Mögulegt að stela skyrinu af Íslendingum BBI skrifar 6. september 2012 23:13 Skyr í erlendri búðarhillu.
Einar Karl Haraldsson, ráðgjafi og fyrrum upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, segir að skyrinu, sem framleiðsluvöru, geti hæglega verið stolið af Íslendingum með eftirlíkingum frá öðrum löndum. Hægt er að fara ákveðnar leiðir til að koma í veg fyrir þetta og þeirra raunhæfust er sú að setja löggjöf um vernd vöruheitisins. Einar telur mjög brýnt að setja löggjöf um vernd séríslenskra vöruheita og það verði sífellt brýnna eftir því sem útflutningur vex. Í morgun var haldin ráðstefna að frumkvæði samtaka mjólkur- og kjötvinnslustöðva um hvernig mögulegt er að verja séríslensk vöruheiti. Erlent dæmi um vernd af þessum toga er feta-ostur frá Grikklandi og kampavín frá champagne héraðinu í Frakklandi. Einar segir að erfitt sé að verjast eftirlíkingum á alþjóðlegum markaði. Í raun séu bara tvær leiðir. annars vegar að vera með sterkt vörumerki, Coca Cola mætti nefna sem dæmi. Þetta er leið hinna sterku fyrirtækja. Hins vegar að setja löggjöf um vernd vöruheitisins. Þessi leið hentar vel ef varan er af sérstöku svæði eða sameiginleg eign bænda. Nýlegt dæmi um slíka löggjöf má finna í Noregi.Einar Karl Haraldsson,Mynd/Haraldur„Þegar maður er kominn með svona vernd innanlands getur maður farið að semja við önnur lönd um gagnkvæmnisvernd," segir Einar og vísar til þess að í Evrópusambandinu finnist listar yfir vörur sem njóta verndar af þessum toga. Hann telur að málið sé að komast á dagskrá hjá íslenskum stjórnvöldum. Einar var gestur útvarpsþáttarins Reykjavík Síðdegis fyrr í dag en viðtalið við hann má nálgast á hlekknum hér að ofan.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira