Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hagsmunasamtökin harma eggjakastið Hagsmunasamtök heimilanna harma að þingmaður og myndatökumaður hafi orðið fyri hnjaski þegar eggjum var kastað að ráðamönnum við þingsetninguna á laugardaginn var. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að þau hafi í margar vikur talað fyrir friðsömum samstöðufundi. 3.10.2011 12:23
Áfrýjun Amöndu Knox tekin fyrir í dag Ítalskur áfrýjunardómstóll kveður síðar í dag upp úrskurð sinn í máli bandarísku skólastúlkunnar Amöndu Knox, sem dæmd var í 25 ára fangelsi fyrir að hafa orðið meðleigjanda sínum að bana fyrir fjórum árum. 3.10.2011 12:11
Atli neyddur í nefnd Atli Gíslason, þingmaður, hefur sagt sig úr umhverfis- og samgönguefnd Alþingis en hann var kjörinn í nefndina á laugardag þrátt fyrir að hafa andmælt því formlega. Atli telur að stjórnarflokkarnir séu að refsa honum fyrir að hafa sjálfstæðar skoðanir. 3.10.2011 12:09
Mikill vatnsskortur á Túvalú Ríkisstjórnin á smáeyjunni Túvalú í Kyrrahafi hefur sent út neyðarkall sökum skorts á ferskvatni á eyjunni. Túvalú er á meðal smæstu ríkja heims en þar búa aðeins ellefu þúsund manns. 3.10.2011 12:02
Landsdómur tekur fyrir kröfu Geirs um frávísun Landsdómur tekur fyrir kröfu Geirs H. Haarde um að ákæru Alþingis gegn honum verði vísað frá í dag. Óvíst er hvort niðurstaða fæst að fundinum loknum. 3.10.2011 12:00
Perry segir koma til greina að senda herinn til Mexíkó Rick Perry ríkisstjóri í Texas sem er á meðal þeirra repúblikana sem sækjast eftir útnefningu sem forsetaefni flokksins segir koma til greina að bandarískir hermenn verði sendir til Mexíkó til þess að berjast við glæpagengin sem þar ráða lögum og lofum. Þetta kom fram í ræðu sem Perry hélt í New Hampshire í gær. 3.10.2011 11:59
Rolla skotin með kraftmiklum riffli - lítilmannlegt segir lögreglan Rolla á Vestfjörðum hlaut skjót og heldur nöturleg örlög þegar hún var skotin til dauða með kraftmiklum riffli í síðustu viku. 3.10.2011 11:57
Neyddu sjósundkappa á spítala Aðfaranótt laugardagsins fékk lögreglan á Vestfjörðum tilkynningu um mann í sjónum við Hólmavík. 3.10.2011 11:51
Lögðu hald á ólögleg lyf í alþjóðlegri aðgerð Tollgæslan lagði hald á tæplega átta þúsund ólöglegar töflur og fölsuð lyf sem selja átti á netinu í viðamikilli aðgerð sem teygði anga sína um allan heim. Aðgerðin var skipulögð af alþjóðlegum samtökum tollembætta og Interpol. Stóð hún yfir dagana 20. til 27. september og er sú viðamesta sem skipulögð hefur verið af þessu tagi. 3.10.2011 11:00
Réttað yfir grunuðum nauðgara Aðalmeðferð fer nú fram í Héraðsdómi Suðurlands yfir karlmanni sem er grunaður um að hafa nauðgað stúlku á útikamri á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ágúst síðastliðnum. 3.10.2011 10:51
Hugmyndasamkeppnin hófst í dag - hvað skal gera við dós? Hin árlega hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna, Snilldarlausnir Marel hófst í þriðja sinn í dag þegar hlutur ársins „dós“ var afhjúpaður. Úr þessum einfalda hlut eiga framhaldsskólanemendur að gera sem mest virði úr t.d. félagslegt, fjárhagslegt, umhverfislegt o.s.frv. 3.10.2011 10:17
Ákveður í vikunni hvort Guðmundar- og Geirfinnsmál verði tekin upp Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist ætla að ákveða hvort Guðmundar- og Geirfinnsmálin svokölluðu verði tekin til rannsóknar að nýju, fyrir vikulok. Málin hafa aftur komist í hámæli eftir umfjöllun fréttastofu Stöðvar 2 og Íslands í dag í gær þar sem greint var frá dagbókarfærslum Tryggva Rúnars Leifssonar sem var einn sakborninga í málinu og hlaut að lokum 13 ára fangelsisdóm fyrir að hafa banað Guðmundi Einarssyni. Ögmundur var spurður út í málið í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun og þar sagðist hann ætla að ákveða um framhaldið í þessari viku. 3.10.2011 09:33
Ísrael í hættu á að einangrast enn frekar Ísrael á það á hættu að einangrast enn frekar frá öðrum þjóðum í miðausturlöndum breyti þeir ekki stefnu sinni gagnvart nágrönnum sínum. Þetta segir Leon Panetta, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna en hann er nú á ferðalagi þar sem hann hittir leiðtoga Ísraels og Palestínu. 3.10.2011 09:00
Neyðarástand á Filippseyjum Flóðin á Filippseyjum eru nú í rénun en tveir fellibyljir hafa gengið yfir eyjarnar síðustu daga og hafa sextíu látið lífið í hamförunum. Mikið neyðarástand ríkir þó enn á stórum svæðum og er mikil þörf á mataraðstoð og ferskvatni. 3.10.2011 08:58
Dolfallnir yfir ræðu forsetans Ungir vinstri grænir eru dolfallnir á þeim misskilningi á eðli lýðræðis, sem birtist í ræðu forsetans við setningu Alþingis á laugardag. 3.10.2011 08:55
Herjólfur siglir á Þorlákshöfn alla þessa viku Það stefnir í stopular siglingar Herjólfs á milli Eyja og Landeyjahafnar í vetur og mun Herjólfur til dæmis sigla til Þorlákshafnar alla þessa viku. Í óveðrinu að undanförnu hefur sandur hlaðist upp utan við höfnina og er orðið of grunnt fyrir Herjólf. Breiðafjarðarferjan Baldur, sem hefur leyst Herjólf af að undanförnu á meðan Herjólfur var í slipp, kemst inn í Landeyjahöfn við mun erfiðari aðstæður en Herjólfur. 3.10.2011 08:54
Ammoníakleki á Sauðárkróki Ammoníak fór að leka úr frystikerfi í húsnæði loðdýrafóðurgerðar í útjaðri Sauðárkróks klukkan rúmlega fimm í morgun og var lögregla, slökkvilið og starfsmenn fóðurgerðarinnar kölluð á vettvang. 3.10.2011 07:07
Tekin tvisvar dópuð undir stýri með barnið í bílnum Þegar lögreglumenn stöðvuðu 32 ára konu á bíl í Skeifunni í Reykjavík rétt fyrir miðnætti, við hefðbundið eftirlit, kom í ljós að hún var undri áhrifum fíkniefna og var með sjö ára barn sitt í bílnum, auk þess sem hún var réttindalaus. 3.10.2011 07:02
Vilja ekki gera kjósendur sína reiða Stjórnmálamenn eru allt of tregir til að ganga gegn kjósendum sínum af ótta við að gera þá reiða. Ákveðinnar undanlátssemi gætir í samfélagsumræðunni og enginn vill stíga fram og segja að það sé of langt gengið þegar eggjum og öðrum hlutum er kastað í þingmenn á Austurvelli. Þetta er mat Stefaníu Óskarsdóttur stjórnmálafræðings. 3.10.2011 06:30
70 hættu að styrkja í september Sjötíu styrktaraðilar ABC barnahjálpar á Íslandi hafa hætt að styrkja samtökin í þessu mánuði. Samtökin finna sterkt fyrir erfiðu efnahagsástandi. 3.10.2011 06:30
Minnihluti undrast starfslokin Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, er ekki lengur í fullu starfi hjá fyrirtækinu. Fram kom í máli Jóns Gnarr borgarstjóra á borgarstjórnarfundi í síðustu viku að Haraldur Flosi hefði að eigin frumkvæði verið í hálfu starfi frá því í mars og hefði svo látið alfarið af störfum 1. júní. Hann hefði ekki talið þörf á kröftum sínum lengur. 3.10.2011 06:30
Erfitt að lækka verð lóða í Reykjavík „Við erum um þessar mundir að láta kanna lóða- og fasteignamarkaðinn á eigin spýtur. Ég get hins vegar hvorki sagt af né á hvort lóðaverðið muni breytast," segir Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri á Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar. 3.10.2011 06:30
Byggja um of á væntingum ríkisstjórnar Kristján Þór Júlíusson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd, óttast að fjárlögin byggi á meiri væntingum en innstæða sé fyrir. Áherslur og útlegging ríkisstjórnarinnar á fjárlögunum séu í hróplegu ósamræmi við skilning launþega og fyrirtækja á stöðunni á vinnumarkaði í dag. „Ég hef áhyggjur af því hvernig þær forsendur eru lagðar fram sem fjárlögin byggja á. Annars vegar er um að ræða þjóðhagsspá Hagstofunnar frá því í júlí sem maður setur ákveðinn fyrirvara við. Hins vegar á vöxtur í íslensku hagkerfi að byggja á einkaneyslu og fjárfestingu sem á að aukast um 15 prósent.“ 3.10.2011 06:30
Fundu líkamsklukkugenið Vísindamenn við Salk-stofnunina í Bandaríkjunum hafa borið kennsl á gen sem virðist stjórna líffræðilegri klukku mannslíkamans. Genið hefur á morgnana framleiðslu á ákveðnu prótíni sem líkaminn fylgist með til að vita hvenær hann á að sofa og vaka. Þá örvar það efnaskipti í líkamanum. 3.10.2011 06:30
Fituskattur tekur gildi Svokallaður fituskattur tók gildi í Danmörku á laugardaginn. Hann er lagður á matvæli á borð við smjör og olíu með það fyrir augum að draga úr neyslu á óhollum mat. 3.10.2011 06:15
Eiginkonan enn í einangrun Kínastjórn sýnir enga eftirgjöf, nærri ári eftir að andófsmaðurinn Liu Xiaobo fékk friðarverðlaun Nóbels, hvorki gagnvart norskum stjórnvöldum né eiginkonu verðlaunahafans. „Það hafa ekki orðið miklar breytingar,“ sagði Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, í heimsókn sinni hér á landi í síðustu viku þegar hann var spurður um stirðleikann í samskiptum Noregs og Kína sem ríkt hefur undanfarið ár. 3.10.2011 06:15
Erlend fjárfesting bundin við álver Óvíða eru meiri hömlur á erlenda fjárfestingu en hér á landi. Ef litið er til síðustu áratuga sést að fjárfesting að utan hefur komið í slumpum og nánast verið bundin við áliðnaðinn. Starfshópur iðnaðarráðherra leggur til að lög um málaflokkinn verði afnumin og nefnd um erlenda fjárfestingu verði lögð niður. 3.10.2011 06:00
Búgarðurinn kemur Perry í bobba Búgarður í eigu Ricks Perry, frambjóðanda um útnefningu á forsetaefni Repúblikana, virðist ætla að koma honum illa. Nafnið er skrifað á stein sem er við innkeyrsluna að búgarðinum, en nafnið er Niggarafés. Búgarðurinn hafði þetta viðurnefni löngu áður en að Rick Perry og faðir hans keyptu hann snemma á níunda áratugnum. En ekkert var gert til þess að breyta því. Að sögn Washington Post kemur það illa við Perry. Sjálfur var hann spurður út í málið í síðustu viku. Svaraði hann því til að nafnið væri móðgandi, en það ætti ekki að taka því of alvarlega. 2.10.2011 20:40
