Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tölvum stolið úr skóla í Kópavogi Brotist var inn í skóla í Kópavoginum laust fyrir klukkan tvö í nótt og þaðan stolið tölvubúnaði. Þjófarnir komust undan en málið er í rannsókn hjá lögreglu. 11.12.2011 09:57
Gistu í fangaklefa vegna leiðinda Tveir gistu í fangaklefa á Akureyri í nótt en að sögn varðstjóra voru þeir handteknir vegna ölvunar og almennra leiðinda, eins og hann orðar það sjálfur. Einn var tekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna fyrir norðan í nótt en nokkuð mikill erill var hjá lögreglunni. Þá var einn tekinn grunaður um ölvunarakstur nú rétt fyrir klukkan sex í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. 11.12.2011 09:55
Ölvaður klessti bílinn Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og segir varðstjóri að um 80 verkefni séu skráð niður frá miðnætti og til átta í morgun. 11.12.2011 09:53
Óveður á Austfjörðum Mikið óveður er á Austfjörðum og með norðurströnd landsins. Í aðvörun frá Vegagerðinni kemur fram að ófært er á Víkurskarði og á Hófaskarðsleið. 11.12.2011 09:49
Opið í Bláfjöllum í dag Skíðaunnendur á höfuðborgarsvæðinu geta glaðst því í opið er í Bláfjöllum í dag, í fyrsta sinn í vetur. Í tilkynningu frá staðarhöldurum segir að þar séu frábærar aðstæður í troðnum brautum og gott færi. Þá er einnig opið í Hlíðarfjalli á Akureyri. 11.12.2011 09:19
Dreifikerfi Bylgjunnar bilað á landsbyggðinni Dreifikerfi Bylgjunnar á landsbyggðinni er bilað og er unnið að viðgerð. 11.12.2011 12:11
Harður árekstur á Kjalarnesi Tveir bílar skullu saman við brúnna yfir Blikadalsá á Kjalarnesi um níu leytið í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var einn fluttur á slysadeild. Tveir aðrir voru með minniháttar meiðsli, en þó ekki eins alvarleg. Töluverð seinkunn var á umferð um veginn og var bílum hleypt í áföngum framhjá slysstað. Afar slæmt veður hefur verið á Kjalarnesi í kvöld og hafnaði rúta, sem fer á milli Akraness og Reykjavíkur, utan vegar. 10.12.2011 22:32
Jón Gnarr fann tré drauma sinna Borgarstjórinn fann draumajólatréð í Grýludal í Heiðmörk í dag. Þá var boðið upp á jólakræsingar beint frá býli á jólamatarmarkaði í höfuðborginni. 10.12.2011 22:00
Með 100 snáka, 70 skjaldbökur og 20 froska inni á hótelherbergi Lögreglan í bænum Köln í Þýskalandi fékk heldur furðulegt útkall í dag. Á hóteli í bænum voru nefnilega hundrað snákar, sjötíu skjaldbökur og tuttugu froskar á einu hótelherberginu. 10.12.2011 21:00
Eyjamaður fær 27 milljónir Fyrsti vinningurinn í lottóinu í kvöld fór til Vestmannaeyja og til spilara með miða í áskrift. Og fær hvor spilari um 27 milljónir í sinn hlut. Þrír voru með 2. vinning og fá þeir rúmlega 200 þúsund krónur. Tölur kvöldsins: 2 - 17 - 18 - 20 - 24 Bónustala: 10 Jókertölur: 3 - 0 - 7 - 3 - 2 10.12.2011 20:32
Vantar 22 heimilislækna í Reykjavík - 4 vikna bið eftir tíma Tuttugu og tvo heimilislækna vantar á heilsugæslustöðvar í Reykjavík. Stjórnamaður í Félagi íslenskra heimilislækna segir stefna í óefni en í dag getur fólk þurft að bíða í allt að fjórar vikur eftir tíma hjá sínum heimilislækni. 10.12.2011 20:30
85% landsmanna vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni Mikill meirihluti landsmanna eða um áttatíu og fimm prósent eru fylgjandi því að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni. Þetta sýnir ný skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. 10.12.2011 18:46
Nóbelsnefndin brýtur gegn erfðaskrá Alfreds Nobel Frændi Alfreds Nobel, upphafsmanns Nóbelsverðlaunana, segir Nóbelsnefndina brjóta gegn erfðaskrá Alfreds Nobel. Verðlaunin voru afhent í dag. 10.12.2011 18:00
