Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Undirbúa forvarnir gegn netfíkn barna SAFT beinir heilræðum til barna og fullorðinna um hvernig megi komast hjá því að ánetjast tölvunni. Netfíkn barna vaxandi vandamál. Dæmi um að börn undir 18 ára spili fjárhættuspil á netinu. Foreldrar setji ekki myndir á netið. 17.7.2012 06:00
Rúllubaggar geta verið stórhættulegir „Mesta hættan af rúlluböggum er þegar menn eru að rúlla eða binda í brattlendi. Þar þarf að gæta sérstakrar varúðar og svo þegar verið er að stafla þessu í mjög háar stæður,“ segir Bjarni Jónsson, sem hefur skrifað leiðbeiningar fyrir bændur um slysahættu af rúlluböggum. 17.7.2012 05:30
Stúdentar hafa miklar áhyggjur Stúdentaráð Háskóla Íslands fer í opnu bréfi til ríkisstjórnarinnar fram á að stjórnvöld borgi með hverjum nemanda sem kýs að stunda nám við skólann. Bréfið barst stjórnarráðinu í gær. 17.7.2012 05:30
Óttast verðfall hjá strandveiðimönnum Margir strandveiðimenn eru ósáttir við að vera stefnt til veiða dagana fyrir verslunarmannahelgi. Fiskvinnslur loka og lítil eftirspurn eftir aflanum. Strandveiðimenn geta sjálfir ákveðið að fresta veiðum segir talsmaður smábátaeigenda. 17.7.2012 05:00
Börnin leika sér við hættulegan brunn Dælustöðinni í Grundarhverfi á Kjalarnesi var upphaflega læst með loki. Börnin í hverfinu hafa fundið út hvernig á að opna brunninn. Svæðisstjóri hjá Orkuveitunni segir slysahættu vegna brunnsins. 17.7.2012 04:30
Á móti banni á umfjöllun um kannanir Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis leggst gegn því að fjölmiðlum verði bannað að birta niðurstöður skoðanakannana á kjördag og daginn fyrir kosningar hér á landi. 17.7.2012 04:00
Botnvörpur brunnu Eldur kom upp í botnvörpum og öðrum veiðarfærum sem lágu á Eiðinu á milli Heimakletts og Klifs í Vestmannaeyjum í gær. 17.7.2012 04:00
Margir valkostir Romneys Spennan magnast stöðugt fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum þar sem repúblikaninn Mitt Romney freistar þess að velta demókratanum Barack Obama úr sessi. Eitt helsta umræðuefnið þessa dagana er val Romneys á varaforsetaefni, en þar eru margir kallaðir. 17.7.2012 03:30
Dauðahafið er við dauðans dyr Dauðahafið mun brátt bera nafn með rentu. Yfirborð hafsins lækkar um rúmlega metra á hverju ári. Höfuðástæðan er sögð vera að vatni úr ánni Jórdan hefur verið veitt annað, en áin er ein aðalaðrennslisæð hafsins. 17.7.2012 03:00
Keppendur flykkjast til London Keppendur, fjölmiðlafólk og áhorfendur flykkjast nú til London þar sem Ólympíuleikarnir verða settir eftir tíu daga. 17.7.2012 00:15
Spá náum kynnum áður en öldin er úti Euroscience umræðufundurinn var haldinn í Dublin um helgina. Helstu sérfræðingar Evrópu á sviði stjarneðlisfræði og stjarnlíffræði komu þar saman og ræddu um möguleg kynni mannkyns af geimverum. 16.7.2012 23:45
Russell Crowe mættur til landsins Nýsjálenski stórleikarinn Russell Crowe lenti á Reykjavíkurflugvelli á tíunda tímanum í kvöld. Létt var yfir leikaranum en hann spjallaði í dágóða stund við flugvallarstarfsmenn áður en hann hélt á brott. 16.7.2012 22:12
Níræður maður kastaði sér út úr flugvél Níræður maður fór í sitt fyrsta fallhlífarstökk í vikunni. Þessi eldhressi bandaríkjamaður lærði undirstöðuatriðin þegar hann var ungur maður en hann gegndi herþjónustu á árum seinni heimsstyrjaldarinnar. 16.7.2012 23:24
Skúta strandaði í Skerjafirði Skúta strandaði í Skerjafirði á ellefta tímanum í kvöld. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út. 16.7.2012 23:01
