Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sparkaði í punginn á kennaranum sínum Myndband af ungri rússneskri stúlku í enskutíma hefur vakið mikla athygli á internetinu síðustu daga. Þar sést hvernig kennarinn hennar skammar hana fyrir framan allan bekkinn. 6.9.2012 14:44
Áratuga gamlar myndir úr starfi lögreglunnar birtar á vefnum Lögreglan hefur sett upp sérstaka myndasíðu á myndavefnum flickr. Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir að lögreglan sjái fyrir sér ýmsa möguleika til miðlunar upplýsinga. Til dæmis að geyma þarna inni upplýsingar um ökutæki sem hefur verið stolið. "Þetta er nú bara svona einn liðurinn í notkun okkar á samfélagsmiðlum," segir Stefán í samtali við Vísi. 6.9.2012 14:41
Jón Gnarr skálaði við eldri borgara - Mojito spilaði fyrir dansi Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, og Guðmundur Hallvarðsson, stjórnarformaður Hrafnistu, skáluðu í bjór þegar nýr salur dvalarheimilis aldraðra, Hrafnistu Reykjavíkur, var vígður í dag. 6.9.2012 14:31
Þriggja ára fangelsi fyrir hrottalega árás í Breiðholti Mennirnir sem réðust á mann á sjötugsaldri í Breiðholti í júlí og héldu honum klukkutímum saman á hemili hans og hótuðu honum ofbeldi voru dæmdir í fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Annar þeirra, Daniel Arciszewski, var dæmdur í þriggja ára fangelsi en hinn, Snorri Sturluson, í tveggja ára fangelsi. Mennirnir voru ákærðir fyrir að beita manninn ofbeldi og meiða hann. Þeir neyddu hann líka til að millifæra hundruð þúsunda á bankareikning sinn. 6.9.2012 13:39
Amazon kynnir nýja vörulínu í dag Vefverslunarrisinn Amazon mun svipta hulunni af nýrri vörulínu í dag. Fyrirtækið mun kynna nýjar útgáfur af Kindle lesbrettinu sem og Kindle Fire spjaldtölvunni. 6.9.2012 13:32
Guðbjartur hækkar laun Björns um 450 þúsund krónur Guðbjartur Hannesson, heilbrigðisráðherra, hefur hækkað laun Björns Zoëga, forstjóra Landspítalans, um fjögur hundruð og fimmtíu þúsund krónur á mánuði. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV. 6.9.2012 13:10
Tort bannað að auglýsa: Nr. 1 í innheimtu slysabóta Neytendastofa hefur bannað Tort að birta auglýsingar með fullyrðingunni "Nr. 1 í innheimtu slysabóta“ eftir kvörtun frá keppinaut fyrirtækisins. 6.9.2012 12:50
Börnum hafi verið gert að sæta einangrun Kallað hefur verið eftir bótakröfum frá þeim sem voru vistaðir á Upptöku- eða unglingaheimili ríkisins á árunum 1971 til 1994, en talið er að börn hafi þar sætt illri meðferð og meðal annars verið gert að sæta einangrun þar til þau játuðu á sig refsiverða háttsemi. 6.9.2012 12:06
Óskað eftir vitnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð norðan við gatnamót Álfabakka og Árskóga í Reykjavík síðdegis í gær, miðvikudaginn 5. september. 6.9.2012 11:48
Ákærður fyrir að ræna 10/11 vopnaður skrúfjárni Karlmaður fæddur 1985 hefur verið ákærður fyrir að ræna verslun 10/11 Við Grímsbæ í mars síðastliðnum. Mál hans var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn var vopnaður skrúfjárni sem hann lét standa fram úr ermi peysu sinnar. 6.9.2012 11:33