Ökumenn sitja fastir í bílum sínum í Vestmannaeyjum Mikið óveður hefur verið í Vestmannaeyjum nú eftir hádegið og að sögn varðstjóra hjá lögreglunni er íbúum ráðlagt að vera ekki á ferli að ástæðulausu. Mikil snjókoma og skafrenningur er í bænum eru lögreglumenn og björgunarsveitamenn að aðstoða ökumenn sem sitja margir hverjir fastir í bílum sínum. Þá hafa björgunarsveitarmenn einnig aðstoðað fólk að komast til síns heima. Svo slæmt var veðrið um tíma eftir hádegi í dag að ekki sást á milli húsa og þurftu starfsmenn bæjarins að hætta að ryðja götur bæjarins vegna veðurs en að sögn varðstjóra sáu þeir varla einn meter fram fyrir sig. 10.12.2011 17:00
Rúta út af veginum Rúta sem gengur á milli Reykjavíkur og Akraness fór út af veginum við Blikdalsá í dag. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru um tíu farþegar í rútunni en þá sakaði ekki. Björgunarsveitarmenn eru á leið á staðinn til að sækja fólkið sem er um borð í rútunni. Mikið óveður er á svæðinu og færðin afar erfið. 10.12.2011 17:30
Ölvaður ökumaður velti bíl á Grindavíkurvegi Björgunarsveitarmenn hafa líka verið að störfum á Suðurnesjum í allan dag. Lögreglan segir að fjölmargir ökumenn hafi fest bíla sína í umdæminu. Tveir árekstrar urðu á Reykjanesbraut í morgun og þá valt bíll á Grindavíkurvegi nú eftir hádegi. Engin slys urðu á fólki, en sá sem velti bílnum nú eftir hádegið er grunaður um ölvun við akstur. 10.12.2011 17:10
88 fórust í eldsvoða á Indlandi Að minnsta kosti áttatíu og átta fórust þegar eldur kom upp á sjúkrahúsi í borginni Kolkata sem áður hét kalkútta, á austur-Indlandi í gær. Sex fyrrum yfirmenn á sjúkrahúsinu hafa verið handteknir en lögregla segir að þau séu talin hafa vanrækt öryggisreglur sjúkrahússins. Talið er að fólkið sem fórst í brunanum hafi allt verið rúmliggjandi en mikil skelfing greip um sig þegar eldsins varð vart. Lögreglan rannsakar nú eldsvoðann en á meðal þeirra látnu eru nokkur börn. 10.12.2011 16:15
Tugþúsundir mótmæla í Rússlandi Um þrjátíu þúsund manns mótmæla nú í miðborg Moskvu, höfuðborg Rússlands, en talið er að mótmælin séu ein fjölmennustu í landinu í yfir tuttugu ár. 10.12.2011 15:45
Starfsmenn á flugvelli smygluðu eiturlyfjum í flugvélum Tólf fyrrum starfsmenn flugfélagsins American Airlines voru í gær fundnir sekir um að hafa smyglað eiturlyfjum til Bandaríkjanna í gegnum flugvélar félagsins. Mennirnir unnu allir við að flytja farangur af færiböndum inni í flugvélar á JFK-flugvellinum í New York. Eiturlyfjunum var komið fyrir í leynihólfum inni í farangursrými flugvéla en ásamt því að smygla eiturlyfjum stálu mennirnir einnig fartölvum, humri, dýrum fötum, ilmvötnum, áfengi og raftækjum frá farþegum sem ferðuðust með félaginu. Höfuðpaurinn í málinu gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi en dómari á eftir að taka ákvörðun um refsingu mannanna. 10.12.2011 14:40
Ríkisstjórnin styður Stelpurnar okkar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur sent kvennalandsliði Íslands í handbolta hamingju- og baráttukveðjur fyrir þann glæsilega árangur að hafa tryggt sér þáttöku í 16 liða úrslitum á sínu fyrsta heimsmeistaramóti, sem nú fer fram í Brasilíu. Jóhanna segir í kveðjunni að stelpurnar geti verið afar ánægðar með framgöngu sína á mótinu og sigrar liðsins fylli þá sem fylgjast með mótinu hér heima miklu stolti. 10.12.2011 13:50
Tunglmyrkvinn sést vel norðanlands Tunglmyrkvinn í dag ætti að geta sést á öllu norðanverðu landinu, allt frá norðanverðum Vestfjörðum til Austurlands, miðað við skýjahuluspá Veðurstofunnar. Spáð er að heiður himinn verði allt frá Ísafjarðardjúpi, um Norðurland og austur til Fljótsdalshéraðs, meðan tunglmyrkvinn stendur yfir. 10.12.2011 12:52
Tækifæri fyrir ný framboð í þessu ástandi Tækifæri fyrir nýja flokka og framboð liggja í því hversu fáir eru tilbúnir að styðja þá sem fyrir sitja á Alþingi samkvæmt nýrri könnun. Þetta segir stjórnmálafræðingur sem segir ástandið til marks um óvissu og óánægju með flokkana. 10.12.2011 12:16