Níu ára hetja bjargaði heimili sínu Níu ára strákur í Reykjanesbæ bjargaði heimili sínu í gær þegar eldur í kamínu fór úr böndunum. Hann segir auglýsingu í sjónvarpinu hafa kennt sér á slökkvitækið. 2.10.2011 19:28
Stikla úr mynd Baltasars nýtur gríðarlegra vinsælda Kynningarstikla fyrir kvikmyndina Contraband í leikstjórn Baltasars Kormáks er vinsælasta myndbandið á YouTube þessa stundina. Myndin kostaði 25 milljónir dollara í framleiðslu og skartar stórleikurum á borð við Mark Wahlberg. 2.10.2011 19:12
Kvikmyndaskólinn með tilboð frá yfirvöldum Stjórn Kvikmyndaskóla Íslands hefur í rúma viku haft tilboð frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu um styrktarsamning til skoðunar. Böðvar Bjarki Pétursson, stjórnarformaður skólans, segir það skýrast um hádegi á morgun hvort tilboðinu verði tekið. Hann vill ekki gefa upp hvað stendur út af í samningaviðræðunum en segist þó vera bjartsýnn á að samningar náist. Fyrir liggur að tilboð ráðuneytisins hljóðar upp á styrk til skemmri tíma. 2.10.2011 18:51
Bankasýslan réði reynsluminnsta umsækjandann Páll Magnússon, nýráðinn forstjóri Bankasýslu ríkisins, er sá umsækjenda um starfið sem minnsta reynslu hefur af störfum fyrir fjármálastofnanir. Stjórnarformaður Bankasýslunnar telur að tengsl Páls við einkavæðingu bankanna sé ekki ókostur fyrir starfið. Aðrir umsækjendur um stöðuna voru: Karl Finnbogason sem starfar sem sérfræðingur hjá eignastýringu Bankasýslu ríkisins. Hann er með framhaldsmenntun í hagfræði og hefur um þriggja ára reynsla af stjórnunarstörfum hjá fjármálastofnunum. Kolbrún Jónsdóttir viðskiptafræðingur. Hún situr í stjórn Íslandsbanka fyrir hönd Bankasýslu ríkisins og hefur rúmlega áratugs reynslu af stjórnunarstörfum hjá fjármálastofnunum Ólafur Örn Ingólfsson hagfræðingur sótti einnig um. Hann hefur um 30 ára reynsla af störfum í fjármálastofnunum, stærstan hluta sem stjórnandi. Páll Magnússon er með BA í guðfræði og MPA í opinberri stjórnsýslu. Hann hefur sinnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Framsóknarflokkinn; vður bæjarritari hjá Kópavogsbæ, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, aðstoðarmaður ráðherra og stjórnarmaður hjá Landsvirkjun. Af þessu er ljóst að Páll er með minnstu menntunina og minnstu reynsluna þegar kemur að störfum hjá fjármálastofnunum. "Það er rétt hjá þér að Páll skoraði ekki fremst umsækjenda á þessum sviði en heildarmatið var honum í vil en það eru margir þættir sem eru metnir," segir Þorsteinn Þorsteinsson, stjórnarformaður Bankasýslunnar. Það er stjórn stofnunarinnar sem sá alfarið um ráðninguna, í samvinnu við Capacent. Aðspurður segir Þorsteinn að það hafi ekki verið neitt eitt atriðið sem gerði útslagið vegna ráðningar Páls. "Nei, ég mynd ekki segja það hefði verið eitt kannski. Hann stóð sig mjög vel í viðtölum og kom vel fyrir og fékk mjög góðmeðmæli," segir hann. Þorsteinn nefnir sérstaklega að Páll hefur víðtæka reynslu úr stjórnkerfinu og það hafi vegið þungt. Trúnaðarstörf fyrir Framsóknarflokkinn eru áberandi á ferillsskrá Páls. Þorsteinn neitar því aðspurður að pólitík hafi ráðið för við ráðninguna. "Nei, það var alls ekki nein pólitík," segir hann. Páll var aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur, fyrrverandi viðskiptaráðherra, þegar bankarnir voru einkavæddir. Nú er hann óneitanlega nokkuð tengdur einkavæðingunni og þessi einkavæðing var gagnrýnd í rannsóknarskýrslu alþingis. Finnst þér þetta ekki óheppilegt? "Við ákváðum að líta ekki til þessa sérstaklega og töldum að við hefðum ekki rétt til þess í raun og veru að setja á hann neinn mínus fyrir þetta atriði sérstaklega," segir Þorsteinn. 2.10.2011 18:45
