatn upplýstur Lögreglan er búin að upplýsa stórþjófnað úr peningaskáp á skrifstofu Jarðbaðanna við Mývatn nýverið, og er þungu fargi létt af heimamönnum. 7.9.2012 10:36
Laun opinberra starfsmanna 20% lægri en á almennum markaði Laun opinberra starfsmanna eru um 20% lægri en á almennum markaði. Þetta sýna niðurstöður launakönnunar VR, SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem kynntar voru á sameiginlegum blaðamannafundi. 7.9.2012 10:03
Sean Penn kominn til landsins Stórleikarinn Sean Penn kom til landsins í gærkvöldi en hann leikur í kvikmyndinni sem Ben Stiller leikstýrir hér á landi, The Secret Life Of Walter Mitty. Tökur hafa staðið yfir síðustu viku og halda áfram nú um helgina. Samkvæmt upplýsingum Vísis lenti Sean Penn í gærkvöldi á Keflavíkurflugvelli. Hann var með derhúfu á höfði en þegar hann kom út úr flugstöðinni beið hans bílstjóri sem ók með hann á brott. Ben Stiller sagði í viðtali við Kastljósið í vikunni að Sean Penn myndi leika ljósmyndara í myndinni og að um helgina færu tökur fram upp á jökli. Það má því búast við stuði um helgina, en Stiller sagði að mörg áhættuatriði yrðu tekin upp um helgina - það væri meðal annars stokkið út úr þyrlu. 7.9.2012 10:00
Hjálmurinn bjargaði sjómanni Sjómaður á litlu togskipi hlaut höfuðáverka þegar hann klemmdist á milli toghlera og gálga, þegar skipið var á veiðum á Látragrunni út af Látrabjargi um sex leitið í morgun. 7.9.2012 09:45
Guðbjartur segist ekki ganga gegn kjararáði Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir að hann hafi ekki gengið gegn kjararáði við mjög umdeilda launahækkun hjá Birni Zoega forstjóra Landspítalans. Eins og kunnugt er hækkaði Guðbjartur laun forstjórans um 450 þúsund kr. í vikunni. 7.9.2012 08:26
Skoskur fiskimaður fann elsta flöskuskeyti sem vitað er um Skoskur fiskimaður er kominn í Heimsmetabók Guiness fyrir að hafa fundið elsta flöskuskeyti sem vitað er um í heiminum. 7.9.2012 07:47
Veitingastað lokað þar sem dyravörðurinn var réttindalaus Veitingastað í vesturborginni var lokað um miðnætti. Ekki var það vegna þess að opið væri of lengi, eða að verið væri að selja fólki undir lögaldri áfengi, né heldur að of margir væru inni á staðnum, heldur vegna þess að dyravörðurinn hafði ekki tilskilin réttindi til að sinna því embætti. 7.9.2012 07:42
Finnar setja skilyrði fyrir loftrýmisgæslu við Ísland Carl Haglund varnarmálaráðherra Finnlands segir að þátttaka flughers landsins í loftrýmisgæslu við Ísland sé háð nokkrum skilyrðum. 7.9.2012 07:40
Obama lofaði milljón nýjum störfum í Bandaríkjunum Barack Obama Bandaríkjaforseti lofaði bandarísku þjóðinni að skapa milljón ný störf í iðnaðarfyrirtækjum fram til ársins 2016 næði hann kjöri að nýju í kosningunum í nóvember. 7.9.2012 07:14
Lögregluna grunar að hraðbankaþjófar séu farnir úr landi Grunur leikur á að þrír útlendingar, sem sviku fé út úr hraðbanka á Akureyri þriðja september síðastliðinn, séu farnir úr landi. 7.9.2012 07:07
Telja að leigumorðingi hafi myrt bresku fjölskylduna í Frakklandi Ein af þeim kenningum sem franska lögreglan vinnur eftir í rannsókn sinni á morðunum á bresku fjölskyldunni við Annecy vatn nálægt Ölpunum er að leigumorðingi hafi verið þar að verki og þá hugsanlega á vegum ættingja fjölskyldunnar. 7.9.2012 06:32
Enn leitað að meintu þjófagengi á Akureyri Lögreglan á Akureyri leitar enn að þremur einstaklingum sem stálu fé út úr hraðbanka á dögunum, en lögreglan lýsti eftir fólkinu í fjölmiðlum í gær. Um er að ræða tvo karlmenn og konu sem eru líklega útlensk að mati lögreglunnar, en það hefur þó ekki fengist staðfest. 7.9.2012 13:30