Lokað í Bláfjöllum Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs. Í morgun var vindurinn 25 metrar á sekúndu. Á vefsíðu Bláfjalla segir að farið sé að skafa vel að austan sem skilji eftir mikinn snjó í brekkum og girðingum. Ekki verður lögð göngubraut í dag. 10.12.2011 11:59
Fjölmennustu mótmælin í 20 ár Öryggissveitir í Moskvu í Rússlandi búa sig nú undir fjölmennustu mótmæli í landinu í tuttugu ár. Mikil reiði er vegna úrslita í nýafstöðnum þingkosningum í landinu og er talið að tugir þúsunda muni taka þátt í mótmælum vegna þeirra í dag. Flokkur Medvedvs forseta og Pútins forsætisráðherra, Sameinað Rússland, sigraði í kosningunum. Fólkið telur að brögð hafi verið í tafli en þúsundir ábendinga hafa borist um kosningasvik. 10.12.2011 10:52
Brotlenti á skólabyggingu Lítil einkaflugvél brotlenti á skólabyggingu í fátækrahverfi nálægt Manila höfuðborg Filippseyja í morgun. Að minnsta kosti ellefu hafa fundist látnir, þar af tvö börn og tuttugu hafa verið færðir á spítala. Eldur kviknaði út frá vélinni og dreifðist í þrjátíu nærliggjandi kofa. Ekki er vitað hversu margir voru um borð í vélinni. 10.12.2011 10:41
Ógnuðu manni með leikfangabyssu Tveir karlmenn eru nú í haldi lögreglu eftir líkamsárás í Vogahverfinu í Reykjvík á níunda tímanum í gærkvöldi. 10.12.2011 10:18
Heppnir Norðlendingar Skíðaáhugamenn á Norðurlandi geta fagnað því opið verður í Hlíðarfjalli á Akureyri og á skíðasvæði Tindastóls á Sauðárkróki í dag. Í Hlíðarfjalli opnaði klukkan tíu og verður opið til klukkan fjögur. Stólalyfta, Skálbraut, Auður og Töfrateppið verða opnar og þá var 3,5 kílómetra göngubraut troðin klukkan níu í morgun. Á Sauðárkróki verður opnað klukkan tólf og verður opið klukkan 16. 10.12.2011 10:00
Nokkuð um slagsmál í miðbænum Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Margir lögðu leið sína í miðbæinn og var nokkuð um slagsmál á milli manna, enginn meiddist þó alvarlega. Þá þurfti lögregla að fara í nokkur útköll vegna skemmtana í heimahúsum og hávaða vegna þeirra. Sex gista fangageymslur lögreglu eftir nóttina. 10.12.2011 09:30
Rannsaka aðbúnað fatlaðra Ríkisstjórnin samþykkti í gær tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um að rannsaka aðbúnað fatlaðra barna sem vistuð hafa verið á vegum hins opinbera. Kannað verður hvort börnin hafi búið við ofbeldi eða sætt illri meðferð meðan á vistun á stofnunum stóð. 10.12.2011 08:30
Risamótmæli boðuð í Rússlandi Stjórnarandstaðan í Rússlandi hefur boðað til mótmæla vítt og breitt um Rússland í dag til að mótmæla fregnum um víðtækt kosningasvindl í þingkosningum í landinu á sunnudag. Búist er við fjölmennustu mótmælum í landinu frá falli Sovétríkjanna. Mótmæli hafa víða brotist út í Rússlandi síðustu daga eftir því sem æ fleiri gögn um kosningasvindl hafa komið fram. Þúsundir söfnuðust þannig saman á torgum í Moskvu og Sankti Pétursborg þrjú kvöld í röð í upphafi vikunnar. 10.12.2011 07:30
Tollar og vörugjöld verði endurskoðuð Alþingi Sex þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að íslensk vörugjalda- og tollalöggjöf verði tekin til gagngerrar endurskoðunar. Mælst er til þess að skipuð verði fimm manna nefnd með fulltrúum Hagfræðistofnunar, hagsmunaaðila og fjármálaráðherra, með það að markmiði að afnema viðskiptahindranir. 10.12.2011 05:30
Ólíkar áherslur um breytta ríkisstjórn Óhætt er að segja að titringur hafi komið upp á stjórnarheimilinu þegar tillögur starfshóps um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu birtust á vef sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Ríkisstjórnin hafði skipað ráðherranefnd til að fara með málið, sem var áður á forræði fagráðherrans Jóns Bjarnasonar. 10.12.2011 03:30
Rödd þorparans óskiljanleg Kvikmyndagagnrýnendur í Bandaríkjunum fengu að sjá formála næstu kvikmyndar um ofurhetjuna Batman. Gagnrýnendur voru almennt sáttir með myndskeiðið en í því er greint frá uppruna þorparans Bane. 9.12.2011 23:45
