Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vörðu ráðherra og þingmenn með regnhlífum Lögreglumenn og öryggisverðir á vegum Alþingis nýttu regnhlífar til þess að hlífa ráðherrum og þingmönnum við eggjakasti þegar gengið var frá Dómkirkjunni til Alþingishússins, þar sem setning Alþingis fór fram. Það kom þó ekki í veg fyrir að fjöldi þingmanna yrði útbíaður út í eggjum sem kastað var af Austurvelli. Sigurjón Egilsson, Þorsteinn Magnússon og Gísli Berg, sem allir eru starfsmenn fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis, voru staddir á Austurvelli og fönguðu stemninguna. Hákon Logi Sigurðarson klippti myndskeiðið. 1.10.2011 15:24
Sóknargjöld lækka um 27 milljónir Sóknargjöld til þjóðkirkjunnar lækka um 27 milljónir króna, samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Ástæðan er endurmat á gjölda einstaklinga í skráð trúfélög, sóknargjöld til annarra trúfélaga hækka um 14 milljónir króna af sömu ástæðu. Þá munu framlög til kirkjugarða lækka um 18,3 milljónir frá gildandi fjárlögum að raungildi. Fram kemur í frumvarpinu að framlagið er lækkað um rúmar 25 milljónir króna vegna samdráttar í ríkisútgjöldum en á móti kemur 7 milljóna króna hækkun vegna endurskoðunar á reiknilíkani. 1.10.2011 14:30
Lögreglumenn upplifa sig sem mannlega skildi Lögreglumenn sem stóðu vaktina fyrir framan Alþingi við þingsetningu í dag höfðu ekkert val um það hlutskipti sitt, segir Snorri Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna 1.10.2011 14:10
Dorrit missti af messunni Dorrit Moussieff forsetafrú tók sér stöðu meðal almennings og ræddi við mótmælendur fyrir setningu Alþingis í dag. Svo upptekin var hún af samskiptum við fólkið að hún missti af guðsþjónustunni. 1.10.2011 13:29
Þingmenn líti í eigin barm Þjóðin gerir kröfu til breyttra vinnubragða og að þingmenn líti í eigin barm og finni til ábyrgðar sem einstaklingar og kjörnir fulltrúar. Þetta sagði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, við þingsetningu í dag. 1.10.2011 12:31
Árni Þór vankaðist við eggjakastið "Ég smá vankaðist svona,“ segir Árni Þór Sigurðsson, þingmaður VG, sem fékk egg í höfuðið á leið úr Alþingishúsinu til guðsþjónustu í dag. "Þetta kom illa á gagnaugað rétt fyrir ofan eyrað og ég vankaðist smá og datt,“ segir Árni Þór. 1.10.2011 12:09
Alþingi þarf að móta afstöðu fyrir forsetakosningarnar Alþingi þarf að móta skýra afstöðu til tillagna stjórnlagaráðs þótt breytingar á sjálfri stjórnarskránni hljóti ekki endanlegt gildi fyrr en að loknum næstu þingkosningum. Þetta sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í ræðu sinni við setningu Alþingis í dag. 1.10.2011 11:48
Mótmælin eru hættumerki Sú staðreynd að þúsundir manna telji sig ár eftir ár tilbúna til þess að mótmæla í hörðum mótmælum við þingsetningu er hættumerki sem okkur ber öllum að taka alvarlega, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, við setningu Alþingis í dag. 1.10.2011 11:25