Svona hljómar kjarnasprenging Vafalaust hafa flestir séð gömul myndbönd af kjarnorkusprengingum, fæstir hafa hins vegar heyrt hvellinn sem þær framkalla. Bandarískur fræðimaður hefur nú birt myndband þar sem ótrúlegur eyðileggingarmáttur kjarnasprengjunnar er sýndur ásamt óhugnanlegum óm hennar. 16.7.2012 21:45
Átján mánaða fangelsi fyrir að stela sprengiefni Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fertugsaldri í 18 mánaða fangelsi. Hann var fundinn sekur um að hafa stolið 240.8 kg af dínamíti, 228 sprengjuhvellhettum og einum sprengjuhnalli í október á síðasta ári. 16.7.2012 21:35
Bjargaði ketti og uppskar aðdáun netverja Lítil rússnesk stúlka hefur heillað netverja síðustu daga. Hugrekki stúlkunnar er óumdeilanlegt en myndband sem sýnir hana bjarga ketti frá hundi í árásarhug hefur vakið mikla athygli. 16.7.2012 20:48
Hollenskt par ræktar jarðaber í Reykholti Hollenskt plöntufyrirtæki hefur komið sér fyrir í Reykholti og hafið þar jarðaberjaræktun. Ef allt gengur að óskum vonast það eftir að geta ræktað íslensk jarðaber allan ársins hring. 16.7.2012 20:00
Hannar skartgripi á Barnaspítalanum Tíu ára stúlka sem hefur verið rúmliggjandi á Barnaspítalanum í sumar styttir sér stundir með því að hanna skartgripi. Hún vonast til að geta safnað sér fyrir iPad. 16.7.2012 19:30
Vélarvana við Reynisdranga Björgunarsveitin Víkverji í Vík í Mýrdal var kölluð út rétt fyrir klukkan sex í kvöld vegna vélarvana báts úti fyrir Reynisdröngum. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg er ekki talin hætta á ferðum og er veður gott á svæðinu. 16.7.2012 19:24
Mannætan í Miami þekkti fórnarlamb sitt Talið er að maðurinn sem reyndi að rífa af andlit annars manns með tönnunum fyrir nokkrum vikum í Miami hafi þekkt fórnarlamb sitt nokkuð vel. 16.7.2012 19:09
Krafa Íra um refsiaðgerðir kann að spilla fyrir viðræðum Krafa Íra um refsiaðgerðir vegna makrílveiða Íslendinga gerir ekkert annað en að spilla fyrir viðræðum, að mati Steingríms J. Sigfússonar. Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsins ræddu makríldeiluna á fundi í dag. 16.7.2012 18:45
Íhuga að endurskoða reglur ÍSÍ um Íþróttamann ársins Sigurður Elvar Þórólfsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna, var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Þar ræddi hann við þáttastjórnendur um afrek Annie Mist Þórisdóttir en hún tryggði sér sigur á Crossfit-leikum Reebok í gær, annað árið í röð. 16.7.2012 18:04
Knattspyrnumanni dæmdar bætur vegna meiðsla í leik Víðir Leifsson, knattspyrnumaður hjá Fylki, fær dæmdar bætur frá Vátryggingafélagi Íslands vegna slyss sem hann varð fyrir í leik í júlí 2008. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í dag að VÍS væri bótaskylt á grundvelli slysatryggingar íþróttamanna. 16.7.2012 16:12
Stýrir íþróttavef í London Óskar Hrafn Þorvaldsson, fyrrverandi fréttastjóri á Stöð 2, Vísi og síðar á Fréttatímanum mun á næstunni stýra nýjum íþróttafréttavef í London. Hann verður með annan fótinn þar næstu vikurnar. Jón Ásgeir Jóhannesson, eiginmaður Ingibjargar Pálmadóttur aðaleiganda 365 bað hann um að taka verkefnið að sér. "Blaðamenn fá sjaldan tækifæri til að starfa erlendis," segir Óskar Hrafn aðspurður um ástæður þess að hann ákvað að slá til. Óskar Hrafn hefur unnið í fjölmiðlum um árabil. Þá spilaði hann lengi vel knattspyrnu með meistaraflokki KR og var atvinnumaður í knattspyrnu í Noregi. 16.7.2012 15:41