Flestir mótmælendurnir lausir Lögreglan í New York hefur látið lausa flesta af þeim 700 sem voru handteknir eftir mótmælin á Brooklyn brúnni í mótmælum í gær. Efnt var til mótmælanna til að vekja athygli á græðgi fyrirtækja. Flestir þeir sem handteknir voru fengu sektir eða var stefnt fyrir rétt. Hópurinn sem stendur að baki mótmælunum segir að þeim verði haldið áfram, jafnvel strax á næsta miðvikudag. 2.10.2011 17:13
Ríkisráð kemur saman á morgun Reglulegur fundur ríkisráðs Íslands verður haldinn á Bessastöðum á morgun klukkan þrjú. Á fundinum mun Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, endurstaðfesta mál sem þegar hafa verið afgreidd, líkt og stjórnarskráin gerir ráð fyrir. 2.10.2011 15:59
Thorning fór á fund drottningar Helle Thorning-Schmidt, formaður sósíaldemókrata í Danmörku og verðandi forsætisráðherra, gekk í dag á fund Margrétar Danadrottningar og tilkynnti henni að stjórnarsáttmáli vinstriflokkanna á danska þinginu væri tilbúinn. Þeim væri því ekkert að vanbúnaði að mynda nýja ríkisstjórn. 2.10.2011 14:47
Eins og Alþingishúsið hefði veðrast í öld Þrifin á Alþingishúsinu eftir þingsetningu og stefnuræðu í fyrra voru eins og húsið hefði veðrast eitt hundrað ár, segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. Hún segir í góðu lagi að fólk mótmæli við þessi tækifæri svo framarlega sem það beiti ekki ofbeldi eða skemmi eignir. 2.10.2011 13:45
Ósammála túlkun forsetans á tillögum stjórnlagaráðs Stjórnlagaráðsfulltrúi segir túlkun forseta á tillögum stjórnlagaráðs vera allt önnur en ráðið lagði upp með. Hann segir það eðlilega kröfu ráðsins að valdamenn reyni ekki að afbaka tillögurnar eftir pólitískum hagsmunum. 2.10.2011 12:19
Norræn tíska í Seattle „Stórsigur fyrir Norræna hönnun," segir Max Dager, forstjóri Norræna hússins, sem er nú staddur í Seattle á Norræna tískutvíæringnum ásamt forystuliði norræna hönnuða . Góð þátttaka hefur verið á sýningunni og málþinginu. 2.10.2011 12:08
Stjórnarandstaðan stýrir engri þingnefnd Stjórnarandstöðuflokkarnir sinna ekki formennsku í neinni þingnefnd, þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir því í nýjum lögum um þingsköp sem tóku gildi í gær. Ákvörðun um þetta var tekin sameiginlega af þingflokksformönnum allra flokka. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, Ragnheiður Elín Árnadóttir, segir að þegar unnið var að útfærslu á lögunum hafi komið upp skoðanamunur milli flokka um það hvaða nefndir kæmu í hlut hvers þingflokks. "Í nýju þingskapalögunum er skýrt tekið fram og algjörlega ljóst hvernig formennska skiptist á milli þingflokka," segir hún og á þar við fjölda nefnda sem flokkur stýrir út frá þingstyrk. Hins vegar sé ekki skýrt hvernig ákveða skuli hvaða flokkur fær formennsku í hvaða nefnd. "Þess vegna þegar við vorum búin að fara yfir þetta mál þá var það ljóst að um þetta næðist ekki samkomulag og því varð út að við