Drífa Snædal verður framkvæmdastjóri SGS Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins hefur ráðið Drífu Snædal sem framkvæmdastjóra SGS, en hún mun hefja störf hjá sambandinu 17. september næstkomandi samkvæmt tilkynningu frá sambandinu. Fráfarandi framkvæmdastjóri, Kristján Bragason starfar við hlið Drífu til áramóta. 6.9.2012 11:17
Prófessor og þingmaður deila í héraðsdómi "Maður á ekki von á því að alþingismaður ljúgi upp á mann opinberlega og í skrifuðu máli,“ sagði Ragnar Árnason prófessor við Háskóla Íslands, í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Aðalmeðferð í meiðyrðamáli hans gegn Þór Saari, alþingismanni, hófst klukkan níu í morgun."Maður á ekki von á því að alþingismaður ljúgi upp á mann opinberlega og í skrifuðu máli," sagði Ragnar Árnason prófessor við Háskóla Íslands, í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Aðalmeðferð í meiðyrðamáli hans gegn Þór Saari, alþingismanni, hófst klukkan níu í morgun. 6.9.2012 10:21
Höfðu einbeittan vilja til þess að myrða Norska lögreglan telur að mennirnir tveir sem grunaðir eru um að hafa orðið Sigrid Schjetne að bana hafi haft einbeittan vilja til þess að myrða einhvern þetta kvöld. Tilviljun hafi hins vegar ráðið því að það var Sigrid sem varð fyrir valinu. 6.9.2012 10:13
Fannst undarlegt að borða dýr sem hún var nýbúin að skoða Leikkonan Emma Watson sagði í viðtali við þáttastjórnandann David Letterman að Ísland væri gullfallegt land, "þetta er eins og að koma til annarrar plánetu,“ útskýrði Emma þegar hún lýsti reynslu sinni af landinu. Leikkonan var hér við tökur á kvikmyndinni Nóa ásamt stórstirninu Russel Crowe í sumar. 6.9.2012 09:48
Eiður búinn að birta þúsundasta molann Eiður Svanberg Guðnason, fyrrverandi umhverfisráðherra og bloggari, hefur skrifað þúsundasta molann um málfar og miðla á vefsvæði sitt. Í tímamótamolanum sínum lítur hann yfir horfinn veg og veltir fyrir sér hvaða áhrif skrif hans kunna að hafa haft, en í pistlum sínum hefur Eiður oft tuktað til ritstjórnir sem starfa hér á landi. 6.9.2012 09:38
Fjölskylda myrt í Frakklandi - Telpa komst lífs af Fjögurra ára gömul stúlka lifði af hrottalega morðárás í Frakklandi í nótt. Stúlkan lá á grúfu milli lappa móður sinnar og hafði ekki hreyft sig í rúmar átta klukkustundir þegar lögreglumenn komu á vettvang. 6.9.2012 08:25
Heitavatnslaust frá Köldukvísl að Hvalfjarðargöngum Heitavatnslaust verður frá klukkan átta og fram á kvöld á svæði, sem nær frá Köldukvísl í Mosfellsbæ að Hvalfjarðargöngum, vegna viðgerðar í dælustöð í Reykjadal. 6.9.2012 06:29
Annir hjá björgunarmönnum vegna göngumanna í basli Göngumaður féll og meiddist á hné fyrir oafn Kjarnaskóg við Akureyri í gærkvöldi. Hann gat gefið neyðarlínunni upp GPS staðsetningu, þannig að björgunarmenn voru fljótir að finna hann og bera til byggða. Hann var þrátt fyrir það orðinn nokkuð kaldur. 6.9.2012 06:25
Nýnemar tolleraðir í MR Það ríkir mikil gleði í Menntaskólanum í Reykjavík í dag en 260 nýnemar eru tolleðarir núna fyrir hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá skólanum hófst tolleringin klukkan korter yfir elelfu í morgun og lýkur fljótlega eftir hádegi. Að athöfninni lokinni eru nýnemarnir svo boðnir velkomnir með ljúffengri köku og mjólk. 6.9.2012 11:51
Svefntruflanir gætu verið fyrirboði Alzheimer sjúkdómsins Ný rannsókn sýnir að svefntruflanir hjá fullorðnu fólki gæti verið merki um að viðkomandi sé með Alzheimer á fyrstu stigum sjúkdómsins. 6.9.2012 07:27
Sprenging í tyrknesku vopnabúri kostaði 25 hermenn lífið Mikil sprenging sem varð í vopnabúri tyrkneska hersins í héraðinu Afyon í nótt kostaði 25 hermenn lífið og fjórir liggja særðir á hersjúkrahúsi í grenndinni. 6.9.2012 07:22
Tóku ofurölvi pilt úr umferð eftir busaball Lögreglan tók ofurölvi pilt úr umferð á busaballi Menntaskólans við Hamrahlíð í Vodafone höllinni undir morgun. Hann var vistaður í fangageymslum af manúðarástæðum. 6.9.2012 07:05
Slökkviliðið kallað út að Viðeyjarkirkju Slökkviliðið fékk brunaboð frá Viðeyjarkirkju laust fyrir miðnætt. Viðeyjarferjan var þegar ræst út samkvæmt viðbragðsáætlun og fimm slökkvliðsmenn sendir með henni með búnað. 6.9.2012 07:01
Nýsjálendingar mæta til vinnu í sláturtíðinni Hópur Nýsjálendinga er á leið til landsins til að vinna hér í sláturtíðinni, nánar til tekið í sláturhúsi Sláturfélags Suðurlands á Selfossi. 6.9.2012 06:55
Obama formlega útnefndur sem forsetaefni Demókrata Barack Obama var formlega útnefndur sem forsetaefni Demókrataflokksins á flokksþinginu í Norður Karólínu í nótt að okkar tíma. 6.9.2012 06:47
Samkeppni um skipulag Geysis Eigendur meirihluta Geysissvæðisins í Haukadal ætla að ráðast í miklar framkvæmdir og fjárfestingar á svæðinu. Þeir stofnuðu Landeigendafélag Geysis ehf. í gær utan um verkefnið. 6.9.2012 06:30
Gætu liðið mánuðir til viðbótar Nokkrir mánuðir til viðbótar gætu liðið þar til íslenskt fólk, sem ættleiddi tvær stúlkur frá Kólumbíu, fær úrlausn sinna mála. Hjónin, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir og Friðrik Kristinsson, hafa verið föst með stúlkurnar í Kólumbíu síðan í desember í fyrra. 6.9.2012 06:15
Barstarfsmenn drekka óhóflega Starfsmenn veitingahúsa og bara í Svíþjóð eru líklegri til þess að drekka óhóflega mikið en aðrir. Þetta kemur fram í nýrri sænskri rannsókn. 6.9.2012 06:00
Athugasemd frá Fréttablaðinu Á meðal gagna í meiðyrðamáli Gunnlaugs gegn Teiti er fyrsta fréttin af málsókn Gunnlaugs, sem birtist í Fréttablaðinu 8. júní í fyrra. Teitur og verjandi hans halda því fram að með því að fara óblíðum orðum um Teit í viðtali við Fréttablaðið hafi Gunnlaugur gert sig útsettari en ella fyrir óvæginni umfjöllun af hálfu Teits. 6.9.2012 05:45
Skipti um skoðun Steinunn Valdís Óskarsdóttir var áhrifamaður í borgarstjórn Reykjavíkur þegar staðsetningu sjúkrahússins var fagnað, meðal annars með vísan í nálægð við Háskóla Íslands og eflingu miðborgarinnar. Hún hefur nú upplýst að hún telji forsendur breyttar. 6.9.2012 05:30
Íbúar telja breitt yfir neikvæð áhrif spítala Íbúasamtök 3. hverfis, sem nær til Hlíða, Holta og Norðurmýri, segja umhverfismat á deiliskipulagstillögu um nýjan Landspítala við Hringbraut vera meingallað. Reynt sé að breiða yfir neikvæð áhrif aukinnar umferðar. 6.9.2012 05:15
Obama formlega útnefndur Barack Obama Bandaríkjaforseti mun í kvöld taka við útnefningu sem fulltrúi Demókrataflokksins í komandi forsetakosningum. 6.9.2012 05:00