Snorri ætlar að leita stuðnings Kennarasambandsins Snorri Óskarsson, kenndur við Betel, sem var sagt upp störfum sem kennari í Brekkuskóla á Akureyri ætlar að leita eftir stuðningi Kennarasambandsins í máli sínu. Hann segir klárt mál að réttur sinn til að tjá sig hafi verið brotinn, en Snorra var sagt upp störfum eftir skrif um samkynhneigða á persónulegri bloggsíðu. Snorri er ekki búinn að tala við Kennarasambandið eftir að hann fékk uppsagnarbréfið. "Ég er bara búinn að leyfa þeim að fylgjast með áminningarferlinu, en ég er ekki búinn að setja mig í samband við þá eftir að ég fékk bréfið,“ segir Snorri. 16.7.2012 15:21
Íslendingar duglegir að endurvinna áldósir Um 85 prósent áldósa hér á landi rötuðu í endurvinnslu árið 2010 en það er lægsta hlutfallið á meðal Norðurlandanna. Í Finnlandi var endurvinnsluhlutfallið 95%, Í Noregi 93%, Í Danmörku 89% og Svíþjóð 87%. 16.7.2012 15:21
Verður erfitt að minnast voðaverkanna í Útey Næsta sunnudag verður ár liðið frá voðaverkunum í Útey, þegar 77 manns létust í árásum fjöldamorðingjans Anders Behring Breivik á stjórnarráðsbyggingar í Osló og sumarbúðir ungliða Verkamannaflokksins í Útey. Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík ætla að minnast atburðanna í Minningarlundinum í Vatnsmýri á sunnudagskvöld klukkan hálfníu. Þar verða flutt ávörp og tónlist. Guðrún Jóna Jónsdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, mun verða viðstödd minningarathöfn í Útey. 16.7.2012 14:07
Tökur á mynd Russel Crowe að hefjast Tökur á myndinni Noah, sem skartar Russel Crowe, Anthony Hopkins, Jennifer Conelly og Emma Watson í aðalhlutverkum hefjast von bráðar. Leikstjóri myndarinnar Darren Aronofsky, segir frá því á Twittersíðu sinni, að hann sé á leið til Íslands í dag. Þar birtir hann líka mynd af svæðinu þar sem myndin er tekin. 16.7.2012 13:15
"Ég er bara ánægður að hafa komið einhverjum til bjargar" "Auðvitað er það góð tilfinning þegar maður hefur komið einhverjum til bjargar - það er ekki spurning," segir Kristján Ingi Kristjánsson, sem bjargaði konu sem fékk hjartastopp á bílaplani við N1 í Hveragerði í byrjun mánaðarins. 16.7.2012 13:01
Meira en 1000 dýr verða felld Fyrsti hreindýrstarfurinn náðist strax á miðnætti en veiðitímabilið hófst í gær. Hann vóg 100 kíló og var skotinn á 50 metra færi í Breiðdal, að því er fram kemur í frétt á vef Austurgluggans. Eiður Gísli Guðmundsson var leiðsögumaður. Allnokkrir veiðimenn fóru strax til veiða. 16.7.2012 11:43
Ský á Snæfellsnesi eins og fljúgandi furðuhlutur "Þetta eru vindskafin netjuský sem myndast oft yfir fjallgörðum og lýsast upp í kvöldsólinni,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Skýin sem sjást á myndinni hér til hliðar blöstu við ferðalöngum á Snæfellsnesi um helgina en þau sáust á lofti rétt fyrir miðnætti á laugardag. 16.7.2012 10:55
Kærðu hvort annað fyrir líkamsárás Karl og kona á tvítugsaldri kærðu hvort annað fyrir líkamsárás um helgina. Tildrög voru með þeim hætti að aðfaranótt sunnudags hafði karlmaðurinn verið að áreita konuna við veitingastað í Þorlákshöfn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi hleypti maðurinn lofti úr hjólbarða á bíl konunnar og pissað á hann. Konunni varð mjög misboðið og sparkaði í höfuð karlsins sem launaði fyrir með hnefahöggi í andlit konunnar. Bæði hlutu minni háttar áverka. 16.7.2012 10:49
Endurheimti bíl sinn eftir 40 ár Karlmaður sem varð fyrir því óláni að bíl hans var stolið árið 1970 endurheimti bílinn í dag. Maðurinn, sem heitir bob Russel, var nemandi við Temple háskóla í Fíladelfíu í Bandaríkjunum. Hann ók um á Austin-Healy 3000 Mk III sem hann hafði keypt af vini sínum á 3000 dali árið 1968. 16.7.2012 10:30
Eyðibýli brann til kaldra kola Íbúðarhúsið að eyðibýlinu Hóli í Dalabyggð brann til kaldra kola í morgun. Ekki hefur verið búið í húsinu í eitt ár, en það er þó enn tengt við rafmagn. Vegfarandi sá eld og reyk, frá húsinu á sjöunda tímanum í morgun og hringdi hann strax á slökkvilið Dalabyggðar í Búðardal, sem er í um 20 kílómetra fjarlægð. 16.7.2012 10:21
Fjórir grunaðir um að hafa brotið gegn konu í miðborg Reykjavíkur Kona var flutt á neyðarmóttöku Landspítalans fyrir þolendur kynferðisafbtota í gærmorgun eftir að hún fannst við Kjörgarð í miðborg Reykjavíkur. Lögreglan hefur handtekið fjóra menn vegna rannsóknar málsins. Þetta staðfestir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. Hann segir að málið sé í rannsókn en vill að öðru leyti ekki tjá sig um það. 16.7.2012 10:15
Hnoðaði lífi í ókunnuga konu á bílaplani "Við viljum hafa uppi á honum til þess að geta þakkað honum fyrir,“ segir Bryndís Vilbergsdóttir, systir konu sem fékk hjartastopp á bílaplani við N1 í Hveragerði fyrr í þessum mánuði. Maður sem átti leið um bensínstöðina hnoðaði í hana lífi þar til sjúkraflutningamenn komu á vettvang. 16.7.2012 10:05
Hafa sparað 575 milljónir vegna þunglyndislyfja Stjórnvöld hafa náð verulegum árangri í að lækka lyfjakostnað og í fyrra lækkaði sá kostnaður þriðja árið í röð. 16.7.2012 09:55
Margrét Pála fer til starfa á Tálknafirði Margrét Pála Ólafsdóttir stofnandi Hjallastefnunnar hefur verið ráðinn skólastjóri Tálknafjarðarskóla, sem er sameinaður leik-, grunn- og tónlistarskóli Tálknafjarðar. Ríflega sjötíu nemendur stunda nám við skólann. Margrét Pála hefur störf um næstu mánaðarmót og mun sinna starfinu að minnsta kosti í eitt ár á meðan skólinn er að aðlagast Hjallastefnunni. 16.7.2012 09:39
Saka stjórnvöld um að virða alþjóðasamninga að vettugi Stjórnvöld gera innflutning á landbúnaðarvörum eins erfiðan og mögulegt er og Samtök verslunar og þjónustu þurfa að nýta flest úrræði sem tiltæk eru að lögum til að knýja á um að farið sé að alþjóðasamningum í þeim efnum. Þetta segja forystumenn Samtakanna, þau Margrét Kristmannsdóttir og Andrés Magnússon í grein sem birtist í Fréttablaðinu og á Vísi í dag. Þau segja það jafnframt dapurlegt að allir stjórnmálaflokkarnir á Alþingi virðist jafn áhugalausir um það að virða gerða samninga. 16.7.2012 09:25
CNN: Þríhnjúkagígur er staður sem fólk verður að sjá Þríhnjúkagígur er ofar en bæði Taj Mahal og Viktoríufossar á lista sem CNN sjónvarpsstöðin hefur tekið saman um þá 27 staði í heiminum sem fólk á að heimsækja áður en ævi þess lýkur. 16.7.2012 07:28
Nauðganir vekja óhug í Svíþjóð Sænskir fjölmiðlar hafa greint frá því að tilkynnt hefur verið um 21 nauðgun í landinu á síðustu þremur dögum. Þetta er óvenjumikill fjöldi nauðgana á svo stuttum tíma í Svíþjóð en nauðganir eru yfirleitt fleiri á sumrin en veturna í landinu. 16.7.2012 06:46
Snarráðir vegfarendur stöðvuðu þjóf Snarráðir vegfarendur náðu að stöðva ungan karlmann, sem hafði rænt veski af erlendri ferðakonu í Hanfarstræti undir kvöld í gær. 16.7.2012 06:24
Miklir bardagar í úthverfum Damaskus Miklir bardagar geisuðu í í Damaskus höfuðborg Sýrlands í gærdag og langt fram á kvöld milli stjórnarhersins og uppreisnarmanna. Sennilega er um mestu bardagana að ræða síðan átökin hófust í landinu í mars í fyrra. 16.7.2012 06:19
Condolezza Rice óvænt í sviðsljósinu í Bandaríkjunum Condolezza Rice fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur óvænt stolið hinu pólitíska sviðsljósi vestan hafs um helgina. 16.7.2012 06:11