Kötturinn Tommaso fékk 10 milljónir evra í arf Tommaso, fjögurra ára gamall flækingsköttur á Ítalíu, varð á dögunum einn ríkasti köttur veraldar. 9.12.2011 23:43
Yfir 20 árekstrar á höfuðborgarsvæðinu Yfir 20 árekstrar urðu á höfuðborgarsvæðinu í dag. Í þremur árekstranna kvörtuðu ökumenn undan smávægilegum meiðslum, samkvæmt upplýsingum frá Árekstur.is Sex bifreiðanna voru fluttar af vettvangi með kranabíl þar sem þær voru óökuhæfar eftir óhöppin. 9.12.2011 23:33
Bein útsending frá Degi rauða nefsins Bein útsending frá landsöfnun fyrir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) milli klukkan 19.30 og miðnættis. Slagorð útsendingarinnar er "Skemmtun sem skiptir máli“ og markmiðið er að safna heimsforeldrum, mánaðarlegum styrktaraðilum UNICEF. Að vanda mun fjöldi valinkunnra skemmtikrafta leggja söfnuninni lið með einum eða öðrum hætti. 9.12.2011 21:00
Þingmennirnir stigu dansinn Þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi stigu villtan dans í útsendingu á Stöð 2 undir slagorðinu „Skemmtun sem skiptir máli" og er haldin til söfnunar fyrir Unicef. Það var mál manna að dansinn væri vel samhæfður og þingmenninnirnir hafi unnið vel saman þótt þeir hafi karpað töluvert á þinginu undanfarið. Þeir þingmenn sem tóku þátt voru Sigmundur Ernir Rúnarsson og Ólína Þorvarðardóttir frá Samfylkingunni, Þuríður Backman úr VG, Höskuldur Þórhallsson úr Framsóknarflokknum, Margrét Tryggvadóttir úr Hreyfingunni og Pétur Blöndal úr Sjálfstæðisflokknum. 9.12.2011 22:49
Twitter bjargaði lífi morðingja Morðingi forðaðist dauðadóm eftir að kviðdómandi birti skilaboð á samskiptasíðunni Twitter. Hæstiréttur í Arkansans-fylki ákvað að uppfærslurnar hefðu verið óviðeigandi. 9.12.2011 22:48
Á slysadeild eftir árekstur Einn var fluttur á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur á Háaleitisbraut nú undir kvöld. Hann mun ekki hafa verið alvarlega slasaður. Þetta var fimmta umferðaróhappið sem hafði orðið á höfuðborgarsvæðinu frá því í dag. Þá hafa tvö hálkuslys orðið. 9.12.2011 22:28
James Cameron sakaður um að hafa stolið hugmyndinni að Avatar Leikstjórinn James Cameron hefur verið kærður fyrir að hafa stolið hugmyndinni að kvikmyndinni Avatar. Það er fyrrverandi starfsmaður hjá framleiðslufyrirtæki Camerons sem lagði fram kæruna. 9.12.2011 21:30
Fundinn sekur um að planka Nitján ára gamall piltur frá Wisconsin í Bandaríkjunum var fundinn sekur um að hafa plankað á lögreglubíl, hraðbanka og minnismerki. Hann var handtekinn eftir að hann birtir myndir af plankinu á samskiptasíðunni Facebook. 9.12.2011 21:00
Pressan hótar málsókn Vefpressan ehf, sem meðal annars á og rekur Pressuna, ætlar að fela lögmönnum að höfða mál á hendur einstaklingum sem hafa staðið fyrir herferð undanfarna daga í því skyni að fá fyrirtæki sem auglýsa á miðlum Vefpressunnar til að hætta birtingu auglýsinga sinna þar. 9.12.2011 19:29
Héldu að ævintýraþáttur væri upphafið að Kötlugosi Neyðarlínunni var í morgun tilkynnt um torkennilega sterka ljósbjarma í hlíðum Mýrdalsjökuls, og veltu tilkynnendur því fyrir sér hvort gos væri að hefjast í Kötlu. 9.12.2011 09:54
Gefandi reynsla að vinna með íslenskum ljósmyndurum „Þetta er örugglega ekki síðasta verkefnið sem ég vinn með íslenskum ljósmyndurum,“ segir Celina Lunsford ljósmyndafræðingur. Celina var myndritstjóri ljósmyndabókarinnar Ný náttúra sem kom út hjá forlaginu Crymogeu í haust. „Þetta hefur verið afar gefandi reynsla og komið mér í samband við marga íslenska ljósmyndara.“ 9.12.2011 22:00
Lokaprófin reynast sumum erfið Háskólanemi tapaði sér á bókasafni í Kalíforníu fyrr í vikunni. Hún sagði samnemendur sína anda of hátt. Vitanlega voru snjallsímarnir á lofti og náðist bræðikastið á myndband. 9.12.2011 21:36
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent