Á móti banni á umfjöllun um kannanir 17. júlí 2012 04:00 Katrín Jakobsdóttir
Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis leggst gegn því að fjölmiðlum verði bannað að birta niðurstöður skoðanakannana á kjördag og daginn fyrir kosningar hér á landi. Ákvæði þess efnis er að finna í frumvarpi Katrínar Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, um breytingar á lögum um fjölmiðla. Fyrstu umræðu um frumvarpið lauk í lok mars en það var síðan tekið til umfjöllunar í nefndinni. Álit meirihluta nefndarinnar á frumvarpinu sem og breytingartillögur meirihlutans voru birtar í byrjun síðasta mánaðar. Í greinargerð með frumvarpi Katrínar kom fram að þau sjónarmið lægju að baki ákvæðinu að skoðanakannanir gætu verið skoðanamyndandi fyrir kjósendur og skaðað minni framboð. Í rökstuðningi meirihluta nefndarinnar fyrir afstöðu sinni er hins vegar bent á að þrátt fyrir lögfestingu ákvæðisins yrði ekki komið í veg fyrir að niðurstöður kannana spyrðust út með öðrum hætti en með milligöngu fjölmiðla. Því telur meirihlutinn að ákvæðið þarfnist nánari skoðunar og leggur til að það falli á brott. Loks er þeirri tillögu beint til ráðherra að hann skipi nefnd sem skuli móta tillögur að reglum um umfjöllun fjölmiðla um kosningar.- mþl
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Sjá meira