Mjúki maðurinn er ekki til Einu sinni las ég viðtal við Mads Mikkelsen, þú veist, danska leikarann. Þegar blaðamaðurinn ætlaði að fara að spyrja hann einhverra persónulegra spurninga svaraði hann: Ég held alltaf fjölskyldunni utan við vinnuna. Ég er ekki Mads Mikkelsen en er samt að spá í að taka hann mér til fyrirmyndar. Mér finnst mjög óþægilegt að tala um sjálfan mig og mér finnst mitt persónulega líf ekki koma neinum við. Aumingja konan mín er gift mér og greyið dóttir mín á mig fyrir pabba. Það er ekki þeim að kenna að ég er í þessari vinnu.“ 1.10.2011 11:00
Þingmaður féll í götuna Mótmælandi kastaði aðskotahlut í höfuð Árna Þórs Sigurðssonar, þingmanns VG, þegar hann gekk úr Alþingishúsið í Dómkirkjuna í morgun. Við þetta féll Árni í jörðina. Hann steig aftur upp og virtist ekki hafa orðið meint af. 1.10.2011 10:59
Töluverður fjöldi mótmælir Töluverður fjöldi fólks er samankominn á Austurvelli til að mótmæla við þingsetningu Alþingis. Lögreglan fylgist með svæðinu og tryggir að allt fari vel fram. Það er ýmsu mótmælt, meðal annars eftirlaunaforréttindum þingmanna og svo eru sumir sem vilja koma breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfið. 1.10.2011 10:22
Mótmælendur gengu fylktu liði til lögreglunnar Meira en 1000 mótmælendur sem haldið hafa til á Wall Street í New York undanfarna daga og mótmælt völdum fjámálkerfisins, gengu í gær fylktu liði að höfuðstöðvum lögreglunnar í borginni. 1.10.2011 10:10
Angraði fólk á veitingastað Karlmaður var handtekinn eftir að hann angraði gesti og dyraverði á veitingastaðnum Volcano í Vestmanneyjum í nótt. Maðurinn var drukkinn og var látinn sofa úr sér í fangageymslum lögreglunnar. 1.10.2011 10:03
Datt í sjóinn við Hörpu Karlmaður datt í sjóinn við Faxagarð, rétt við Hörpu, í nótt. Kafarabíll frá sjúkraliðinu var kallaður til, en maðurinn var kominn upp úr af eigin rammleik áður en bíllinn mætti á staðinn. Maðurinn var ekki slasaður en var fluttur kaldur til aðhlynningar á slysadeild. Þá björguðu lögreglumenn og björgunarsveitamenn manni sem hljóp í sjóinn í Hólmavík um tvöleytið í nótt. Sá var einnig ölvaður. 1.10.2011 09:57
Þingsetning í beinni á Vísi Alþingi verður sett með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan hálfellefu í dag. Eftir það ganga Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, handhafar forsetavalds og þingmenn í Alþingishúsið þar sem forsetinn setur þingið. Eins og venja er mun fjárlagafrumvarpinu jafnframt verða dreift. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hélt blaðamannafund klukkan níu í morgun þar sem helstu atriði frumvarpsins verða kynnt. Við munum segja nánar frá þingsetningu í hádegisfréttum okkar klukkan tólf og á Vísi. 1.10.2011 09:49
Akranesbær bíður svars frá ráðuneyti í máli skólabarna Mennta- og menningarmálaráðherra mun eftir helgi kveða upp úr með það hvort bæjaryfirvöldum á Akranesi sé heimilt að flytja börn milli skóla gegn neitun foreldra þeirra. 1.10.2011 09:00
Þjóðin kjósi um stjórnarskrá Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vill að þjóðin greiði atkvæði um frumvarp stjórnlagaráðs um nýja stjórnarskrá samhliða forsetakosningunum á næsta ári. Niðurstaðan verði ráðgefandi fyrir Alþingi er það fjallar um málið. 1.10.2011 08:30
Frumvarpi um fjárlög dreift Alþingi verður sett með athöfn sem hefst klukkan 10.30 í dag. Að athöfninni lokinni verður fjárlagafrumvarpi næsta árs dreift á Alþingi. 1.10.2011 07:00
Þrjátíu milljón töflur á markað Verksmiðja Actavis á Möltu hefur sett rúmlega þrjátíu milljón töflur af samheitalyfinu Olanzapine á markað í Evrópu. Einkaleyfi lyfsins Zyprexa frá Eli Lylly við geðklofa og geðhvarfasýki féllu úr gildi í vikunni. 1.10.2011 07:00
Vilja fjölga aukakrónum fjölskyldna Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu, harmar að bændum finnist samtökin ráðast að sér þegar þau hvetji til þess að innflutningur verði leyfður á svína- og kjúklingakjöti. 1.10.2011 06:30
Tólf tilboð í Húsasmiðjuna Tólf tilboð hafa borist í Húsasmiðjuna og einstakar rekstrareiningar til Framtakssjóðs Íslands. Frestur til að skila inn óskuldbindandi tilboðum rann út gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Framtakssjóði. 1.10.2011 05:00
Kolmunnastofn stækkað mikið Alþjóðahafrannsóknaráðið, ICES, leggur til að veiði á kolmunna verði stóraukin á árinu 2012. Ráðið leggur hins vegar til 15 prósenta minni veiði úr norsk-íslenska síldarstofninum. Þá leggur ráðið til nær óbreyttar veiðar á makríl. Þetta kemur fram í skýrslu ráðsins um ástand nytjastofna í Norðaustur-Atlantshafi sem birt var í gær. 1.10.2011 04:00
Telja að merkingar hækki ekki verð Nýjar reglur um merkingar á erfðabreyttum matvælum hér á landi eiga að taka gildi um næstu áramót. 1.10.2011 03:00
Hvenær fóru trúmál að skipta sköpum í kosningum? Sagnfræðingurinn Magnús Sveinn Helgason, sem kennir bandarísk stjórnmál við Háskólann á Bifröst, segir ljóst að mál tengd kristinni trú og gildum séu mikilvæg í stjórnmálabaráttunni þar í landi. 1.10.2011 03:00
Norðurslóðir verða í kastljósi heimsins Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir það táknrænt að prófessorsstaðan, sem helguð verður norðurslóðarannsóknum, verði í Háskólanum á Akureyri, því þar er helsta miðstöð norðurslóðarannsókna hér á landi. 1.10.2011 02:00
Segir Pútín mesta stjórnmálaskörung landsins „Pútín er tvímælalaust mesti stjórnmálaskörungur landsins og vinsældir hans mælast meiri,“ sagði Dmitrí Medvedev Rússlandsforseti í sjónvarpsviðtali, þar sem hann útskýrði þá ákvörðun sína að bjóða sig ekki fram til forseta næsta kjörtímabil. 1.10.2011 01:00
Norðmenn verða lengi að ná sér Utanríkisráðherra Noregs segir að umræða um viðkvæm málefni tengd hryðjuverkunum í sumar sé varla byrjuð enn í Noregi. Áleitnar spurningar, eins og til dæmis um muninn á orðum og athöfnum, verði þó að draga fram í dagsljósið og ræða í anda lýðræðisins. Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, segir að Norðmenn verði lengi að ná sér eftir harmleikinn í sumar þegar hryðjuverk einstaklings kostuðu nærri 70 manns lífið, flest ungmenni úr ungliðahreyfingu Verkamannaflokksins. 1.10.2011 00:45
Hvatti múslima til árása Tveir bandarískir ríkisborgarar og meðlimir í al-Kaída hryðjuverkasamtökunum voru í gær vegnir í Jemen. Bandarískar orrustuþotur gerðu árásir á bílalest mannanna. 1.10.2011 00:30
Perry og Romney leiða hópinn Eftir að hafa komið inn með miklum látum og tekið forystuna í skoðanakönnunum umsvifalaust hefur Rick Perry tapað fylgi eftir slælega frammistöðu í kappræðum undanfarið. Hann og Mitt Romney skiptast nú á að leiða milli kannana en allt púður virðist úr Michelle Bachmann í bili og fylgið hrynur af henni. 1.10.2011 00:00