Stóra systir sallaróleg yfir kæruhótun Grasrótarsamtökin Stóra systir sendu út beiðni til almennings í vikunni og kölluðu eftir aðstoð við að uppræta vændi í samfélaginu. Samtökin svöruðu nokkrum spurningum fyrir Fréttablaðið í gegn um tölvupóst. Hafið þið fengið mikil viðbrögð? 6.9.2012 04:30
Lést í Jökulsá í Lóni Maðurinn sem fannst látinn eftir að hann féll af baki í Jökulsá í Lóni á mánudagskvöld hét Ingólfur Vopni Ingvarsson. Hann var 53 ára, búsettur á Höfn í Hornafirði og lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn. 6.9.2012 04:15
Of seint að tala um umbætur „Það er of seint að tala um umbætur, nú er tími kominn á breytingar,“ sagði Mohammed Morsi, forseti Egyptalands, um ástandið í Sýrlandi, þar sem Bashar al Assad forseti reynir enn að berja niður uppreisn. Morsi segir að Assad ætti að draga lærdóm af nýlegri sögu, og vísaði þar til byltinga víða í arabaheiminum. 6.9.2012 04:00
Ódýrast að ferðast um landið með Strætó Að taka strætó á milli bæjarfélaga virðist vera ódýrasti ferðamátinn sem völ er á. Vagnarnir munu keyra til meira en fjörutíu bæjarfélaga eftir áramót. Strætó bs. fær 30 milljónir árlega frá sveitarfélögunum fyrir þátt sinn í starfinu. 6.9.2012 03:30
Vilja fá leigubílaskýli í Lækjargötuna aftur „Fólk getur beðið í þessu skýli í marga sólarhringa án þess að fá leigubíl,“ segir Jóhann Sigfússon, formaður Bifreiðastjórafélagsins Átaks, um safnskýli fyrir leigubílafarþega í Hafnarstræti. 6.9.2012 03:30
Sjálfboðaliðum þakkað Hundruð manna mættu í gær til minningarathafnar um Sigrid Giskegjerde Schjetne, sex-tán ára stúlku sem fannst látin á mánudagskvöld, mánuði eftir að hún hvarf. 6.9.2012 03:00
80 milljónir í átta verkefni Átta verkefni frá sex félagasamtökum hafa fengið úthlutað ríkisstyrkjum vegna þróunarsamvinnu. Fram kemur á vef utanríkisráðuneytisins að framlög í þessari úthlutun nemi um 80 milljónum króna. 6.9.2012 02:45
Arafat verður grafinn upp Hópur franskra réttarmeinafræðinga heldur á næstu dögum til Ramallah á Vesturbakkanum í því skyni að grafa upp lík Jassers Arafats, sem lengi var helsti leiðtogi Palestínumanna. 6.9.2012 02:30
Raflögnum og rafbúnaði víða ábótavant Heilbrigðismál Raflögnum og rafbúnaði á sjúkrastofnunum hér á landi er víða ábótavant. Þetta kemur fram í úttekt Mannvirkjastofnunar á ástandi raflagna og rafbúnaðar á yfir hundrað sjúkrastofnunum. 6.9.2012 02:15
Slasaður eftir dvergflóðhest Dýragarðsvörður í Tékklandi var fluttur á sjúkrahús með þyrlu í gær eftir að hafa orðið fyrir árás dvergflóðhests. 6.9.2012 02:00
Foreldrar kemba börnum ekki nóg Foreldrar sem eiga börn í skólum þar sem lúsasmit kemur upp eru ekki nægilega duglegir við að kemba hár barna sinna. Þetta segir hjúkrunarfræðingur sem kallar eftir átaki á landsvísu til að hefta útbreiðslu sníkjudýrsins. 5.9.2012 22:30
Vill hámark á gjaldskrá dagforeldra Kópavogsbær vill setja hámarksgjald á þjónustu dagforeldra í bænum. Dæmi er um að foreldrar hafi greitt ríflega 90 þúsund krónur fyrir mánuð hjá dagforeldri í bænum sem er tvöfalt meira en bærinn telur æskilegt. 5.9.2012 20:46
Þjóðverjar fjölmennastir í ágúst Ferðamönnum á Íslandi fjölgaði í ágústmánuði milli ára um 13,2% samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu. Það er svipuð fjölgun og í öðrum mánuðum. 5.9.2012 20:15