ákváðum sameiginlega að fresta þessum breytingum og vísa vinnu við útfærsluna í nýja þingskapanefnd," segir Ragnheiður Elín. Miklar breytingar felast í nýju þingskapalögunum og segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokks, mikilvægt að þær séu útfærðar að vel athuguði máli. Ragnheiður Elín tekur í sama streng. "Að mínu mati er þetta farsæl niðurstaða, að við vöndum okkur, útfærum þetta og gerum þetta með þeim hætti að okkur verði sómi að," segir hún. Uppi hefur verið orðrómur um að þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar hafi hreinlega neitað að taka að sér formennsku í flokkunum. Spurður um þetta segir Gunnar Bragi að svo sé ekki. "Þetta er bara einhver saga sem er verið að reyna að breiða út," segir hann. 2.10.2011 12:00
25 hermenn fórust í Jemen Að minnsta kosti 25 hermenn fórust þegar jemenskar orustuþotur vörpuðu sprengjum á aðsetur hermanna í Abyan héraðinu í suðurhluta landsins í gær. Stjórnvöld í landinu neita því að sprengingarnar hafi átt sér stað. Fullyrt hefur verið að árásarmennirnir séu tengdir al-Qaeda hryðjuverkasamtökunum, en aðrar heimildir herma að þær fullyrðingar séu runnar undan rifjum áróðursmeistara ríkisstjórnarinnar til að tryggja stuðning alþjóðasamfélagsins við ríkjandi stjórnvöld. 2.10.2011 11:58
Stefnir í kreppu út áratuginn Íslendingar verða í kreppu út áratuginn ef ríkisstjórnin grípur ekki til aðgerða til að örva fjárfestingu, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann segir að hagvöxtur sé allt of lítill enn sem komið er. 2.10.2011 11:22
Sátu ekki undir ræðu forseta Íslands Álfheiður Ingadóttir og Davíð Stefánsson, sem bæði eru þingmenn VG, hlýddu ekki á ræðu Ólafs Ragnars Grímssonar, við setningu Alþingis í gær. "Við sátum ekki undir henni. Ég held það megi orða það þannig,“ segir Álfheiður Ingadóttir. Hún segir að ástæðan sé sú að henni finnist ekki við hæfi að blanda saman áróðursræðum forseta Íslands og þingsetningunni. 2.10.2011 10:52
Ríflega 700 handteknir í mótmælum á Wall Street Ríflega sjö hundruð mótmælendur voru handteknir á Brooklyn brúnni í New York í gær. Hópurinn var hluti af stærri fylkingu sem gekk yfir brúna frá manhattan, en mótmælendur hafa haldið til nálægt Wall Street í tæpar tvær vikur. 2.10.2011 09:52
Forsetinn verður að styðja alla hermenn Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, setti hressilega ofan í við andstæðinga sína í Repúblikanaflokknum í ræðu í gær. Þá sagði hann að hver sá sem ætlaði að verða æðsti yfirmaður Bandaríkjahers yrði að styðja allan herinn, þar á meðal samkynhneigða hermenn. Obama gagnrýndi harðlega frambjóðendur um forsetaútnefningu Repúblikanaflokksins fyrir að hafa orðið kjaftstopp þegar samkynhneigur hermaður spurði frambjóðendur um viðhorf sín í nýlegum kappræðum. Obama sagði að forsetar yrðu að standa með sínu fólki, jafnvel þótt það væri ekki pólitískt þægilegt. 2.10.2011 09:46
Ný ríkisstjórn kynnt á morgun Ný ríkisstjórn Danmerkur verður kynnt á morgun. Helle Thorning-Schmidt, leiðtogi Sósíaldemókrata, Margrethe Vestager, leiðtogi Róttæka vinstriflokksins og Villy Søvndal, leiðtogi Sósíalska þjóðaflokksins, hafa náð samkomulagi um stjórnarsáttmála, eftir því sem Ritzau fréttastofan greinir frá. 2.10.2011 09:43