Brotist inn í apótek í nótt Brotist var inn í apótek við Vínlandsleið í Reykjavík í nótt. Tilkynning um innbrotið barst um klukkan fjögur, en þegar lögregla kom á vettvang voru þjófarnir á bak og burt. Ekki kemur fram í skeyti frá lögreglu hvort, eða hverju var stolið, en þjófarnir eru ófundnir. 7.9.2012 07:12
Talið að 22.000 manns séu í hættu vegna vírussmits Talið er að allt að 22 þúsund manns séu í hættu á því að hafa smitast af lífshættulegum vírus í Yosemite þjóðgarðinum í Kaliforníu sumar. 7.9.2012 07:05
Rukkað í öll bílastæði við HÍ og Landspítala Bílanotkun nemenda Háskóla Íslands (HÍ) og starfsfólks Landspítalans þarf að dragast saman sem mótvægisaðgerð við aukinni umferð við nýjan Landspítala. Gert er ráð fyrir gjaldtöku við öll bílastæði í háskólanum, við spítalann og á milli gömlu og nýju Hringbrautar. Þetta segir Hjálmar Sveinsson, varaformaður skipulagsráðs Reykjavíkurbogar. 7.9.2012 07:00
Líki geimfarans Neil Armstrong verður sökkt í sæ Fjölskylda geimfarans Neil Armstrongs hefur ákveðið að líki hans verði sökkt í sæ. Fer sú athöfn fram í kjölfar útfarar Armstrongs sem haldin verður í þjóðardómkirkjunni í Washington honum til heiðurs þann 13. september n.k. 7.9.2012 06:58
Gagnrýni leiðir til handtöku 22 fíkniefnasala í Kaupmannahöfn Lögreglan á Vesturbrú í Kaupmannahöfn hefur brugðist við gagnrýni frá sjónvarpsstöðinni TV2 með því að handtaka 22 fíkniefnasala á síðustu tíu dögum. 7.9.2012 06:49
Kæra lausagöngu sauðfjár Ábúendur á bæ í Dalabyggð hafa kært til lögreglu ákvörðun sveitarstjórnar um að sinna ekki smölun á sauðfé sem gengur laust í byggð. Sveitarstjórnin hvetur Vegagerð og landeigendur til að girða betur. 7.9.2012 06:30
Ríkið í samstarf við nýtt félag um Geysi "Ein mjóróma rödd gat sagt nei en nú er orðinn til sameiginlegur félagsskapur sem stefnir að sama marki. Ég er mjög ánægð með þetta,“ segir Drífa Kristjánsdóttir, oddviti Bláskógabyggðar, um stofnun sameiginlegs félags eigenda 65 prósenta Geysissvæðisins. 7.9.2012 06:00
Ragnheiður Elín: Auðvitað er ég ráðherraefni Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tilkynnti Ragnheiði Elínu Árnadóttur í síðustu viku að hann myndi leggja til að Illugi Gunnarsson tæki við af henni sem formaður þingflokksins. Þetta kom henni á óvart, þar sem hún hafði gert ráð fyrir að gegna því embætti út kjörtímabilið, en hún tók við þegar Illugi tók sér hlé frá þingstörfum á meðan rannsókn á Sjóði 9 fór fram. 7.9.2012 05:45
Leigubílaskýli ekki aftur í Lækjargötu "Það hefur ekki staðið til boða hjá borginni að setja þetta skýli niður við Mæðragarðinn aftur,“ segir Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri í Reykjavík. 7.9.2012 04:30
Erlendir sælkerar vilja íslenska lambið „Við erum að horfa á útflutning til dýrari markaða í Evrópu og Asíu. Svo á íslenska lambakjötið að sjálfsögðu heima í Kanada og við erum að skoða þann möguleika mikið,“ segir Helgi Einarsson, framkvæmdastjóri Íslenskra matvara og ritari Alheimssamtaka matreiðslumanna (WAX). 7.9.2012 03:45
Óttast mengun á framkvæmdatíma Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir áhyggjur íbúa vegna aukinnar umferðar við nýjan Landspítala réttmætar. Furðulítil grein hafi verið gerð fyrir umferðaraukningunni og ráðstafanir til að reyna að takmarka þær séu ekki nógu sannfærandi. 7.9.2012 03:30
Hjálparsamtök rekin frá Pakistan Öllu erlendu starfsfólki hjálparsamtakanna Save the Children hefur verið gert að yfirgefa Pakistan innan tveggja vikna. Engin skýring var gefin á fyrirskipuninni, en fréttaritarar á staðnum telja fullvíst að ástæðuna megi rekja til aðgerðarinnar sem leiddi til dauða Osama bin Laden. 7.9.2012 03:00
Kaupa fyrir milljarða í Svíþjóð Metfjöldi Norðmanna ferðast nú yfir til Svíþjóðar til að kaupa inn á lægra verði. Þetta sýna nýjar tölur norsku hagstofunnar. 7.9.2012 02:00
Mögulegt að stela skyrinu af Íslendingum Einar Karl Haraldsson, ráðgjafi og fyrrum upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, segir að skyrinu, sem framleiðsluvöru, geti hæglega verið stolið af Íslendingum með eftirlíkingum frá öðrum löndum. Hægt er að fara ákveðnar leiðir til að koma í veg fyrir þetta og þeirra raunhæfust er sú að setja löggjöf um vernd vöruheitisins. 6.9.2012 23:13
Samstarfskonurnar ósáttar við Guðbjart Kvennahreyfing Samfylkingarinnar er ekki ánægð með ákvörðun Guðbjarts Hannessonar, velferðarráðherra, að hækka laun forstjóra Landspítalans um 450 þúsund krónur á mánuði á meðan aðrir starfsmenn á spítalanum hafa mátt þola kjaraskerðingu. 6.9.2012 23:53
Lufthansa aflýsir um 1200 flugum Flugfélagið Lufthansa í Þýskalandi neyðist til að aflýsa um 1.200 flugum nú um helgina vegna verkfalls flugliða. Verkfallið gæti bitnað á yfir hundrað þúsund farþegum. 6.9.2012 23:39
Hundur í óskilum Þessi svarti hundur fannst á Hafnarfjarðarvegi í kvöld. Hann var blautur og ólarlaus en afar góður og hlýðinn að sögn finnanda. Ef einhver saknar hvutta er hægt að komast í samband við aðilann sem fann hann í síma 778-6686. 6.9.2012 22:13
"Hér verður ekki farið að stunda óreglu“ "Hér verður ekki farið að stunda neina óreglu," segir Guðmundur Hallvarðsson, stjórnarformaður Hrafnistu um nýjan veitingasal Hrafnistu sem nefndur er Skálafell. Salurinn hefur haft vínveitingaleyfi síðan í morgun. 6.9.2012 21:01
Sláturtíð á Selfossi Um hundrað þúsund fjár verður slátrað hjá SS á Selfossi næstu átta vikurnar. Fjörutíu Pólverjar og átta Nýsjálendingar fluttu sérstaklega á Selfoss til að vinna í slátruninni. Hluti af kjötinu fer til Japans, en þeir vilja bara spikfeitt lambakjöt og borða það helst hrátt. Þá er lambakjöt nú í fyrsta sinn flutt til Rússlands. 6.9.2012 20:32
Snilldarlausnir á dagskrá í ár Frumkvöðlasetrið Innovit handsalaði í dag samstarfssamning við Marel og Samtök atvinnulífsins um hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna sem nefnist Snilldarlausnir Marel. Keppnin verður því haldin í fjórða sinn í ár. 6.9.2012 20:07
Bæjarstjóri ánægður að fá að sjá Magnús áfram Bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, Aldís Hafsteinsdóttir, fagnar því innilega að Stöð 2 hafi ráðið Magnús Hlyn Hreiðarsson, fréttamann af Suðurlandi, til starfa. „Það gerist auðvitað að einkaaðilar standi sig betur en hið opinbera og þetta virðist vera dæmi um það," segir hún. 6.9.2012 20:00
Margir fá kransæðastíflu án þess að hafa hugmynd um það Svokölluð þögul hjartaáföll eru stærra vandamál en áður hefur verið talið. Þetta leiðir ný rannsókn, sem unnin var hér á landi, í ljós. 6.9.2012 19:24
Virkjanaframkvæmdir gætu hafist fyrir áramót Landsvirkjun stendur frammi fyrir því að hefja virkjanaframkvæmdir á Norðausturlandi þegar fyrir áramót, þrátt fyrir að nú stefni í að orkusamningar skýrist ekki endanlega fyrr en í vor. Tilboð í borun þriggja háhitahola í Bjarnarflagi voru opnuð í dag og bauð aðeins einn aðili í verkið. Landsvirkjun áformar smíði jarðvarmavirkjana bæði í Bjarnarflagi og á Þeistareykjum til að mæta orkuþörf stóriðju við Húsavík, og í dag voru opnuð tilboð í borun á allt að þremur háhitaholum. 6.9.2012 19:06
Fá mynddiskana ekki afhenta Meirihluti Hæstiréttar staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness um að verjendur Annþórs Karlssonar og fleiri sakborninga fái ekki afhenta mynd- og hljóðdiska með skýrslutökum af ákærðu og vitnum í málinu. Þetta var niðurstaðan þrátt fyrir að Börkur Birgisson, einn sakborninga, hefði fyrir mistök fengið aðgang að diskunum. 6.9.2012 19:00